Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Blaðsíða 12
12
19. gr. — Brot gegn 4. gr. og 6.—10. gr. varðar sektum, kr.
10.00—1000.00. Kveði svo mikið að brotinu gegn greinum
þessum, að bókfærslan geti bersýnilega ekki náð tilgangi
sínum, þannig að eigi sjáist, hversu rekstur fyrirtækisins
gengur, hvemig efnum þess er varið eða hvemig hagur at-
vinnurekandans stendur, varðar það auk sekta missi atvinnu-
rekstrarleyfis eða stöðvun atvinnurekstrar um stundarsakir
eða til fulls eftir atvikum.
20. gr. — Brot gegn 1. og 12.—15. gr. varða sektum sam-
kvæmt 19. gr. Sé um fölsun verzlunarbóka að ræða, eða geri
einhver í sviksamlegum tilgangi rangan efnahagsreikning,
eða eyðileggi eða skjóti undan bókum þeim og skjölum, sem
um getur í 14. og 15. gr., varðar það fangelsi, eða betmnar-
húsvinnu, allt að tveimur árum, ef miklar sakir em.
21. gr. — Fara skal með mál út af brotum á lögum þessum
og reglum sem almenn lögreglumál.
22. gr. — Numin em úr gildi með þessum lögum lög nr.
53 11. júlí 1911, um verzlunarbækur, og öll þau lagaákvæði,
sem koma í bág við þessi lög.
23. gr. — Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1939.
Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur sér að hegða.