Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Blaðsíða 5
Nr. 1
Reykjavík
1939
Lög um bókhald.
1. gr. — Bókhaldsskyldir eru allir þeir, sem taldir eru í
2. gr. þessara laga, með þeim undantekningum, sem um getur
í 3. gr.
2. gr. —
1. Kaupmenn, en kaupmaður er hver sá talinn í þessum
lögum, sem hefir atvinnu af því að selja vörur, verðbréf
og hverskonar lausafé eða fasteignir, sem hann hefir í
því skyni keypt.
2. Hlutafélög öll, kaupfélög, pöntunarfélög og önnur sam-
vinnufélög.
3. Bankar, sparisjóðir, víxlarar og vátryggingarfélög.
4. Umboðssalar, farandsalar, mat-, gisti- og veitingasalar,
brytar, lyfsalar, forleggjarar, blaðaútgefendur.
5. Þeir, sem reka iðn eða iðju, þar með talið lýsis- og síld-
arbræðslur, þvotta- og baðhús, rjómabú, íshús, vatns- og
rafmagnsveitur.
6. Þeir, sem reka útgerð til fiskveiða, mann- og vöruflutn-
inga og fiskverkun.
7. Vöru- og skipamiðlarar, afgreiðslumenn skipa og þeir,
sem hafa atvinnu af að geyma vörur fyrir aðra.