Víkurfréttir - 01.03.2023, Blaðsíða 14
Draumurinn
að verða
forseti
Leó Máni er 18 ára gamall og er á fjölgreinabraut í FS. Helstu áhugamál
hans eru stjórnmál, íþróttir og græða pening sem hann hræðist mest að
eiga ekki nóg af. Leó er FS-ingur vikunnar.
Hvað ert þú gamall? Ég er ný orðinn 18 ára.
Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Kennarana.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í Fs? Ég
heyrði góða hluti og flest allir vinir mínir
voru að fara í FS.
Hver er helsti kosturinn við Fs? Getur valið
það sem þér finnst skemmtilegt að læra og
margir valmöguleikar.
Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Félagslífið í skólanum er fínt en verður
betra.
Hvaða Fs-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Valur Axel Ax-
elson, frægur dansari og meðal ríkustu
manna Suðurnesja.
Hver er fyndnastur í skólanum? Greddu
paddan, Grétar Snær Haraldsson.
Hvað hræðist þú mest? Að eiga ekki
pening.
Hvað er heitt og hvað er kalt þessa
stundina? Heitt: Hvítir force. Kalt: Mid
jordan 1s og fake force.
Hvert er uppáhalds lagið þitt? Allt með
Aron Can.
Hver er þinn helsti kostur? Ríkur.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Aur, Snap og Insta.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Ennþá ríkari.
Hver er þinn stærsti draumur?
Verða forseti.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það og af hverju? Ríkur,
þetta þýðir á alveg marga vegu. Ég er bæði
ríkur sem einstaklingur og ríkur að eiga
góða vini og ættingja.
Íbúum Reykjanesbæjar ætti nú flestum að vera ljóst að innan sveitar-
félagsins er unnið að viðamiklum endurbótum á húsnæði Myllu-
bakka- og Holtaskóla, eftir að mygla greindist í báðum skólum.
Starfsfólk skólanna hefur lengi kallað á aðgerðir og vakið athygli á
því að veikindi og einkenni sökum óheilnæms vinnuumhverfis hafi
verið töluverð þeirra á meðal.
Fram kom í viðtali
við formann bæjarráðs
Reykjanesbæjar í Morgun-
blaðinu þann 14. febrúar
sl.sem bar yfirskriftina
„Milljarðar vegna myglu-
viðgerða“ að „Því miður
hafi starfsfólk í sumum
tilfellum fundið fyrir ein-
kennum myglu en lítill
hluti þeirra veikst.“ Annan
tón ber við í viðtali við trúnaðar-
menn starfsfólks í Myllubakka- og
Holtaskóla í Morgunblaðinu þann
21. febrúar undir yfirskriftinni
“Margir í veikindaleyf i vegna
myglu”. Því spyr ég mig, hvenær
finnst okkur um að ræða “lítinn
hluta starfsfólks”?
Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins höfum áður lýst yfir von-
brigðum okkar með hversu alvar-
legt ástand hefur skapast vegna
skorts á viðhaldi á húsnæði sveitar-
félagsins og höfum lagt áherslu á
að góð samskipti þurfi að vera á
milli starfsfólks stofnana og ann-
arra notenda húsnæðis þar sem
mygla hefur greinst. Sú staðreynd
að starfsfólki sveitarfélagsins sé
ítrekað boðið upp á ummæli bæjar-
fulltrúa um að „lítið sé um veik-
indi“ og að „fáir hafi veikst“ eru í
besta falli vanvirðing við þann hóp
starfsfólks sem hefur sannarlega
fundið fyrir áhrifum á heilsu sína,
sumir til langframa. Þessi sami
hópur fólks hefur árangurslaust
reynt að ná eyrum ráðamanna
undanfarin misseri en ekki náð í
gegn. Áhrifin á heilsu nemenda
eru ekki síður áhyggjuefni þeirra
starfsmanna sem til ráðamanna
hafa leitað.
En eru þessi skrif mín nú ekki
að bera í bakkafullan lækinn? Þarf
eitthvað að ræða þetta frekar, það
er jú verið að vinna að úrbótum?
