Feykir - 06.04.2022, Blaðsíða 17
14/2022 17
Gleðilega páska
Eftir rúm tvö ár í undarlegum
aðstæðum sem sköpuðust
vegna áhrifa kórónu-
veirunnar, sem á einhvern
undarlegan hátt ákvað að
herja á mannkynið með
Covid-19, stefna Skagfirð-
ingar ótrauðir á að halda
alvöru Sæluviku með glaum
og gleði sem aldrei fyrr. Þar
sem er Sæluvika þar er
Vísnakeppni Safnahúss
Skagfirðinga.
Samkvæmt óvísindalegri
rannsóknarvinnu er komið að
45. keppninni en henni var
komið á árið 1976 og hefur
farið fram öll árin síðan, utan
2020, út af svolitlu heimsfári
sem riðlaði öllu. Það er alkunna
að veðurminni Íslendinga er
stutt og það á líka við um fleiri
þætti mannlífsins. Óvíst er
hvort nokkur muni hvernig
Sæluvikunni var háttað í fyrra
eða hvort hún var yfir höfuð
haldin árið þar áður. Flestum er
líka nokk sama því Covidið er
að mestu liðið hjá og engar
hömlur frá yfirvaldinu lengur.
Man einhver eftir því að nú er
rétt eitt ár liðið síðan eldgos
hófst við Fagradalsfjall í
Geldingadölum og hraun tók
að flæða úr Meradölum?
En allir muna hvernig
kosningarnar fóru fyrir fjór-
um árum – eða er ekki svo?
Og nú styttist í að sögulegar
sveitarstjórnarkosningar verði
haldnar þar sem Skagfirðingar
verða sameinaðir í einu
sveitarfélagi. Er ekki kominn
nægur eldiviður í vísur eftir
þessa upptalningu.
Reglur vísnakeppninnar eru
sem fyrr einfaldar og góðar;
annars vegar að botna fyrir-
fram gefna fyrriparta og eða
semja vísu um ákveðið málefni.
Ekki er nauðsynlegt að botna
allt og einnig er í lagi að senda
bara inn vísu.
Fyrripartarnir að þessu sinni
hljóða svo:
Enginn tregar einangrun
eftir Covid fárið.
Merlar ekki mosabreið
í Meradölum lengur.
Ungum þykir eflaust góð
augnablik í leynum.
Röðull skín á Skagafjörð
skaparinn er kátur.
Skemmtilegar vísur
um B. Har.
Fyrir skömmu lést heiðurs-
borgarinn og kaupmaðurinn
Bjarni Haraldsson á Sauðár-
króki, bæjarstjórinn í út-
bænum eins og einhver kallaði
hann, en hann var hvers
manns hugljúfi og þekktur út
um allan heim. Umsjónarmann
vísnakeppninnar langar til að
sjá skemmtilegar vísur um
Bjarna og hvað hagyrðingum
dettur í hug að yrkja til þessa
sómamanns. Vísur um annað
viðfangsefni er einnig leyfilegt.
Veitt verða tvenn peninga-
verðlaun, annars vegar fyrir
bestu vísuna og hins vegar
fyrir besta botninn. Ekki er
skilyrði að allir fyrripartar séu
botnaðir og einnig er leyfilegt
að senda einungis vísu.
Vísur og botnar verða að
hafa borist Safnahúsi Skag-
firðinga, Faxatorgi 550 Sauðár-
króki í síðasta lagi mið-
vikudaginn 20. apríl nk.
Nauðsynlegt er að vísurnar séu
merktar dunefni, en rétt nafn
og símanúmer fylgi með í
lokuðu umslagi. Einnig er
hægt að senda vísur og botna í
tölvupósti á netfangið
bokasafn@skagafjordur.is og
verður þá viðkomandi höfundi
gefið dulnefni, ef það fylgir
ekki með, áður en vísunar fara
til dómnefndar.
Úrslit verða tilkynnt sunnu-
daginn 24. apríl, við setningu
Sæluviku Skagfirðinga, í
Safnahúsinu á Sauðárkróki.
/Fréttatilkynning
Röðull skín á Skagafjörð
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga 2022
Kunnugleg staða Bjarna Har fyrir utan verslun sína í janúar 2018. Þá voru kaflaskil hjá
honum þar sem ekki var lengur leyfilegt að selja olíu hjá versluninni. MYND: FE