Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 7
almannavarnir suðurnesja utan grindavíkur hafa farið yfir það ástand sem myndaðist í desember 2022 þegar óvenju mikil snjókoma setti samgöngur til og frá, og innan suðurnesja, svo mikið úr skorðum að bæði varð mikil röskun á flugi en ekki síður myndaðist alvarlegt ástand þar sem hvorki lögregla, slökkvilið né sjúkabílar komust á milli byggðarlaga. almannavarnarnefndin er sammála um að samþætta þurfi aðgerð sem þessa betur í framtíðinni en unnið hefur verið að úrbótum og margt af þeim komið til framkvæmda nú þegar. lögð verði áhersla á upplýsingamiðlun, aukið samráð og nýja samninga við verktaka. Umferð til og frá Sveitarfélaginu Vogum var lokuð í tvo sólarhringa Gunnar Axelsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga, greinir frá ástandi sem myndaðist í Vogum daganna 17.–20. desember og ályktun bæjarstjórnar sveitar- félagsins. Bæjarstjóri fóru yfir stöðu málsins en viðbrögð Vega- gerðarinnar voru góð til að byrja með í upphafi veðursins en verr gekk að ná sambandi við fulltrúa Vegagerðarinnar þegar á leið. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga taldi of mikla áherslu á að koma flugfarþegum til og frá Kefla- víkurflugvelli og ekki hefði verið horft til þess að umferð til og frá Sveitarfélaginu Vogum var lokuð í tvo sólarhringa. Það má því segja að almannavarnarástand hefði skapast. Bæjarstjórn Sveitar- félagsins Voga bókaði m.a. um málið. Einnig kom fram í máli bæjarstjórans að Vegagerðin væri ekki með nægjanlega góðan tækjakost til að halda vegum opnum. Auk þess að bæta mætti upplýsingagjöf til íbúa en mis- vísandi upplýsingar voru gefnar um opnum vega. Almannavarnarástand skapaðist í Suðurnesjabæ Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, greinir frá ástandi sem myndaðist í Suður- nesjabæ og ályktun bæjarstjórnar. Bæjarráð Suðurnesjabæjar ályktaði um að almannavarnar- ástand hefði skapast í Suðurnes- jabæ, jafnframt var óskað eftir því að málið yrði tekið upp hjá Almannavarnarnefnd Suður- nesja utan Grindavíkur. Suður- nesjabær var einangraður í fjóra sólarhringa. Senda þyrfti snjó- moksturstæki á undan sjúkrabíl og er ljóst að Brunavarnir Suður- nesja hefðu ekki komist í útkall með góðu móti. Moksturstæki frá Vegagerðinni voru ekki á ferðinni í rúma tvo sólarhringa og notað sveitarfélagið eigin tæki til þess að moka vegi sem voru á ábyrgð Vegagerðarinnar. Bæjarstjóri ítrekaði mikilvægi þess að koma réttum upplýsingum á framfæri en ákveðin upplýsingaóreiða hefði verið í gangi. Bæta þarf samvinnu og samskipti á milli allra aðila Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykja- nesbæjar, greindi á fundinum frá ástandinu sem myndaðist í Reykjanesbæ/Höfnum og til- lögum sem hann sendi nefndinni sem skipuð var til að fara yfir málið. Aðstæður sem sköpuðust voru sérstakar sökum þess hversu mikið snjóaði. Auk þess að vera ófært út í Hafnir var ástandið verst á Ásbrú og í Innri-Njarðvík. Þar búa einnig margir starfsmenn sem vinna á Keflavíkurflugvelli og áttu þeir erfitt með að komast til vinnu. Reykjanesbær aðstoðaði Vegagerðina við snjómokstur með því að útvega tæki. Guðlaugur telur mikilvægt að fara fyrr af stað í mokstur. Í máli hans kom fram að bæta þyrfti samvinnu og samskipti á milli allra aðila í framtíðinni til þess að koma í veg fyrir að þessar aðstæður skapist aftur. Skoða þarf hvort hægt sé að tryggja leið starfsmanna innan flugvallarins um Ásbrú í gegnum Silfurhlið, sem er þjón- ustuhlið við austurhlað flugvall- arins, hafa rútuferðir innan vallar og útbúa varabílastæði. Einnig þurfi að skoða hvort að taka þurfi upp harða lokun á helstu stofnbrautum, t.d. á Reykjanes- brautinni. Atburðurinn hafi mikil áhrif á alla aðila Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia, fór yfir rýni vegna rekstrarskerðingar hjá Isavia daganna 17.–19. desember 2022. Alls voru 1.500 manns veðurtepptir í flugstöðinni þessa daga. Flugstöðin var á tíma- bili farin að gegna hlutverki fjöldahjálparstöðvar. Rýming hennar hófst um kl. 16:20 þann 19. desember en alls fóru 29 rútur til höfuðborgarinnar og lauk flutningum um kl. 01:00. Alls ákváðu 350 manns að verða eftir í flugstöðinni að eigin ósk. Isavia ákvað að setja af stað rýnikönnun sem gerð var raf- rænt en talið var mikilvægt að gera hana meðan atburðurinn var ferskur í huga fólks. Ljóst er að atburðurinn hafði mikil áhrif á alla aðila. Rýnifundir voru einnig með hagaðilum og ytri aðilum 10.–12. janúar 2023. Niðurstöður Isavia voru m.a. að ekki náðust öll markmið. Bæta þarf aðbúnað í húsinu með viðbúnaðarbrettum fyrir grunn- þarfir. Skoða þarf mannvirki með til- liti til kulda og aðbúnaðar. Teknar voru réttar ákvarðanir um að flytja fólk í burtu, það var gert á réttum tíma en tók of langan tíma. Starfsfólk Isavia var með rétt hugarfar, allir hjálpuðust að í krefjandi aðstæðum. Þjón- ustuaðilar og flugfélög voru lítið til staðar bæði á gólfi og svo til samráðs og samhæfingar. Samráð virkaði ágætlega í aðdraganda en afleiðingar veðurs voru ekki fyrirséðar. Það vantar betri verk- færi til samhæfingar og skjölunar, s.s. aðgerðagrunn, ferilvöktun á fólki, samræmd fjarskipti – SMS. Upplýsingamiðlun var ábótavant hjá öllum. Það þarf samræmdari nálgun í upplýsingagjöf. Bæta þarf kallkerfi og upplýsingaskjá. Þá voru ytri miðlar Isavia van- nýttir. Ámælisvert að ekki var lögð meiri áhersla á að opna akstursleiðir Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, fór yfir málið frá sjónarhóli B.S. Hann telur ámælisvert að ekki hafi verið lögð meiri áhersla á að opna akstursleiðir á milli allra byggðar- kjarna Suðurnesjum. Stofnleiðir á Suðurnesjum voru ófærar að öllu leyti og hvetur Vegagerðina til þess að endurskoða alla verkferla hjá sér. Reykjanesbraut beinlínis hættuleg Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði að allar aðgerðir lögreglunnar miðuðust að því að tryggja öryggi íbúa á svæðinu. Hann lagði áherslur á að samskipti allra aðila séu góð og hreinskiptin. Dæmi um það voru t.d. bílastæðin við Flugstöð Leifs Eiríkssonar en þau voru ekki til- búin til að taka við umferð þegar opnað var fyrir akstur um Reykja- nesbrautina að nýju. Jafnframt ítrekaði hann að Reykjanes- brautin væri beinlínis hættuleg í fleiri aðstæðum en þarna skap- aðist, t.d. í rigningu. Ósæmileg viðbrögð almennra borgara Arnar Steinn Elísson, svæðis- stjórnandi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, sagði að alls hafi verið skráðar 650 hjálparbeiðnir í kerfið hjá aðgerðastjórn. Björgunarsveitir á Suðurnesjum aðstoðuðu við lokun Reykjanes- brautarinnar. Í máli hans kom fram að ein björgunarsveit á Suðurnesjum hefur sagt sig frá verkefni sem þessu, vegna ósæmi- legra viðbragða almenna borgara. Búið er að setja upp verkferla með Heilbrigðisstofnun Suður- nesja um að koma starfsmönnum til og frá vinnu sem og aðstoða við heimahjúkrun. Lagt er til að betra samráð verði í framtíðinni hjá öllum aðilum sem koma að úr- lausn í verkefni sem þessu. Hann telur mikilvægt að hljóð og mynd fari saman þegar aðstæður sem þessar skapast. Vegagerðin endurskoðar verkferla Fulltrúi Vegagerðarinnar, Árni Gísli Árnason, fór yfir fram- komnar úrbótatillögur starfs- hópsins vegna lokunar Reykja- nesbrautarinnar. Starfshópurinn skoðaði lokun brautarinnar 19.– 20. desember 2023. Niðurstöð- urnar hópsins voru að ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir að Reykjanesbrautin lokaðist. Stytta hefði mátt lokunartímann. Miðla hefði mátt betur/örar upplýs- ingum til almennings. Miðla hefði mátt betur/meiri upplýsingum til samhæfingarstöðvar Almanna- varna. Vegagerðin hefur rýnt vel það sem vel gekk og einnig það sem betur hefði mátt gera. Verið er að endurskoða verkferla og Vega- gerðin hefur lokið við að gera þarfagreiningu. Ljóst er að útibú Vegagerðarinnar í Garðabæ var ekki nægjanlega vel búið fjöl- breyttum tækjum. Vegagerðin leggur áherslu á gott samstarf á milli aðila og ítrekar að ekki hefði verið hægt að opna leiðina upp í flugstöð á þessum dögum nema með aðstoð frá Reykjanesbæ og Isavia. Unnið hefur verið að úrbótum og margt af þeim komið til framkvæmda nú þegar. Lögð verði áhersla á upplýsingamiðlun, aukið samráð og nýja samninga við verktaka. Stærri umbótaverkefni hafa verið skilgreind og hvað þarf að vera til staðar til þess að vera betur í stakk búin að takast á við svona aðstæður aftur (tæki, búnaður, lokanir og fleira). Mörg af þeim verkefnum kalla á aukið fjármagn. Vegagerðin er í sífellu að meta hvernig hægt sé að gera hlutina betur – óveður sem þetta mun koma aftur. Almannavarnarnefndin er sam- mála um að samþætta þurfi aðgerð sem þessa betur í framtíð- inni. Lagt er til að allir lykilaðilar sveitarfélaganna, lögreglunnar, Isavia, Vegagerðarinnar og Bruna- varna Suðurnesja fundi sameigin- lega, t.d. í gegnum TEAMS, í að- stæðum sem þessum. Bæta þarf aðbúnað í flugstöð- inni í almannavarnaástandi Ítarlega farið yfir ástandið sem skapaðist í desemberóveðrinu á fundi Almannavarna Suðurnesja utan Grindavíkur Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Skaflarnir í Sandgerði voru margra metra háir. Mynd: Svanur Kristjánsson Mikill mannfjöldi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar óveður og ófærð skullu á þann 17. desember í fyrra. VF/pket vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.