Það er vissulega gott að gefa
nokkuð góða mynd, í viðtölum
við fjölmiðla og í fundargerðum
bæjarráðs og bæjarstjórnar, af
þeim fjárhæðum sem verja á til
að laga ástandið. 7 millj-
arðar króna eru áætlaðir
í verkið, það teljum við
ekki eftir okkur, enda
nógir peningar til, að sögn
formanns bæjarráðs. Í
sömu andrá og formaður
greinir frá þeirri fjárhæð
sem verja á í að koma nú
almennilega í veg fyrir
mygluna, viðurkennir
hann að vandann megi rekja ein-
hver ár aftur í tímann og að eftir-
liti og viðhaldi bygginga hafi verið
ábótavant undanfarin ár.
Það gjald sem starfsfólk geldur
nú í vaxandi mæli með heilsu
sinni, reynist hins vegar erfitt að
fá viðurkennt. Það er þvert á móti
ítrekað afgreitt sem léttvægt, enda
vissulega erfið og viðkvæm um-
ræða. Alvarleiki málsins gagnvart
starfsfólki og nemendum verður
ekki mældur í milljörðum. Alvar-
leikinn er nefnilega óháður því
hversu margir veikjast alvarlega og
hversu lengi. Ein alvarleg veikindi
eru einum alvarlegum veikindum
of mikið.
Trúnaðarmenn skólanna hafa
tjáð mér að innan Myllubakka-
skóla hafi myglan haft áhrif á
heilsufar yfir 20 starfsmanna, sem
hafa ýmist sagt starfi sínu lausu,
farið í veikindaleyfi eða fundið
fyrir versnandi heilsu sem rekja
má til myglu. Þetta eru um 30% af
starfsfólki skólans! Veikindadagar
og fjarvistir sökum myglunnar eru
margfalt fleiri í Myllubakkaskóla
þar sem ástandið hefur lengi verið
slæmt, en í Holtaskóla, þar sem
veikindadagar af þessum sökum
telja nú þegar að lágmarki 300
daga á skólaárinu. Að baki þeim
dögum standa um 16 starfsmenn
sem eru um 25% starfsmanna-
hópsins. Þrír starfsmenn hafa sagt
starfi sínu lausu í Holtaskóla og
fleiri íhuga að stíga það skref er
mér tjáð.
Það þarf mjög einbeittan vilja til
að hundsa eða snúa út úr þessum
staðreyndum. Það að starfs-
fólki, sem býr við skert lífsgæði
af þessum sökum, þyki því sýnd
ítrekuð lítilsvirðing þegar kjörnir
fulltrúar koma fram og lýsa vand-
anum og áhrifum hans á heilsu sem
„vægum“ kemur ekki á óvart. Sér í
lagi skil ég vel að starfsfólk upp-
lifi lítilsvirðingu þegar við stærum
okkur af því hversu miklum fjár-
munum eigi að verja í umbætur
nú þegar skaðinn er skeður, nóg
til af fjármunum og allt í blóma í
Reykjanesbæ enda bara „lítill hluti
starfsfólks sem hefur veikst“.
Heilsa og velferð starfsfólks
sveitarfélagsins verður ekki metin
til fjár. Því miður eru áhrif þeirra
vinnubragða sem formaður bæjar-
ráðs lýsir í fyrrnefndu viðtali, al-
varleg fyrir hóp starfsfólks og ekki
hægt að spóla til baka. Samkennd
og virðing fyrir velferð starfs-
fólks kostar hins vegar ekkert. Þar
mættum við, kjörnir fulltrúar, byrja
á að biðja starfsfólk afsökunar á
því að hafa ekki hlustað, að hafa
brugðist of seint við. Við sem full-
trúar sveitarfélagsins, eigum fyrst
og fremst að sýna þeim samkennd
sem glíma við áhrif óheilnæms
vinnuumhverfis á heilsufar sitt
í stað þess að draga úr alvarleika
stöðu þeirra.
Orð mega sín vissulega lítils
þegar skaðinn er skeður. Þó vil
ég, fyrir hönd okkar bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, koma á
framfæri kærum kveðjum til okkar
ágæta starfsfólks sem stendur í
þessum sporum. Við tökum það
nærri okkur hver staða ykkar er
og biðjum ykkur afsökunar á því
hversu seint var gripið til úrbóta af
alvöru. Við munum gera það sem í
okkar valdi stendur til að svo alvar-
legum ábendingum frá starfsfólki
sveitarfélagsins verði sinnt betur
og mun hraðar en raun ber vitni.
Um leið vonum við af heilum hug
að þið náið öll fullri heilsu á ný og
óskum þess að sveitarfélagið fái að
njóta starfskrafta ykkar áfram, eða
að nýju, þegar svo verður.
