Feykir


Feykir - 06.04.2022, Qupperneq 17

Feykir - 06.04.2022, Qupperneq 17
14/2022 17 Gleðilega páska Eftir rúm tvö ár í undarlegum aðstæðum sem sköpuðust vegna áhrifa kórónu- veirunnar, sem á einhvern undarlegan hátt ákvað að herja á mannkynið með Covid-19, stefna Skagfirð- ingar ótrauðir á að halda alvöru Sæluviku með glaum og gleði sem aldrei fyrr. Þar sem er Sæluvika þar er Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga. Samkvæmt óvísindalegri rannsóknarvinnu er komið að 45. keppninni en henni var komið á árið 1976 og hefur farið fram öll árin síðan, utan 2020, út af svolitlu heimsfári sem riðlaði öllu. Það er alkunna að veðurminni Íslendinga er stutt og það á líka við um fleiri þætti mannlífsins. Óvíst er hvort nokkur muni hvernig Sæluvikunni var háttað í fyrra eða hvort hún var yfir höfuð haldin árið þar áður. Flestum er líka nokk sama því Covidið er að mestu liðið hjá og engar hömlur frá yfirvaldinu lengur. Man einhver eftir því að nú er rétt eitt ár liðið síðan eldgos hófst við Fagradalsfjall í Geldingadölum og hraun tók að flæða úr Meradölum? En allir muna hvernig kosningarnar fóru fyrir fjór- um árum – eða er ekki svo? Og nú styttist í að sögulegar sveitarstjórnarkosningar verði haldnar þar sem Skagfirðingar verða sameinaðir í einu sveitarfélagi. Er ekki kominn nægur eldiviður í vísur eftir þessa upptalningu. Reglur vísnakeppninnar eru sem fyrr einfaldar og góðar; annars vegar að botna fyrir- fram gefna fyrriparta og eða semja vísu um ákveðið málefni. Ekki er nauðsynlegt að botna allt og einnig er í lagi að senda bara inn vísu. Fyrripartarnir að þessu sinni hljóða svo: Enginn tregar einangrun eftir Covid fárið. Merlar ekki mosabreið í Meradölum lengur. Ungum þykir eflaust góð augnablik í leynum. Röðull skín á Skagafjörð skaparinn er kátur. Skemmtilegar vísur um B. Har. Fyrir skömmu lést heiðurs- borgarinn og kaupmaðurinn Bjarni Haraldsson á Sauðár- króki, bæjarstjórinn í út- bænum eins og einhver kallaði hann, en hann var hvers manns hugljúfi og þekktur út um allan heim. Umsjónarmann vísnakeppninnar langar til að sjá skemmtilegar vísur um Bjarna og hvað hagyrðingum dettur í hug að yrkja til þessa sómamanns. Vísur um annað viðfangsefni er einnig leyfilegt. Veitt verða tvenn peninga- verðlaun, annars vegar fyrir bestu vísuna og hins vegar fyrir besta botninn. Ekki er skilyrði að allir fyrripartar séu botnaðir og einnig er leyfilegt að senda einungis vísu. Vísur og botnar verða að hafa borist Safnahúsi Skag- firðinga, Faxatorgi 550 Sauðár- króki í síðasta lagi mið- vikudaginn 20. apríl nk. Nauðsynlegt er að vísurnar séu merktar dunefni, en rétt nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi. Einnig er hægt að senda vísur og botna í tölvupósti á netfangið bokasafn@skagafjordur.is og verður þá viðkomandi höfundi gefið dulnefni, ef það fylgir ekki með, áður en vísunar fara til dómnefndar. Úrslit verða tilkynnt sunnu- daginn 24. apríl, við setningu Sæluviku Skagfirðinga, í Safnahúsinu á Sauðárkróki. /Fréttatilkynning Röðull skín á Skagafjörð Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga 2022 Kunnugleg staða Bjarna Har fyrir utan verslun sína í janúar 2018. Þá voru kaflaskil hjá honum þar sem ekki var lengur leyfilegt að selja olíu hjá versluninni. MYND: FE

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.