Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 16
Mundi Þetta var sem sagt ekki hita-fundur í bæjarstjórn! Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð. Framtíðarstarf fyrir traustan aðila JAFNLAUNAVOTTUN 2022–2025 Hæfniskröfur: • Ábyrgð og samviskusemi • Gott vald á íslensku • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Snyrtimennska og reglusemi • Jákvæðni, dugnaður, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Reynsla af verslunarstörfum, stjórnun eða rekstri er æskileg Verslunarstjóri á Fitjum Helstu verkefni: Verslunarstjóri er daglegur stjórnandi þjónustustöðvar og ber ábyrgð á öllu sem viðkemur daglegum rekstri. Hann er leiðtogi sem sem leitast við að öll samskipti á stöðinni séu góð. Verslunarstjórinn er góð fyrirmynd, jákvæður, heiðarlegur, þjónustulundaður og úrræðagóður. Verslunarstjóri er til staðar fyrir starfsfólkið sitt og leysir úr þeim vandamálum sem upp kunna að koma. Olís undirbýr opnun nýrrar og glæsilegrar þjónustustöðvar á Fitjum í Reykjanesbæ og við auglýsum eftir verslunarstjóra. Á stöðinni verða bæði Grill 66 og Lemon mini. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðvarinnar og vinnur með samhentum hópi starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 26. mars. Umsóknir berist til mannauðsstjóra, rbg@olis.is, merktar „Verslunarstjóri“. Þó svo að veðrið síðustu daga bendi ekki beint til þess þá er heldur betur að vora. Létt geggjun að segja þetta þegar hvöss norða- náttin lemur á manni og frostið er nálægt tveggja stafa tölu! Fyrsti alvöru vorboðinn í mínum bókum er Nettómótið í körfubolta sem fer fram í byrjun mars. Njarðvík- ingar og Keflvíkingar geta verið afar stoltir af þeim magnaða við- burði þar sem þúsundir manna sækja okkur heim á eitt flottasta íþróttamót landsins. Seinni vor- boðinn að mínu mati er úrslita- keppnin í körfunni. Núna eru rétt rúmlega tvær vikur í að hún hefjist og fáeinir deildarleikir eru eftir. Endaspretturinn í deildinni verður mikilvægur og spennandi enda öll liðin okkar hérna í bæjarfélaginu í toppbaráttu. Karlalið Njarðvíkur er í öðru sæti, kvennaliðið í því fjórða og þá tróna Keflavíkurkonur á toppnum sem stendur. Þá er kar- lalið Keflavíkur í þriðja sæti þrátt fyrir að einhverjir tali eins og liðið sé í fallsæti. Þarna þurfa menn heldur betur á stuðningi að halda! Á bak við öll þessi lið starfar her sjálfboðaliða sem heldur betur gerir kraftaverk enda rekstur deild- anna afar krefjandi. Núna þegar styttist í annan enda tímabilsins þá treysta liðin á stuðningsmenn sína sem aldrei fyrr. Það er gríðar- lega mikilvægt að fólk stígi upp úr sófanum og mæti á völlinn enda hvergi betra að vera á þessum árs- tíma. Liðin þurfa á stuðningi ykkar að halda og hver einasta króna skiptir máli. Nú hafa t.d. grillin verið dregin fram og því hægt að sleppa að elda og gæða sér á góm- sætum hamborgara og drekka svo í sig stemmninguna á vellinum. Grillaður börger frá einhverju 80’s legend, klikkar ekki. Mikið fjör er núna framundan og það er alls ekki sjálfgefið að halda úti fjórum frá- bærum liðum í bæjarfélaginu og þá er ég bara að tala um körfuna. Slíkt kostar blóð svita og tár. Það verður bjartara og mun léttara yfir öllu þegar úrslitakeppnin í körfunni nálgast og skemmtilegasti tími ársins að margra