Vesturbæjarblaðið - Mar 2023, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið MARS 2023
Ný hafnarvigt við
Bakkaskemmu
Til stendur að fjarlægja gömlu hafnarvigtina við Grandagarð.
Hún hefur staðið norðaustan við Kaffivagninn í 64 ár. Nýrri
hafnarvigt verður komið fyrir norðar á Grandanum. Austan við
Bakkaskemmuna við Grandagarð 16.
Ný staðsetning við Bakkaskemmu er við hlið fiskmarkaðarins og
beint á móti Grandabakka þar sem stærri fiskiskipin landa. Þá sé
stutt að Bótarbryggju þar sem smábátarnir landa. Nýja jafnarvigtin er
bresk, af Avery-gerð, er 18 metra löng og getur tekið 60 tonna þunga
vörubíla. Vigtin mun sú fullkomnasta sem völ er á í dag.
Gamla hafnarvigtin á Grandagarði. Til hægri séð í Kaffivagninn.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykja víkur borgar hefur sam-
þykkt að veita heimild fyrir
áfram haldandi undirbúningi,
verkhönnun og gerð útboðs-
gagna, í samvinnu við Vegagerði-
na við Ánanaust og Eiðsgranda.
Með þessu er ætlunin að bæta
umferðar öryggi meðal annars
með nýjum gönguljósum og
endur bótum á gönguþverun.
Ný gönguljós eiga að koma á Eiðs-
granda, vestan við innkeyrslu að
Hringbraut 121 eða JL Húsið. Fækka
á akreinum vestur Eiðs granda og
fjarlægja núverandi vinstribeygjuv-
asa en í staðinn verður núverandi
vinstri akrein gerð að beygjuakrein.
Tillagan gerir einnig ráð fyrir að ekki
verði hægt að taka vinstri beygju frá
Hringbraut 121 inn á Eiðsgranda.
Þá á að setja upp miðeyjur á milli
akreina í og úr hringtorginu. Þeim
er ætlað að veita gangandi veg-
farendum á leið yfir götuna skjól
en tvær akreinar eru í hvora átt á
Ánanaustum svo erfitt getur verið
að átta sig á eða hafa yfirsýn yfir
að vífandi umferð. Með þessu er
einnig verið að bæta aðgengi gan-
gandi og hjólandi vegfarenda en við
sjóinn er vinsæl göngu- og hjólaleið.
Eiðisgrandinn er önnur af
tveimur aðalumferðaæðum til
og frá Seltjarnarnesi. Þór Sigur-
geirsson bæjarstjóri segir að ekki
hafi verið rætt við bæjarstjórn
Seltjarnarnesbæjar í tengslum
við framkvæmdirnar enn sem
komið er. Hann telur nauðsyn-
legt að vera með í ráðum í svona
veigamiklum breytingum og kveðst
muni koma athugasemdum á
framfæri varðandi þetta.
Á myndin sjást umferðalínur vestur Eiðsgranda og út í Örfirisey.
Umferðabreytingar
við Ánanaust
Forhönnun á nýju útliti Lækjartorg hefur nú verið
kynnt umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur-
borgar. Hönnunin var valin fyrir um ári síðan eftir
að efnt hafði verið til hönnunarsamkeppni. Hún þótti
bæði djörf, hlýleg og rómantísk.
Hönnuðir nýja torgsins eru Karres en Brands og Sp(r)
int Studios og kynntu þau hönnunina fyrir umhverfis-
og skipulagsráði. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist á þessu ári. Þegar hönnunin var fyrst kynnt fyrir
ári í kjölfar hönnunarsamkeppnir Reykjavíkurborgar
og Félags íslenskra landslagsarkitekta sagði talsmaður
hönnunarteymisins að lögð hafi verið áhersla á að með
nýrri hönnun haldist virkni Lækjartorgs sem staðsetning
útifunda, viðburða og miðstöð samgangna.
Þannig sjá hönnuðir Lækjartorgs torgið fyrir sér í framtíðinni.
Áhersla á virkni Lækjartorgs
Forhönnun Lækjartorgs kynnt
STUÐ
STUÐ
0
STUÐ
1
» Þarf stærri heimtaug?
» Hvaða lausn hentar best?
» Er kerfið búið álagasstýringu?
» Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi?
Er hleðsla rafbíla
hausverkur
í húsfélaginu?
Við aðstoðum við að leysa málið með
hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi
Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag
rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun.
Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir.
thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is
Netverslun:
systrasamlagid.is