Vesturbæjarblaðið - mar. 2023, Blaðsíða 5
neyslunni mátti bara að snúa við
því baki. “Þetta er hugsunarháttur
fyrri tíðar sem er á undanhaldi. Það
getur líka verið erfitt fyrir fólk sem
vill og er að reyna að taka á sínum
málum að vera ekki í tengslum
við þá sem því þykir vænt um. Við
fjölskyldur sínar eða vini. Kannski
búið að brenna allar brýr að baki
sér. Þetta getur verið hluti vandans.
Því skiptir máli að standa með
fólki í svona aðstæðum. Ég hef hitt
mæður úr öðrum sveitarfélögum
sem hafa sagt mér hversu erfitt
sé að horfa á eftir barninu sínu á
götuna í Reykjavík og þurfa síðan að
koma úr öðru sveitarfélagi til þess
að leita eftir aðstoð.”
Betra að fólk geti
fengið þjónustu í
nærumhverfi sínu
H e i ð a s e g i r m i s m u n a n d i
þjónustu í boði eftir sveitarfélögum
og engin launung á því að fólk
með vanda af þessu tagi leitar inn í
Reykjavík. Hún segir að betra væri
að þessi málaflokkur væri meira
lands verkandi þannig að fólk
geti fengið meiri þjónustu í sínu
nærumhverfi og geti verið nálægt
þeim sem því þykir vænt um og
verið í umhverfi sem það þekkir.
Einnig geti verið gott að dreifa
fólki sem á í erfiðum félagslegum
vanda í stað þess að hópa því of
mikið saman eins og hefur verið
gert. Nauðsynlegt sé fyrir fólk og
ekkert síður fólk sem er í viðkvæmri
stöðu að hitta og umgangast
breytilega hópa.
Eigum ekki að flokka fólk
“Ég hef verið að leggja áherslu
á í mínu starfi að velferðarmálum
að við gerum minna að því að
flokka fólk. Við verðum að vera
umburðarlyndari gagnvart því að
við erum allskonar og alls staðar
í samfélaginu. Eldra fólk á ekki
endilega bara að hitta annað eldra
fólk. Eins er með yngra fólkið.
Fólk þarf að hafa tækifæri til að
blandast saman. Hluti af þessu
er að við höfum verið að opna
húsnæði sem einkum hefur verið
fyrir félagsstarf eldri borgara fyrir
yngra fólki. Markmiðið er að fólk
nái að blandast betur saman
og geti miðlað hvort öðru af
áhugamálum og reynslu. Ég veit
að yngra fólk sem sumt er ekki a
vinnumarkaði meðal annars af því
að það er með ung börn er farið
að notfæra sér þessa aðstöðu. Ég
get nefnt Aflagrandann sem dæmi,
einnig Gerðuberg í Breiðholti og
Vitatorgið við Vitastíg. Þar er komin
leikaðstaða fyrir börn. Þar hittist
fólk af mismunandi kynslóðum,
kynnist, fordómar minnka og allt
verður skemmtilegra.” Heiða
rifjar upp árin sem hún var í
fæðingarorlofi. Kveðst þá hafa sótt
Sólheimabókasafnið reglulega,
Þar hafi fólk af flestum kynslóðum
komið. “Þarna sá ég hvað fólk hefur
gott af því að hittast yfir kaffibolla og
tala saman á milli kynslóða.”
Stendur upp á okkur að
tala meira saman
Karp í borgarstjórninni ber á
góma. Telur Heiða of miklum tíma
eytt í að karpa um hluti í stað þess
að leita að lausnum. Hún hugsar sig
um. “Reykjavík er stórkostleg borg.
Borgarbúar eru eðlilega allskonar
fólk og kjósa sér fulltrúa með
mismunandi viðhorf. Ég er stolt af
að starfa á þessum vettvangi. Mér
finnst hins vegar standa upp á okkur
og tala meira saman og reyna að
ræða okkur niður á niðurstöður.
Það verða allir aldrei sáttir með
allt. En við mættum reyna meira að
stuðla að sátt og samstöðu. Ég er
ekki í stjórnmálum bara til þess að
vera á móti einhverjum. Heldur til
þess að koma ákveðnum viðhorfum
á framfæri. Ég er alin upp við það
viðhorf að enginn sé merkilegri en
annar og allir jafnir. Þetta var mjög
sterkt í mínu uppeldi og hefur ekkert
breyst. Ég el börnin mín upp með
þessu sjónarmiði,” segir Heiða Björg
Hilmisdóttir borgarfulltrúi.
5Vesturbæjarblaðið MARS 2023
Neyðarskýlin eru aðeins skammtíma úrræði.
Fundur um velferðarmál sem haldin var í Gerðubergi fyrir skömmu.
Heiða Björg Hilmisdóttir stýrði fundi.Ég er alin upp við það viðhorf að enginn
sé merkilegri en annar og allir jafnir. Þetta
var mjög sterkt í mínu uppeldi og hefur
ekkert breyst. Ég el börnin mín upp með
þessu sjónarmiði.
Við stækkum
fermingargjöfina
Við gefum fermingarbörnum allt að
12.000 króna mótframlag þegar þau
spara fermingarpeninginn hjá okkur.
Við erum betri saman