Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 2
Verslun N1 Friðarhöfn, Vestmannaeyjum, 481-1127 ALLA LEIÐ Skoðaðu fleiri tilboð í vefverslun okkar Handþvottakrem Manista 3 lítra handþvottakrem. Mest selda handþvottakrem á Íslandi í mörg ár. Tork pappírsrúlla Hvít pappírsrúlla með kjarna, 510 m 2f. Tork gólfstatíf Gólfstatíf á hjólum, fyrir stórar rúllur. Hægt að fá ruslastand sem aukahlut á stand. Sópsett Hvítt sópsett með löngu skafti, hentar vel við hvers konar þrif. Sótthreinsistandur Gólfstandur fyrir handsótthreinsi. Hentar vel á vinnustaði og í önnur opin rými. Regnjakki og regnbuxur Regnjakki og regnbuxur, EN471 vottuð samkvæmt sýnileikastaðli. 320 gr. Litur: Gulur og appelsínugulur. Stærðir: S-3XL. Tilboð í apríl Það hefur sett svip sinn á bæjarbraginn þegar skemmti- ferðaskip liggja við bryggju í Vestmannaeyjum. Stöðug aukning hefur verið í komum skemmtiferðaskipa síðustu ár í aðdraganda heimsfaraldursins og nú er svo komið að skipin eru farin að skipta verulegu máli varðandi rekstur Vest- mannaeyjahafnar. Alls voru 90 skip bókuð til Vestmannaeyja fyrir sumarið 2020 en niður- staðan varð fimm skipakomur allar seinnipart sumars. Dóra Björk Gunnarsdóttir hafnarstjóri sagði í samtali við Eyjafréttir að 85 væru skip bókuð til Vestmannaeyja í sumar en þegar mest var voru þau 96 talsins. Dóra segir frekar eiga von á því að af bókunum komi til með að fjölga eitthvað. Fluttar voru fréttir af því í liðinni viku að von væri á skemmtiferðaskipum til land- sins með bólusetta farþega og af bókanir hjá stóru höfnunum væru færri en á sama tíma fyrir ári síðan. Dóra segir of snemmt að segja til um það hvort von sé á farþegum hingað gegn því að framvísa mótefna- eða bólusetningarvottorðum. Erfitt sé að segja til um það hvaða sóttvarnarreglur verði í gildi í sumar. Varðandi sumarið 2022 segir Dóra bókanir fara vel af stað og nú þegar séu 64 skip bókuð til Vestmannaeyja. Nýjar reglur um sóttvarnir taka gildi í dag. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólas- tigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag og eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar í dag. Gert er ráð fyrir að þær gildi í 3 vikur. Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að frá því að aðgerðir á landamærum voru hertar síðast, m.a. með kröfu um sýnatöku hjá börnum og ferðamönnum með vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu og auknu eftirliti með þeim sem dveljast í sóttkví eða einangrun, hafi daglegum smitum fækkað. Þannig hafi tekist að koma í veg fyrir stærri hópsýkingu eða útbreiðslu smita. Sóttvarnalæknir bendir þó á að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr sam- félaginu. Áfram þurfi að viðhafa fyllstu aðgát vegna mikillar útbreiðslu í nálægum löndum og nýrra afbrigða veirunnar. Ýtrasta varkárni á landamærunum sé lykillinn á tilslökunum innanlands. Staðan á sjúkrahúsum er góð, aðeins einn sjúklingur er inniliggjandi með COVID-19 og búið er að bólusetja langt yfir 90% þeirra sem eru 70 ára og eldri líkt og sóttvarnalæknir bendir á en hann leggur þó áherslu á að fara beri hægt í að aflétta takmörkunum meðan verið sá að ná góðum tökum á smitum á landamærum og fjölga í hópi bólusettra. Skemmtiferðaskip boða forföll Úr 10 í 20 manns Víðtækar tilslakanir innanlands Mergur málsins? Nói, sjálfur, Síríus hefur ekki viljað gefa upp hvaða málsháttur var settur í páskaegg Páls Magnússonar þetta árið. En það var nefnilega á páskadag sem hann dró til baka tveggja mánaða gamalt framboð sitt til endurkjörs Alþingis. Kunnugt skipar Páll oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í tilkynningu segir að ákvörðun hafi í raun verið tekin um áramót en tíminn hafi svo leitt þessa endanlegu niðurstöðu í ljós. Á þessum mánuðum virðist samt lítið annað breyst í samfélaginu en að tíu manna jólakúlur samkomu- takmarkana stjórnvalda breyttust í tíu manna páskahreiður, eða eitt- hvað þess háttar. Því pískra margir yfir þessum pælingum Páls. Páll segir áhugann, fyrir störfum Alþingis og þjónustu samfélag- sins, hafa dofnað og neistinn kulnað. Hvergi kemur það þó fram hvort að niðurstaða í nýlegri keyptri vinsældakönnun, sem fjallað hefur verið um áður, hafi gert útslagið við ákvörðunar- tökuna. Eldmóður fyrri stuðnings- manna hafi hugsanlega ekki lengur verið til staðar og fáir til þess að blása lífi í glæðurnar. Honum hefur þótt erfitt úr öskunni að rísa. Tilkynningin um þessa margra mánaða niðurstöðu barst aðeins nokkrum dögum áður en fram- boðsfrestur prófkjörsins rann sitt skeið. Rausnarlega gaf hann þannig mögulega nýjum einstaklingum skamman tíma til þess að sækjast eftir, nú auðu, oddvitasætinu. Þó höfðu vissulega tveir frambjóðendur þegar gert slíðrin klár og skorað þing- manninn á hólm. En einn síns liðs á vígvellinum hefur hann nú varnarlaus hörfað. Í kaffiskúrum heyrast ýmsar get- gátur um málsháttinn alræmda sem fældi Pál aftur undir feld þann dag sem Jesús reis úr rekkju. Líklegastir þykja „Af vondu leðri gerast ei góðir skór“, „Þekkist hver af sínum verkum“ og „Upp komast svik um síðir“. SKÚRINN Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549. Ritstjórn og ábyrgð: Sindri Ólafsson og Margrét Rós Ingólfsdóttir - sindri@eyjafrettir.is - margret@eyjafrettir.is. Umbrot: Kristinn Pálsson. Blaðamenn: Salka Sól Örvarsdóttir. Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Björgunarfélag Vestmannaeyja hlaut nýverið ríkulegan styrk frá Kvenfélaginu Heimaey en félagskonur færðu Björgunar- félaginu 300.000 krónur að gjöf. Styrkir sem þessir koma félaginu vel við kaup á búnaði og þjálfun félagsmanna. Björgunarfélag Vestmannaeyja færir Kvenfélaginu Heimaey þakkir fyrir gjöfina og hlýhug sem félagskonur sýna félaginu með gjöfinni. Kvenfélagið Heimaey styrkir Björgunarfélag Vestmannaeyja Skemmtiferðaskipum hefur fjölgað mikið á síðustu árum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.