Helga Jóhanna Oddsdóttir,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesbæ.
Get sett mig
í spor ann-
arra
Sylvía Rún Tryggvadóttir er í 8.
bekk í Heiðarskóla og segir hún
að hennar helsta áhugamál sé
fótbolti. Sylvía segir að hennar
helsti kostur sé hversu traust
manneskja hún er. Sylvía er
ungmenni vikunnar.
Hvert er skemmtilegasta fagið? Íþróttir,
heimilisfræði.
Hver í skólanum þínum er líklegur til
að verða frægur og hvers vegna? Ásdís
eða Kara útaf íþróttum.
skemmtilegasta saga úr skólanum: Reykir
og margt fleira.
Hver er fyndnastur í skólanum? Sara, Lína
eða Hjörtur.
Hvert er uppáhalds lagið þitt? Veit ekki
alveg, mörg lög mjög góð.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Píta og
kjúklingasalat.
Hver er uppáhalds bíómyndin þín?
Ég á enga uppáhalds bíómynd, horfi meira
á þætti og það væri örugglega Ginny and
Georgia.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér
á eyðieyju og hvers vegna? Símann minn,
fótbolta svo ég hafi eitthvað að gera og
mat svo ég gæti haldið mér á lífi.
Hver er þinn helsti kostur? Ég get sett mig
í spor annarra.
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að
vera með restina af ævinni, hvað myndir
þú velja? Lesa hugsanir.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Að vera traust/ur.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Fara í FS og halda áfram í fótboltanum.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Ég er traust.
En lítill hluti starfsfólks
hefur veikst ...
Bjargráð veitir ókeypis faglega aðstoð og sérúrræði fyrir fjölskyldur og aðstandendur fanga. Það getur
reynst erfitt fyrir foreldra, maka og börn að sitja eftir þegar einhver nákominn fer í fangelsi og því mikil-
vægt að fá aðstoð sem hentar þeim vel.
Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumarkaðs-
ráðuneytinu og er það þjóðkirkjan sem hefur styrkt
verkefnið með húsnæði. Bjargráð er fyrir fjölskyldur
þeirra sem bíða afplánunar, þeirra sem eru í afplánun
og þeirra sem komin eru út eftir afplánun. Aðstand-
endum stendur til boða að koma til okkar í Háteigs-
kirkju, þar sem við erum til húsa hjá Fjölskyldu- og
sálgæsluþjónustu kirkjunnar. Einnig erum við með
aðstöðu hér á Suðurnesjum, þjónustan sem við veitum
er ekki háð trú eða lífsskoðunum.
Stundum bíða einstaklingar lengi eftir að komast í
afplánun, jafnvel í heilt ár og það reynir á parasam-
band þeirra sem eru í slíku og það reynir líka á upp-
eldið ef börn eru á heimilinu.
Þegar fjölskyldumeðlimur brýtur af sér og lendir í
fangelsi þá situr fjölskyldan eftir heima með marg-
þætt áfall. Fjármál og afkoma fara oft í uppnám þegar
aðeins ein fyrirvinna verður eftir heima með börnin.
Stundum hafa börnin orðið vitni að handtöku á heim-
ilinu og þá þarf að vinna úr því.
Oft er lítið um svör fyrir aðstandendur í öllu ferlinu
og fólk upplifir sig í lausu lofti. Þegar börn eru inni í
myndinni geta verð vangaveltur um hvernig á að segja
þeim frá þessu öllu saman.
Við hvetjum þá aðila sem eru í þessum sporum að
hafa samband við okkur og fá aðstoð.
Hægt er að senda tölvupósta á:
Jenny.magnusdottir@kirkjan.is
og eirikur.steinarsson@kirkjan.is
Eða hringja: Jenný 7714966
og Eiríkur 8672450
Bjargráð – aðstoð við fjölskyldur
og aðstandendur fanga
Nafn: Léo Máni Quyen Nguyén.
Aldur: 18 ára.
Námsbraut: Fjölgreinabraut.
Áhugamál: Stjórnmál, íþróttir og græða pening.
Ungmenni vikunnar:
Nafn: Sylvía Rún Tryggvadóttir.
Aldur: 13 ára.
Skóli: Heiðarskóli.
Bekkur: 8. bekkur.
Áhugamál: Fótbolti.
14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM