Víkurfréttir - 22.02.2023, Qupperneq 15
skipti um skóla þá fékk ég ekki allt
metið og ég hefði þurft að vera í tvö
skólaár í viðbót til að fá gráðuna.
Ég var ekki tilbúin í það, að vera í
tvö ár til viðbótar úti. Þar að auki
var ég ekki viss um að þetta væri
það sem ég vildi læra, þannig að
núna er ég að taka mér smá pásu
frá skóla á meðan ég geri upp við
mig hvað mig langi að læra.“
Birna vinnur sem stuðningsfull-
trúi í Holtaskóla í bekk á yngsta
stigi þar sem hún aðstoðar tvo ein-
hverfa stráka. „Við erum tvær sem
skiptum með okkur tveimur ein-
hverfum strákum sem við fylgjum
í gegnum daginn. Það eins og allt
annað, svolítið upp og niður dagar
en mjög skemmtilegt og gefandi
starf – og mjög skemmtilegir
krakkar sem ég er að vinna með.“
Upplifanir í gegnum íþróttir
Birna hefur fengið tækifæri til
að prófa ýmislegt í gegnum sína
körfuboltaiðkun. Bara það að fara
eins og hún gerði í háskólanám til
Bandaríkjanna hefði varla staðið
til boða nema vegna körfuboltans.
„Og við unnum mikið með það
þarna úti. Það var gríðarlega mikið
lagt upp úr því hvað við værum í
rauninni heppnar að vera í þessum
sporum, að fá frítt háskólanám og
alla þá aðstoð sem við vorum að
fá. Við værum í rauninni að fá allt
upp í hendurnar og ég er ótrúlega
þakklát fyrir þessi þrjú ár sem ég
fékk þarna úti – ég næ ekki einu
sinni að koma því í orð. Ef krakkar
eru eitthvað að pæla í þessu, að
fara í nám erlendis, þá mæli ég
eindregið með því. Eins og ég segi,
það er ekkert mál að koma heim ef
þetta er ekki fyrir þig. Ef þú kemst
ekki í gegnum árið, þá geturðu
alltaf farið heim aftur.
Ég sé ekki eftir því að hafa prófað
þetta. Manni er hent út í djúpu
laugina en maður kann að synda,
svo þetta kemur allt á endanum.“
Aðspurð hvort það sé líf fyrir
utan körfuboltann segir Birna
„Þegar tímabilið er í gangi er
ekkert rosalega mikill tími aflögu
– en mér finnst ofsalega gaman
að hitta vinkonur mínar þegar ég
hef tíma. Ég brunaði t.d. í bæinn
í gær og fór í bíó með vinkonum
mínum. Ég er mikil félagsvera og
finnst rosalega gaman að vera með
vinum mínum – og þegar ég get þá
finnst mér mjög skemmtilegt að
ferðast. Ég hef ferðast mikið með
landsliðinu í gegnum tíðina og
finnst það mjög gaman. Ég notaði
líka landsleikjahléið og skrapp til
New York um daginn til að heim-
sækja vini mína, sem er svona sam-
bland af báðu, að ferðast og hitta
vini. Það var yndisleg helgarferð.
Samt er ég mjög mikil rútínu-
manneskja. Mér finnst mjög gott
að fara í vinnuna, koma heim,
fá mér að borða áður en ég fer á
æfingu. Körfuboltinn hefur alltaf
verið númer eitt, tvö og þrjú hjá
mér, ég er búin að vera í körfunni
frá því að ég var fimm ára gömul.
Núna þegar ég er ekki í skóla hef ég
aðeins meiri tíma fyrir sjálfa mig
og er að reyna að finna út úr því
sjálf, hvað fleira er í boði fyrir utan
körfuboltann.“
Einbeitum okkur að okkur
Að lokum, hverju spáir þú um
deildina? Ætlið þið ekki að klára
þetta, deildarmeistarar og Ís-
landsmeistarar?
