Vesturbæjarblaðið - apr. 2023, Blaðsíða 4
Nokkrir heldri menn sitja á spjalli á Kaffi Tári í
Kringlunni. Þeir hittast til að ræða dag og veg og önnur
málefni sem ber að á hverjum tíma. Þegar klukkan
fer að ganga tólf taka sumir þeirra að ókyrrast. Einhver lítur
á skilaboð í síma sínum og umræðuefnið breytist. Hvað er í
matinn í dag spyr einn þeirra. Ég þarf að hafa mig aðeins til segir
annar. Um hvað eru þeir að tala. Sumir þeirra eiga sér annan
samastað í hádeginu. Þeir eru að fara að borða í samfélagshúsinu
á Vitatorgi. Þar er hádegismatur alla daga hvort sem um virka
daga, sunnudaga eða hátíðisdaga er að ræða og alltaf hægt að
koma án þess að tilkynna sig fyrir fram. Þetta hentar þeim vel.
Sumir þeirra búa einir en aðrir halda heimili með eiginkonum
eða fjölskyldumeðlimum. Það fækkar í hópnum. Sumir halda
á Vitatorg. En hvað er samfélagshús. Er það hádegismatur fyrir
heldri borgara eða er fleira þar að finna. Vesturbæjarblaðið
gerði sér ferð á Vitatorg einn morgun til að grennslast fyrir um
starfsemi sem þar fer fram. Þar hitti tíðindamaður fyrir Drífu
Baldursdóttur forstöðumann og verkefnisstjóra samfélagshús-
sins. Hún er Borgfirðingur. Fædd og uppalin í Borgarnesi en
flutti til Reykjavíkur þegar hún hóf nám við Háskóla Íslands rétt
rúmlega tvítug. ”Ég er búin að vera í Vesturbænum í Reykjavík
síðan. Ég hef búið lengur í Vesturbænum en í Borgarnesi. Ég get
litið á mig sem Vesturbæing af Borgfirskum uppruna.”
Hvað kom Drífu til að yfirgefa
heimahagana. ”Námslöngunin
rak mig að heiman,” segir hún. ”Ég
fór í uppeldis- og menntunarfræði
sem BA nám við Háskóla Íslands
og bætti svo lýðheilsufræðinni við
til mastersprófs. Lýðheilsufræðin er
ein af nýrri námsgreinunum. Hún
nær inn á nokkur svið eins og nafnið
bendir til. Heilbrigðisfræði eru hluti
af henni. Þar er lögð mikil áhersla á
forvarnir og þau fræði heilluðu mig
auk þess að vinna að heilsu eflingu.
Heilsueflingin er eitt af stærstu
málunum sem ég er að fást við hér á
Lindargötunni.”
Vesturbærinn eins og
sjálfstæður bær
En aðeins nánar að Vestur-
bænum. ”Ég kann vel við mig þar.
Mér finnst Vesturbærinn fullkomin
blanda af umhverfi og mannlífi.
Vestur bær inn er á mörkum
bæjar hluta sem íbúðahverfis og
Miðborgar innar. Þetta eru tveir
skemmtilegir borgarhlutar. Ég kem
utan af landi og ég finn ákveðna
hverfisstemningu í Vesturbænum.
Mér finnst stundum að Vestur-
bærinn sé eins og sjálfstæður
bær þótt hann sé við hliðina á
Miðborginni. Ég finn fyrir að fólki
líður vel og er ánægt. KR skapar
ákveðna stemningu í Vestur bænum.
Krakkarnir eru í íþróttastarfi. Börnin
mín hafa öll æft íþróttir með KR
og dætur mínar eru byrjaðar að
spila körfubolta og fótbolta með
meistara flokki KR. Þau finna sér
félagsskap og stunda heilsusamlegt
líferni þar. Ég get fullyrt af minni
reynslu er Vesturbærinn er mjög
gott hverfi til að búa.”
Sex ár á Vitatorgi
Við snúum okkur að störfum
Drífu sem að miklu leyti hafa tengst
Reykjavíkurborg með einum eða
öðrum hætti. ”Ég er búin að vinna
að mestu hjá Reykjavíkurborg frá
því ég lauk námi. Ég starfaði í um
átta ár á velferðarsviði borgarinnar.
Vann líka á skóla- og frístunda-
sviði, meðal annars deildarstjóri
á leikskóla og leiðbeinandi í
vinnuskóla borgarinnar. Nú eru að
verða sex ár síðan ég kom hingað
á Vitatorg.”
Hjartað í hverfinu
Hvað er samfélagshús. ”Samfé-
lagshús er öllu meira en mötuneyti.
Við viljum meina að samfélagshú-
sin séu hjartað í hverfinu og byggir
á mjög fjölbreyttri starfsemi. Aðal
markmiðið með þessum húsum
er að stuðla að bættri líðan fólks
og heilsu. Þetta starf er fyrir fólk á
öllum aldri þótt stundum sé álitið að
það snúist fyrst og fremst um heldri
borgara. Um fólk sem er komið af
starfsaldri og á eftirlaun. En það er
misskilningur. Lýðheilsuverkefnin
snerta alla bæði yngri og eldri og
allt þar á milli.” Eru samfélagshúsin
opin öllum. ”Já, þau eru öllum opin.
Ég vil taka sérstaklega fram að allir
eru velkomnir til okkar. Enginn þarf
að fara í gegnum mat hvorki hvað
aldur, heilsufar eða hæfni varðar.
Enginn þarf að skrá sig. Fólk getur
komið inn af götunni alla virka
daga á milli kl. 08:30 og 16:30 sem
er almennur opnunartími. Eftir
klukkan fimm er líka starfsemi en
þá fremur fyrir hópa sem skrá sig í
sérstök verkefni. Þannig er dagskrá
Vesturbæjarblaðið APRÍL 2023
Lýðheilsuverkefnin
snerta alla
Drífa Baldursdóttir fyrir utan Vitatorg.
- glæsileg umgjörð í samfélagshúsinu á Vitatorgi
4
STÍLBÓKSTÍLBÓK
Sjálfstætt
starfandi apótek
sem býður
persónulega
þjónustu og
hagstæð verð á
lyfjum og öðrum
heilsutengdum
vörum.
L a u g a v e g i 5 3 b S: 414 4646
Elli- og örorkulífeyrisþegar njóta sérkjara hjá Íslands Apóteki
Opnunartímar:
Mán-Fös:
10:00-18:00
Laugardaga
10:00-16:00
Sunnudaga:
Lokað