mati. Ætla því að hvetja fólk til þess að fjölmenna á völlinn, sýna stuðning sinn í verki og njóta leiksins. Reykjanesbær er Mekka körfuboltans, Njarðvík kvenna eru Íslandsmeistarar og við viljum fleiri titla hingað í vor. Möguleikarnir eru til staðar og það eru mun meiri líkur á góðu gengi þegar húsin eru smekkfull og stemmningin góð. Þetta starf er langt frá því að vera auðvelt, sjáum bara stórveldið KR sem spilar í 1. deild á næsta tímabili með bæði sín lið. Eflaust hefur hlakkað í mörgum hérna fyrir sunnan en manni finnst það í raun bara sorg- legt. Hlutirnir gerast ekki að sjálfu sér og allt kostar þetta mikla vinnu, stuðningsmenn eru mikilvægasti hlekkurinn. Upp með sokkana, allir á völlinn! ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON Vorboðinn Njarðvíkingar hömpuðu Íslandsmeistarartitli kvenna á síðustu leiktíð. VF/JPK Safnahelgi á Suðurnesjum Hrollkaldur fundur hjá bæjarstjórn Hrollkaldur fundur var haldinn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar þriðjudaginn 7. mars síðast- liðinn. Bæjarstjórn fundar í Merkinesi í Hljóma- höll og í fimbulkulda síðustu daga féll hitastigið í fundarsal bæjarstjórnarinnar meira en margir bæjarfulltrúar réðu við. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, forseti bæjar- stjórnar, veitti því bæjarfulltrúum leyfi til að klæðast yfirhöfnum á meðan fundinum stóð. Í upptökum frá fundinum má sjá hvern bæjar- fulltrúann á fætur öðrum koma kappklæddan í pontu. Kaldasti bæjarfulltrúinn var þó án efa Trausti Arngrímsson sem í miðri ræðu varð að fá lánaða leðurhanska bæjarstjórans til að frjósa hreinlega ekki í hel við ræðuhöldin. Myndin er skjáskot úr útsendingu fá fund- inum á Youtube-rás Reykjanesbæjar. Safnahelgi á Suðurnesjum verður loks haldin á ný um næstu helgi, 18. og 19. mars, eftir nokk- urra ára hlé vegna Covid. Það er ávallt mikil gleði sem fylgir þessari helgi, þar sem s ö f n , s e t u r og sýningar á Suðurnesjum taka sig saman og opna dyrnar sínar fyrir íbúum og gestum svæðisins. Markmiðið er að kynna þau fjölbreyttu verk- efni sem unnið er að allt árið og þá grósku sem fylgir menn- ingarstarfi á hinum ýmsu starfs- stöðvum víðs vegar um svæðið. Safnahelgi á Suðurnesjum er sam- eiginlegt verkefni allra safna, sýn- inga og setra á Suðurnesjum sem liður í því að kynna menningu á heilu landssvæði fyrir lands- mönnum öllum og hefur það tekist vel með aukinni aðsókn árlega auk þess sem Safnahelgi hefur fest sig í sessi í svo langan tíma eins og raun ber vitni. Safnahelgin í ár er uppfull af fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum fyrir fjölskylduna um allan Reykjanesskagann. Á meðal þess sem boðið er upp á í ár eru tónlistaruppákomur, bókakynn- ingar, kvikmyndasýningar, einka- söfn og sýningar opna fyrir gesti, Skessan í hellinum tekur á móti gestum eftir smá hlé, víkingasýning og sölubásar, ævintýraveröld í Þekkingarsetrinu og listasmiðja í Duus-húsum. Svo er tilvalið fyrir fjölskylduna alla að taka rúnt um Suðurnesin og taka þátt í ratleik sem settur hefur verið upp í tilefni helgarinnar. Inn á vefsíðu Safnahelgar á Suð- urnesjum, safnahelgi.is má finna alla dagskrá helgarinnar, auk upp- lýsinga um þau söfn og sýningar sem taka þátt í ár.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.