Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 14
Skoruðu níu mörk í Skotlandi
Íslandsmeistarar sameiginlegs liðs Kefla-
víkur og Víðis léku Evrópuleik gegn Raith
Rovers í Skotlandi um síðastliðna helgi.
Um var að ræða vináttuleik sem leikinn
var til styrktar Andy’s Mens Club í Skot-
landi en það eru samtök gegn sjálfsvígum
karlmanna.
Leikið var á heimavelli Raith
Rovers, Stark´s Park, en völl-
urinn tekur 8.000 manns í sæti.
Keflavík/Víðir hafa unnið Íslands-
meistaratitilinn í eldri flokki síðast-
liðin þrjú ár og er margar gamlar
kempur að finna í liðinu. Byrjunar-
liðið skipuðu: Ingvar Georgsson í
marki, Bjarki Már Árnason, Einar
Daníelsson, Davíð Arthur, Björn
Vilhelmsson, Karl Finnbogason,
Gunnar Oddsson, Zoran Ljubicic,
Haraldur Axel Einarsson, Magnús
Ólafsson og Ragnar Aron Ragn-
arsson. Á bekknum voru Víðir
Finnbogason, Andrzej Boguniecki,
Margeir Vilhjálmsson, Hörður
Sveinsson, Björgvin Björgvinsson,
Dr. Vignir Helgason og Björgvin
Ívar Baldursson. Liðsstjóri var Atli
Vilhelmsson.
Leikurinn hófst fjörlega og eftir
fimm mínútur voru bæði Magnús
og Ragnar búnir að fara illa með
góð færi. Magnús opnaði svo
markareikninginn með góðum
skalla eftir frábæra sendingu frá
Andrzej um miðjan fyrri hálfleik.
Stuttu síðar tók Davíð Arthur frá-
bærlega á móti boltanum inni í teig
og skoraði 2:0 og yfirburðir Kefla-
víkur/Víðis voru algerir. Heima-
menn áttu varla skot á mark.
Eitthvað þótti mönnum staðan
þægileg og stundargleymska í
varnarleiknum endaði með sjálfs-
marki með skalla og staðan orðin
2:1. Yfirburðinir í sóknarleiknum
héldu áfram en næsta mark kom
með glæsilegum flugskalla frá
prófessor Vigni Helgasyni sem er
búsettur í Glasgow. Undirbúning-
urinn var allur í höndum Zoran
Ljubicic sem fór mjög í taugarnar
á heimamönnum, sérstaklega eftir
að hafa klobbað þá í nánast hvert
skipti sem hann fékk boltann. Upp-
skar það mikil innanliðsrifrildi
meðal Skotanna. 3:1 var staðan í
hálfleik og voru þá gerðar miklar
skiptingar í liði Keflavíkur/Víðis.
Raith Rovers byrjuðu seinni hálf-
leikinn á að minnka muninn í 3:2
með öðru sjálfsmarki Keflavíkur/
Víðis, aftur með skalla. Mörkin í
leiknum orðin fimm og öll skoruð
af sama liðinu. Björn Vilhelmsson
fór inn á miðjuna og náði mikilli
ró á varnarleikinn og sóknar-
þungi Keflavíkur/Víðis jókst enn.
Magnús Ólafsson breytti stöðunni
í 4:2 eftir stoðsendingu frá Mar-
geiri Vilhjálmssyni og Margeir
bætti sjálfur í 5:2 eftir frábæra
stungusendingu frá Haraldi Axel.
Magnús fullkomnaði svo þrennu
sína stuttu síðar og staðan orðin
6:2. Allt leit út fyrir að það yrðu
lokatölur þegar þriðja sjálfs-
markið leit dagsins ljós eftir að
markvörðurinn Ingvar blindaðist
af flóðljósunum. 6:3 urðu loka-
tölur. Fáheyrt verður að teljast að
íslenskt lið skori níu mörk í Evr-
ópuleik og enn merkilegra að þrjú
þeirra endi í eigin marki. Öruggur
sigur hjá Íslandsmeisturunum í
þessum leik. Magnús Ólafsson var
kjörinn maður leiksins eftir frá-
bæra frammistöðu í sókninni en
það þótti vega þyngra en frábær
frammistaða Einars Daníelssonar
í vörninni en hann var eini varnar-
maðurinn sem ekki skoraði sjálfs-
mark.
Gestrisni Skotanna var til
mikillar fyrirmyndar og leik-
urinn, undir stjórn og skipulagi
Íslandsvinarins Marc Boal, var
mikil skemmtun fyrir á áttunda
hundrað áhorfendur sem mættu til
að fylgjast með stórskemmtilegum
knattspyrnuleik.
Umhverfismat framkvæmda
Umhverfismatsskýrsla í kynningu
Stækkun Keflavíkurflugvallar
Isavia hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats
stækkunar Keflavíkurflugvallar.
Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd
og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar á bæjarskrifstofum
Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni
7b frá 15. mars til 2. maí 2023. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á
vefsíðu stofnunarinnar: www.skipulag.is.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt
fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2.
maí 2023 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með
tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Vakin er athygli á að Isavia stendur fyrir opnum kynningarfundi fyrir
almenning í Stapa í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl
klukkan 20:00.
Fáheyrt verður að teljast
að íslenskt lið skori níu
mörk í Evrópuleik og enn
merkilegra að þrjú þeirra endi
í eigin marki ...
Magnús Ólafsson var kjörinn
maður leiksins eftir frábæra
frammistöðu í sókninni.
sport