„Bara nó komment! Við erum
mjög mikið bara að einbeita okkur
að okkur,“ segir Birna. „Hössi
[Hörður Axel Vilhjálmsson,
þjálfari Keflavíkur] er búinn að
vera að berja það í okkur að horfa
ekki of langt fram á við, það sem
gerist gerist. Eins lengi og við erum
að gera okkar besta er ekkert meira
sem við getum gert,“ sagði Birna
Valgerður að lokum.
n Matreiðslumaður/meistari í framtíðarstarf (08:00-16:00)
n Afgreiðsla og aðstoð í eldhúsi í framtíðarstarf (08:00-16:00)
n Sumarstörf í eldhús og afgreiðslu (08:00-16:00)
n Uppvaskari/aðstoðarmanneskja í eldhúsi.
Umsóknir sendist á: maggi@retturinn.is
Okkur vantar fólk
í eftirfarandi störf
Rétturinn Hafnargötu 90 - Reykjanesbæ
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
Birna hefur fengið fjölmörg
tækifæri til að skoða heiminn
með landsliðum Íslands.
Ég sé ekki eftir því að hafa prófað
þetta. Manni er hent út í djúpu laugina
en maður kann að synda, svo þetta
kemur allt á endanum ...
Metþátttaka á GeoSilica-móti
Keflavíkur um helgina
Síðastliðna helgi, dagana 18. og
19. febrúar, fór GeoSilica-mót
Keflavíkur fram í Nettóhöllinni.
Þátttaka mótsins fór fram úr
öllum væntingum í ár en alls voru
1.200 stúlkur í 5., 6., og 7. flokki
skráðar til leiks. Á laugardeginum
spiluðu 6. og 7. flokkur og á sunnu-
deginum spilaði 5. flokkur. Mótið
var nú haldið í sjöunda sinn í sam-
starfi við kvennaknattspyrnuna í
Keflavík og GeoSilica Iceland en
stefna fyrirtækisins hefur alltaf
verið skýr frá upphafi:
„Við teljum það vera skylda
okkar sem fyrirtæki á Suður-
nesjum að styðja við kvennaknatt-
spyrnuna og hvetja ungar stelpur
í íþróttum. Það er alltaf jafn
ánægjulegt að bjóða yngri flokka
landsins velkomna til Keflavíkur
og við vonum að stelpurnar og
fjölskyldur þeirra hafi skapað
góðar minningar á mótinu,“
segir Fida Abu Libdeh, stofnandi
og framkvæmdastjóri GeoSilica
Iceland. Leikmenn meistaraflokka
Keflavíkur dæmdu leikina og tóku
einnig þátt í að útbúa auglýsinga-
efni fyrir samfélagsmiðla í sam-
starfi við GeoSilica í aðdraganda
mótsins. Myndböndin hafa verið
birt á Instagram síðum GeoSilica
og knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Jóhann Páll Kristbjörnsson,
ljósmyndari Víkurfrétta, fylgdist
með mótinu um helgina og á
vefsíðu Víkur frétta, vf.is, má sjá
stórskemmtilegt myndasafn frá
mótinu.
Fida Abu Libdeh, stofnandi og
framkvæmdastjóri GeoSilica Iceland,
hafði gaman af að fylgjast með
knattspyrnusnillingum framtíðarinnar.
Knattspyrnuúrslit:
Njarðvík - Grótta 4:0
Mörk: Oumar Diouck (19’ víti og 34’) og Magnús
Magnússon (58’ og 89’).
Þróttur R. - Keflavík 1:2
Mörk Keflavíkur: Nacho Heras (23’ víti) og Jóhann
Þór Arnarson (28’).
Haukar - Víðir 4:1
Mark Víðis: Bessi Jóhannsson (67’).
ÍH - Reynir 4:2
Mörk Reynis: Elfar Máni Bragason(33’) og Ársæll
Kristinn Björnsson(90’).
Hvíti riddarinn - Þróttur 0:6
Mörk: Sjálfsmark (5’), Adam Árni Róbertsson(23’ og
48’), Guðni Sigþórsson (75’ og 90’) og Emil Skorri Þ.
Brynjólfsson (90’+1).
Nýjustu fréttir og úrslit birtast jafnóðum á vf.is
Oumar Diouck og Magnús Magnússon (á mynd)
skoruðu tvö hvor fyrir Njarðvík. VF/JPK
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 15