Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Blaðsíða 11

Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Blaðsíða 11
11 15. gr. — Allar þær bækur, sem fyrirskipaðar eru með lög- um þessum, ásamt fylgiskjölum, svo og bréf þau og sím- skeyti, samrit bréfa og símskeyta, sem um ræðir í næstu grein hér á undan, séu geymdar í 10 ár frá þvi síðast er ritað í bækumar, og bréfin eða símskeytin móttekin eða send. 16. gr. — Nú er skuldar krafist innan þriggja missira frá því er hún varð til, og skal þá það, sem skráð er í bækur þær, sem fyrirskipaðar eru með lögum þessum, hafa það sönn- unargildi, ef bækurnar eru vel og skipulega ritaðar, og engin atvik liggja til, þau er gera bókunina grunsama, að álíta skal það rétt, er í þeim stendur, ef aðili sá, er í hlut á, vill eigi synja fyrir með eiði, að rétt sé bókað. Nú er hann dauður, eða hann getur ekki eiðinn unnið sakir vitfirringar eða þvi- umlíks, og má þá, ef engin atvik liggja svo til, að þau geri það ísjárvert, dæma eiganda eða umráðamanni fyrirtækisins heimilt að sanna sitt mál með eiði sínum, eða eiði þess manns, er í bækumar hafði ritað það, er um var þrætt. Að þeim fresti liðnum, sem að ofan er nefndur, missa bæk- ur þær, sem fyrirskipaðar em með lögum þessum, það sér- staka sönnunargildi, er þeim er veitt samkvæmt þessari grein, þó aðeins gagnvart skiptavinum, sem sjálfir eru ekki bók- haldsskyldir; en í viðskiptum milli bókhaldsskyldra halda bækumar gildi sínu án tillits til frests þess, er að framan var nefndur. Nú em báðir málsaðiljar bókhaldsskyldir, og stendur sín innfærsla um sama efnið í bókum hvors um sig, en ber eigi saman, þá hefir hvorug innfærslan sérstakt sönnunargildi. 17. gr. — Sé að áliti lögreglustjóra ástæða til að ætla, að einhver hlíti eigi ákvæðum þessara laga um bókhald, er honum heimilt að rannsaka eða láta rannsaka bókhald hlut- aðeiganda, og reynist bókhaldið eigi lögum þessum samkvæmt, má ákveða hlutaðeiganda dagsektir, allt að kr. 25.00, unz hann hefir komið því í lag. 18. gr. — Brot gegn 5. gr. varðar sektum, kr. 5.00—200.00.

x

Handbók fyrir hvern mann

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Handbók fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/1786

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.