Feykir - 06.04.2022, Blaðsíða 6
6 14/2022
( BÓK-HALDIÐ ) oli@feykir.is
Fór bara út í fótbolta þegar hann var búinn
að lesa allar bækurnar á bókasafninu
Gunnar Helgason | rithöfundur í Hafnarfirði
Það
þekkja allir
Gunna Helga, enda
margir eftirminnilegir kappar með
því nafni. Bók-haldið er hins vegar búið
að banka stafrænt upp á hjá
rithöfundinum, leikaranum og
leikstjóranum Gunnari Helgasyni í
Hafnarfirði. Það er sjaldnast einhver
lognmolla í kringum hann og það er rétt
með naumindum að hann nái að svara
spurningum Feykis í tæka tíð – hann er
nefnilega eitthvað að sprella með Ladda
og félögum.
Margir hafa sennilega alist upp við Gunna
og Felix síkáta í Stundinni okkar og þeir
félagar gáfu að auki út bráðvinsælar
barnaplötur. Og ófáir hafa lesið barna- og
unglingabækurnar hans Gunna þar sem
hann hefur oftar en ekki hitt í mark; við
gætum nefnt bækurnar um Gogga og
Grjóna, fótboltabækurnar um Jón Jónsson
og félaga þar sem Víti í Vestmannaeyjum,
Aukaspyrna á Akureyri og Rangstæður í
Reykjavík voru meðal titla, ekki má
ekki til baka og las eins og
vindurinn.
Hvaða bók er ómissandi
eða er einhver ein bók
sem hefur sérstakt
gildi fyrir þig? Enn og
aftur... Jón Oddur og
Jón Bjarni. Bókin er
náttúrulega um
tvíbura sem eiga
heima í blokk og það
er unglingssystir og
grænn jeppi. Allt eins
og hjá okkur á þeim tíma.
Það var bara eins og
Guðrún Helgadóttir hefði
skrifað bókina um okkur
bræðurna.
Bíður þú spenntur eftir bókum frá
einhverjum höf-undi? Ég bíð spenntur
eftir bókum frá Hallgrími bróður. Lengi
fannst mér bækurnar hans of langar en
síðustu fjórar hafa verið of stuttar. Ég get
ekki beðið eftir að kafa ofan í sagnaheiminn
hans og dvelja þar lengi, lengi.
Áttu þér uppáhalds bókabúð? Akademiska
Bokhandling í Helsinki var mitt vín þegar ég
starfaði sem mest þar. Hér heima er það
Penninn Eymundsson í Hafnarfirði. Frábært
starfsfólk í frábærri búð í okkar yndislega
litla miðbæ.
Hversu margar bækur heldurðu að þú
eignist árlega og lestu þær allar? Hmmm...
ætli ég eignist ekki svona 5–8 bækur
mánaðarlega. Ég hef ekki komist í að lesa
þær allar. En ég reyni.
Ertu fastagestur á einhverju bókasafni?
Það er bókasafnið í Hafnarfirði. Bunkinn
heima heldur þó aftur af mér. Þarf að fara
oftar.
Hvaða bækur lestu fyrir börnin þín? Nú á
ég bara uppkomin börn. En þegar
strákarnir voru litlir var Ástarsaga úr
fjöllunum og Mjóni Rauðrefur í uppáhaldi
sem og Selur kemur í heimsókn. Ég gerðist
áskrifandi að Disneyklúbbnum á sínum
tíma og las þær til að byrja með en svo bara
gat ég það ekki. Þetta var bara of mikið
drasl.
Hvað þarf til að gera góða bók fyrir börn
og ertu eldsnöggur að setja saman bók
eða var einhver bókanna þinna löng og
erfið fæðing? Ég hef tvisvar verið
eldsnöggur að setja saman bók. Það
helgaðist af því að söguþráðurinn kom til
mín í einu lagi. En söguþráðurinn er alltaf
það erfiðasta í skriftarferlinu. Þegar hann er
Gunni Helga kátur og hress. MYND: GASSI
Á litlu myndinni eru stjörnurnar úr myndinni
Víti í Vestmannaeyjum sem sló í gegn.
MYND AF FACEBOOK
gleyma Mamma
klikk!, Amma best og nú síðast Bannað að
eyðileggja. Bækurnar eru orðnar eitthvað
um tuttugu talsins.
Gunni er árgangur 1965 líkt og
tvíburabróðir hans (!), fæddur í Reykjavík
en ólst fyrst upp á Háaleitisbrautinni en
flutti svo ungur í Glaðheima og gerðist
Þróttari ári síðar. Nú er hann búinn að búa
í Hafnarfirði í bráðum 30 ár. Hann lærði
leiklist hér heima en segist nú vinna mest
við að skrifa og leikstýra.
Þar sem bók-haldið ber upp á í
fermingarblaði Feykis er rétt að byrja á að
spyrja Gunna hvað sé eftirminnilegast frá
fermingardeginum hans. „Ég fermdist í
Langholtskirkju. Man mest eftir því hvað
það var gaman í veislunni þar sem ég fór
með gamanmál í eldhúsinu við mikinn
fögnuð. Eftirminnilegra er þó þegar ég
skírðist þremur vikum áður. Kom of seint í
eigin skírn því ég var á skíðaæfingu.
Mamma var ekki hress.“
Hver er uppáhaldsbókin af þeim
sem þú hefur lesið gegnum tíðina?
Það eru án efa bækurnar um Jón Odd og
Jón Bjarna. Þar á eftir koma 60 kíló
bækurnar tvær eftir bróður minn, Hallgrím
Helgason. Í öruggu þriðja sæti eru bækur
Einars Kárasonar um Sturlungaöldina.
Hvaða bók ertu að lesa núna? Nú er ég að
lesa bókina Bróðirinn eftir Ármann
Jakobsson.
Hvers konar bækur lestu helst? Barna- og
unglingabækur. Reyni að fylgjast með því
sem aðrir eru að skrifa hér heima ... já og
erlendis.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá þér
þegar þú varst barn og af hvaða bók
lærðir þú að lesa? Ég man ekkert af hvaða
bók ég lærði að lesa. En eftir að ég fékk
gleraugun og náði upp lestrarhraða las ég
svona flest það sem til var á heimilinu. Mér
fannst flest af því ekkert sérlega skemmti-
legt. Það var ekki fyrr en ég var að verða
níu ára að Jón Oddur og Jón Bjarni kom út
að hausinn á mér sprakk. Eftir hana leit ég