Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Page 10
10 | | 15. apríl 2021
Klumban er matarmikill hluti þorsksins sem hingað til hefur verið vannýttur.
Jarl Sigurgeirsson
skólastjóri Tónlistaskólans
í Vestmannaeyjum hefur
gefið kost á sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á
suðurlandi sem fyrirhugað
er 29. maí næstkomandi.
Jarl setur stefnuna á 4.
sæti listans og segist
spenntur fyrir verkefninu.
Jarl er Eyjamaðurinn í blaði
Eyjafrétta að þessu sinni.
Nafn: Jarl Sigurgeirsson
Fæðingardagur: 03.11.1967
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar
Fjölskylda: Í sambúð með
Sigurveigu Steinarsdóttur frá
Þingeyri við Dýrafjörð. Á fimm
börn á aldrinum 10-33 ára.
Gísla Val, Ísak Mána, Lúkas
Elí, Steineyju Örnu og Lovísu
Ingibjörgu. Þrjú tengdabörn og
4 barnabörn. Foreldrar mínir eru
Sigurgeir Jónsson frá Þorlaugar-
gerði og Katrín Magnúsdóttir frá
Ketilsstöðum í Hvammssveit.
Uppáhalds vefsíða: Eyjafrettir.is,
guitarparty.com
Aðaláhugamál: Tónlist, fjölskylda
og vinir, pólitík, torfærumótorhjól,
karate og önnur hreyfing.
Uppáhalds app: Onsong, spotify
Uppáhalds hlaðvarp: „Í ljósi
sögunnar“ finnst mér gott
Uppáhalds matur: Gott kjöt
Versti matur: Hef einu sinni
fengið vondan mat. Það var sigin
grásleppa. Líklega hefur hún
verið eitthvað skemmd.
Hvað óttastu: Að eitthvað hendi
mína nánustu.
Mottó í lífinu: Það er of seint að
lifa lífinu þegar það er búið.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég væri til í að hitta Jesú Krist
Hvaða bók lastu síðast: Man‘s
search for meaning.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV alltaf alls staðar
Ertu hjátrúarfullur: Já, ég
myndi segja það.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir
eru frábærar.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Mér finnst nánast öll tónlist
frábær. Ef ég þarf að velja eitt-
hvað að hlusta á þá set ég oftast
Júníus Meyvant. Úti að hlaupa þá
er það Rammstein í botni.
Hvað rak þig í framboð: Ég hef
verið viðriðinn pólitík í hartnær
20 ár og finnst það frábært. Það
var mikil hugljómun fyrir mig
á sínum tíma að átta mig á því
hversu gefandi starfið er og einnig
hversu vel grastrótarstarfið virkar
upp í efstu lög stjórnkerfisins.
Ég hef líka séð hversu mikilvægt
grasrótarstarf er fyrir fulltrúa
okkar í bæjarmálunum. Hugsa
að fólk almennt átti sig ekki
á því starfi sem liggur þar að
baki ákvörðunum sem teknar
eru í nefndum og bæjarsjórn.
Ég hef verið tvennar síðustu
alþingiskosningar í 10. sæti í
Suðurkjördæmi. Ég fékk mikla
hvatningu bæði hér heima
og eins frá fólki í starfinu í
kjördæminu um að fara fram
núna og bjóða mig hærra. Ég
fann að mig langaði að taka mitt
pólitíska starf skrefinu lengra,
ég hef einnig talað fyrir því að
við Eyjamenn eigum að eiga
aðila á lista Sjálfstæðisflokksins
í kjördæminu. Ég sló því til á
miðvikudaginn þegar frestur
til framboðs var að renna út og
setti inn framboð mitt til 4.sætis.
Hvernig leggst baráttan í þig:
Baráttan leggst mjög vel í mig.
Ég hef fengið fjölda hringinga
og skeyta þar sem lýst er ánægju
með framboð mitt og mér heitið
stuðningi. Einnig hef ég heyrt frá
nokkrum öðrum frambjóðendum
sem taka mér opnum örmum í
framboðshópinn. Mér líst mjög
vel á hópinn sem býður fram
og tel okkur í góðu færi að
geta boðið fram öflugan lista í
kjördæminu að loknu prófkjöri.
