Víkurfréttir - 01.03.2023, Blaðsíða 12
„Þessar íbúðir eru hugsaðar þeim tekjuminni, ef viðkomandi hækkar
í tekjum þá þýðir það ekki að honum eða henni sé hent út, leigan
hækkar þá bara,“ segir Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðs-
félags Grindavíkur.
Það var kátt á hjalla í Vestur-
hópi 61 í Grindavík mánudaginn
27. febrúar en þá afhenti Bjarg fast-
eignafélag, tíu leiguíbúðir og voru
íbúarnir að byrja koma sér fyrir
þegar blaðamaður mætti í heim-
sókn. Hörður Guðbrandsson, for-
maður Verkalýðsfélag Grindavíkur
hefur ýtt á eftir þessu í töluverðan
tíma og var glaður í bragði.
„Það er mikið ánægjuefni að
þessar íbúðir séu nú afhentar,
nánast algerlega á áætlun hvað
varðar tíma og kostnað. HH smíði
frá Grindavík byggði íbúðirnar og
ber að hrósa þeim fyrir að stand-
ast þær áætlanir sem gerðar voru
en fyrsta skóflustungan var tekin
í árslok 2021 og framkvæmdir
hófust í ársbyrjun 2022. Um er að
ræða tíu íbúðir; tvær tveggja her-
bergja, fjórar þriggja, tvær fjögurra
og tvær fimm herbergja íbúðir.
Bjarg fasteignafélag er óhagn-
aðardrifið fasteignafélag, stofnað
árið 2016. Fyrstu íbúðirnar voru
afhentar árið 2019 og í dag er búið
að byggja tæpar þúsund íbúðir vítt
og breytt um landið, flestar þó á
höfuðborgarsvæðinu. Þessar íbúðir
eru hugsaðar þeim tekjuminni og
þarf viðkomandi að vera búinn að
borga í stéttarfélag í sextán mánuði
af síðustu tuttugu og fjórum til að
koma til greina sem leigjandi. Ef
viðkomandi hækkar í tekjum þá
þýðir það ekki að honum eða henni
sé hent út, leigan hækkar þá bara.
Þetta form af búsetu tíðkast víðs-
vegar í kringum okkur á Norður-
löndunum og í Evrópu. Eðlilega
geta tekjulágir ekki lagt fyrir til
að eignast eigið húsnæði en svo er
þetta líka valkostur, hvers vegna
að vera leggja út fyrir eigin hús-
næði, þurfa að lenda í dýru viðhaldi
eða slíku, þú veist nákvæmlega
að hverju þú gengur. Þegar fjöl-
skyldan stækkar þá er möguleiki
á að komast úr minni íbúð yfir í
stærri, þetta hentar mjög mörgum.“
Óhagnaðardrifið leigufélag
Hörður fór yf ir hverjir eiga
Bjarg fasteignafélag og hvernig
það kom til að íbúðirnar voru að
rísa í Grindavík. „Það var ASÍ [Al-
þýðusamband Íslands] og BSRB
[Heildarsamtök stéttarfélaga
starfsmanna í almannaþjónustu]
sem stofnuðu Bjarg fasteignafélag
árið 2016 en þetta eru stærstu
hagsmunasamtök á almenna og
opinbera vinnumarkaðnum. Þetta
er óhagnaðardrifið leigufélag, mjög
góð viðbót við íbúðamarkaðinn hér
á Íslandi. Ég tók við formennsku
Verkalýðsfélags Grindavíkur árið
2018 og tók fljótlega sæti í full-
trúaráði Bjargs í gegnum ASÍ
og þar kviknaði hugmyndin að
þessum íbúðum hér í Grindavík.
Stjórn Verkalýðsfélagsins fjallaði
um þetta, við leituðum til bæjar-
yfirvalda sem tóku okkur mjög vel,
allir eru sammála um að þetta sé
gott verkefni og það er sannast hér
í dag,“ sagði Hörðum að lokum.
„Það er mjög margt spennandi í gangi hér í Grindavík og þótt aðal-
atvinnugreinin sé og muni líklega alltaf vera sjávarútvegur, þá eru
fjölmörg verkefni að spretta út frá honum, t.d. fyrirtækin Codland og
Marine Collagen,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðherra sem var með skrifstofu sína í Grindavík
síðasta fimmtudag.
Áslaug Arna tók upp þann sið
síðasta haust, að staðsetja skrif-
stofu sína vítt og breytt um landið.
