Vesturbæjarblaðið - mar. 2023, Blaðsíða 19

Vesturbæjarblaðið - mar. 2023, Blaðsíða 19
19VesturbæjarblaðiðMARS 2023 Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 GETRAUNIR.IS 107 GETRAUNANÚMER KR Ársól Clara Arnardóttir, Eiríkur Logi Gunnarsson og Lára Ívarsdóttir sigruðu í sínum flokkum á Íslands­ mótinu í borðtennis, sem fram fór í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnar­ firði dagana 3. til 5. mars. Ársól sigraði í 1. flokki kvenna, Eiríkur í 1. flokki karla og Lára í 2. flokki kvenna. Aldís Rún Lárusdóttir var eini KR-ingurinn sem lék til úrslita í meistara flokki, en hún lék til úrslita í tvíliðaleik kvenna með Sól Kristínardóttur Mixa úr BH. Þær töpuðu í úrslitum fyrir Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rós Jóhannesdóttur úr Víkingi, eftir að hafa slegið út meistara fyrra árs í undanúrslitum. Aldís fékk auk þess brons í einliðaleik í meistaraflokki og í tvenndarleik með Davíð Jónssyni. Ellert Kristján Georgsson og Gestur Gunnarsson unnu til bronsverðlauna í tvíliðaleik karla og Ellert og Þóra Þórisdóttir unnu brons í tvenndarleik. KR vann tæplega helming allra verðlauna á mótinu eða 17,5 alls, en keppt var í 9 flokkum og eru fern verðlaun veitt í hverjum flokki. KR átti alla verðlaunahafa í 1. og 2. flokki kvenna. Ársól, Eiríkur og Lára Íslandsmeistarar í borðtennis Borðtennisfólk úr KR. KR­ingar eru búnir að finna markvörð til að fylla í skarðið sem Beitir Ólafsson skildi eftir sig þegar hann ákvað að setja fótboltaskóna á hilluna. Hinn nýi markvörður heitir Simen Lillevik Kjellevold mun verja KR­markið í bestu deild karla í sumar. Hann er 28 ára gamall Norðmaður. Kjellevold hefur spilað í Noregi allan ferilinn og þar á meðal hjá liðum eins og Stabæk, Kongsvinger og Strömmen. Hann lék síðast með Grorud IL í norsku b-deildinni þar sem hann fékk á sig 69 mörk í 30 leikjum. Ole Martin Nesselquist, nýr þjálfari KR, þekkir Kjellevold mjög vel en hann fékk hann til Strömmen fyrir þremur árum síðan. Kjellevold verður ekki fyrsti norski markvörður KR-inga því áður hafa þeir André Hansen og Lars Ivar Moldskred spilað með liðinu í efstu deild. Simen Lillevik Kjellevold í markið hjá KR Simen Lillevik Kjellevold. Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jón G. Bjarnason S: 793 4455 Jóhanna Eiríksdóttir Útfararstofa Íslands www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararstofa Hafnarfjarðar www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði - KR vann nær helming allra verðlauna Ný stjórn knattspyrnudeildar var kosin í gær á aðalfundi deildarinnar. Stjórn knattspyrnudeildar 2023-2024: Páll Kristjánsson, formaður - aðrir meðstjórnendur: Berglind Guðmundsdóttir, Einar Örn Jónsson, Indriði Sigurðsson, Katrín Ómarsdóttir, Ólafur Már Ólafsson, Sindri Snær Jensson, Valdís Arnórsdóttir Við hlökkum til komandi starfsárs með nýrri stjórn segir á heimasíðu KR. Ný stjórn knattspyrnu deildar KR

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.