Það er því mikil tilhlökkun hjá
mér, bæði að taka þátt í próf-
kjörinu og svo í framhaldinu að
taka þátt í kosningum í haust.
Planið er að tryggja Eyjamann í 4.
sætið. Ég held að það skili okkur
fjórum þingmönnum í kosn-
ingunum. Þannig á þetta að vera.
Eitthvað að lokum: Ég hvet
fólk til að taka þátt í komandi
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi sem fram mun
fara 29. maí.
Þakka my brother from
another mother Inga Frey
kærlega fyrir áskorunina
(draumur að rætast). Ég
ætla að bjóða uppá kjúll-
rétt eins og hann bað um.
900 gr kjúllabringur
150 gr beikon skorið í bita
1 rauðlaukur saxaður smátt
3 hvítlauksrif pressuð
3 gulrætur skornar í sneiðar
salt og pipar
1 dós sýrður rjómi 36%
3+ dl rjómi
2 dl rifinn parmesanostur eða
mozzarella
1 tsk kjúllakraftur
1 tsk sambal oelek chillimauk
3 msk sweet chilí sósa
1 msk soja sósa
Beikonið skorið í bita og steikt
á pönnu þar til svo veitt af
pönnunni og fitan skilinn eftir.
Kjúklingurinn skorinn í bita
saltaður og pipraður og steiktur
ásamt rauðlauknum þar til hann
hefur náð góðri steikingarhúð,
Þá er gulrótunum og
hvítlauknum bætt útá pönnuna,
því næst sýrðum rjóma,
rjómanum, parmesanostinum,
kjúllakrafti, chilimauki, sweet
chili sósu, sojasósu ásamt
beikoninu og látið malla í 15
mín. Gott að hafa hrísgrjón og
hvítlauksbrauð sem meðlæti.
Bon appetit.
Skora svo á coach Erling Birgi
Richardsson, Veit af góðri
reynslu að Vigdís er snillingur
í eldhúsinu þannig að hún má
hjálpa honum (þar sem hann veit
ekki hvar eldhúsið er í húsinu).
EYJAMAÐURINN
MATGÆÐINGURINN
Hlustar á Rammstein í botni
Kjúlli með sweet chili, beikoni og fl.
Jarl Sigurgeirsson
Huginn Helgason
Páll Magnússon ætlar
ekki fram
4. apríl 2021
Páll Magnússon þingmaður
greindi frá því á facebook
síðu sinni að hann ætlaði
ekki að bjóða sig fram í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Suðurkjördæmi í næsta mánuði.
Laun í vinnuskólanum
hækka um 7,1%
5. apríl 2021
Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og
fræðslusviðs kynnti fyrirkomulag
Vinnuskólans fyrir sumarið
2021. Lagt er til að laun fyrir
sumarið hækki og að í framtíðinni
verði laun tengd sem hlutfall
tímavinnukaups í dagvinnu í
launatöflu stéttarfélags.
Mokveiði bæði í þorski
og ýsu
7. apríl 2021
Ísfisktogarar Bergs-Hugins,
Bergey VE og Vestmannaey VE,
komu báðir með fullfermi til Eyja.
Ásta Björt semur við
Hauka
8. apríl 2021
Ásta Björt Júlíusdóttir hefur gert
samning við handknattleiksdeild
Hauka um að leika með
meistaraflokki félagsins næstu 3
árin. Ásta Björt hefur leikið allan
sinn feril hjá ÍBV.
Róbert áfram hjá ÍBV
8. apríl 2021
Róbert Sigurðarson hefur skrifað
undir nýjan tveggja ára samning
við Handknattleiksdeild ÍBV.
Róbert er á sínu fjórða tímabili
hjá ÍBV en hann kom til liðs við
liðið frá Akureyri árið 2017.
Fyrsti kafari veraldar
sem heilsar upp á
loðnutorfu í sjó
9. apríl 2021
Erlendur Bogason kafari náði
einstæðum myndum af loðnutorfu
úti fyrir Snæfellsnesi snemma í
marsmánuði, í blálok vertíðar.
...fylgstu með!
EYJAFRÉTTIR.IS