Fimmtudaginn 23. febrúar var
röðin komin að Grindavík og voru
fjölmargir bæjarbúar sem heim-
sóttu hana á bæjarskrifstofuna í
Grindavík. Áslaug nýtti daginn
í Grindavík, heimsótti fjölmörg
fyrirtæki og fékk betri tilfinningu
fyrir því sem brennur á vörum
Grindvíkinga. „Þetta verkefni hófst
síðastliðið haust, ég fékk tækifæri á
að stofna nýtt ráðuneyti en ég held
að framtíðin í störfum sé þannig
að fólk geti tekið starfið með sér
þangað sem það vill. Margir sáu
tækifærin í heimsfaraldrinum, að
taka vinnuna með sér og þetta er
það sem koma skal held ég þar
sem það er hægt. Ég tel að það sé
mikilvægt gagnvart tækifærum á
landsbyggðinni að hafa aukinn
sveigjanleika og ríkið má ekki vera
eftirbátur í því, þess vegna ákvað ég
að ganga fram með góðu fordæmi
og prófa þetta sjálf líka, hingað til
hefur þetta gefið mjög góða raun.“
Ráðuneyti Áslaugar kemur að
starfsemi sem nánast er hægt að
finna í hvaða bæjarfélagi sem er
á Íslandi, hvort sem um iðnað
eða nýsköpun er að ræða og þótt
enginn háskóli sé á Suðurnesj-
unum eða hvað þá í Grindavík, þá
hefur hún fylgst með framgangi
Fisktækniskóla Íslands. „Það er
mikilvægt fyrir alla byggðaþróun
að átta sig á að sú útflutningsgrein
sem mun líklega stækka hvað mest
á komandi árum er ýmiss konar
iðnaður, eins og þekkinga- og
hugverkaiðnaður. Alþjóðageirinn
er vaxandi og forsenda þess að við
náum betri árangri, aukum út-
flutningstekjur okkar, náum upp
hagvexti og minnkum efnahags-
legar sveiflur, er að við höfum fleiri
stoðir í samfélaginu. Ég tel þessa
stoð nýsköpunar vera mjög væn-
lega til árangurs án þess að auð-
lindirnar hafi sveiflukennd áhrif
á greinina. Þótt Fisktækniskólinn
heyri ekki undir mitt ráðuneyti,
þá hef ég fylgst með stöðu mála og
veit um áskoranirnar sem skólinn
stendur frammi fyrir, t.d. varðandi
húsnæðismálin. Við eigum að
styðja við fjölbreyttari menntun
sem undirbýr fólk undir atvinnu-
lífið eins og þá sem Fisktækni-
skólinn gerir.“
Á s laug he imsótt i e innig
Grindina, Vigt, hjá Höllu og Brugg-
húsið 22.10. „Einstök upplifun að
sjá hvað skemmtileg uppbygging
verður í kringum hugmyndir fólks
á svæðinu byggða á sterkum grunni
eins og við sjáum með trésmiðjuna
Grindina. Einstakt handverk og
hönnun sem laðar að sér nýtt fólk
í samfélagið. Þá er ánægjulegt að
það sé gleði með brugghúsbreyt-
ingarnar um að geta selt beint frá
litlum aðilum,“ sagði hún.
Þetta eru ekki fyrstu kynni
Áslaugar af Grindavík sem ráð-
herra en hún gegndi stöðu dóms-
málaráðherra þegar jörð skalf í
Grindavík og upp frá því braust
út eldgos. „Það er gaman að koma
til Grindavíkur í öðrum erinda-
gjörðum en síðast þegar ég kom
en þá voru miklar áskoranir á sam-
félagið. Ég var í miklu sambandi
við Almannavarnir, mætti hingað á
íbúafund vegna yfirvofandi hættu
og var í sambandi við lögregluna
vegna þeirrar stöðu sem kom
upp. Núna eru tengslin önnur,
nær atvinnulífinu, framtíðar at-
vinnutækifærum og uppbyggingu,
nær fólkinu og sérstaklega unga
fólkinu. Ég er ekki frá því að ég
verði búin að kynnast Grindavík
og Grindvíkingum betur eftir þessi
ólíku embættisverk,“ sagði Áslaug
Arna að lokum.
Bæjarráð Grindavíkur leggur til
við bæjarstjórn að samþykkja
viðauka við fjárhagsáætlun
2023 að fjárhæð 1.140.000
vegna hjartastuðtækja á stofn-
unum bæjarins.
n Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var með skrifstofu sína í Grindavík í einn dag.
Margt spennandi í gangi í Grindavík
Tíu leiguíbúðir fyrir tekjuminni í Grindavík
n Byggðar fyrir Bjarg fasteignafélag á rétt rúmu ári. n Búsetuform sem er þekkt á Norðurlöndum og í Evrópu.
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Kaupa ferðaþjónustubíl
fyrir þjónustumiðstöð
Grindavíkurbæjar
Óskað hefur verið eftir viðauka
að upphæð 7,5 milljónum króna
til bæjarráðs Grindavíkur vegna
kaupa á bíl sem nýtist ferða-
þjónustu sem þjónustumiðstöð
Grindavíkurbæjar sinnir fyrir
félagsþjónustu- og fræðslusvið
sveitarfélagsins. Viðaukinn
verði fjármagnaður með
lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð hefur lagt til við
bæjarstjórn að samþykkja við-
aukabeiðnina.
Fá aukið stöðugildi
fyrir félagsþjónustu
Grindavíkur
Bæjarráð Grindavíkurbæjar
hefur samþykkt beiðni um
aukið stöðugildi í félagsþjón-
ustu Grindavíkurbæjar. Óskað
var eftir heimild til að ráða í
stöðugildi í barnavernd og fé-
lagsþjónustu hjá bæjarfélaginu.
Bæjarráð hefur falið sviðsstjóra
félagsþjónustu- og fræðslusviðs
að leggja fram viðaukabeiðni
fyrir bæjarstjórn.
Eins og kunnugt er af fréttum
mun álag á félagsþjónustu sveit-
arfélagsins aukast í kjölfar þess
að m.a. flóttafólk hefur fengið
aðsetur í Grindavík.
Hjartastuðtæki á
stofnunum Grindavíkur
Sigurbjörn Daði
Dagbjartsson stendur
vaktina fyrir Víkurfréttir í
Grindavík. Ef þú vilt koma
á framfæri efni eða ert með
ábendingu um áhugavert
efni sem á erindi við miðla
Víkurfrétta, þá endilega
hafðu samband
í gegnum póstfangið
sigurbjorn@vf.is
Hörður Guðbrandsson, formaður
Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Það er ekki amalegt útsýnið úr íbúðunum.
12 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM