Feykir - 08.06.2022, Síða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Fyrsti leikurinn á
Blönduósvelli þetta sumarið
fór fram 4. júni sl. þegar lið
Kormáks/Hvatar tók á móti
KFS úr Vestmannaeyjum. Lið
Eyjapilta reyndist Tindastóls-
mönnum erfitt viðureignar í
3. deildinni í fyrra og það fór
svo að Húnvetningar lentu
sömuleiðis í basli með vel
spilandi gestina og máttu þola
tap, lokatölur 1-2.
Það var Eyþór Orri
Ómarsson sem kom liði KFS
yfir á 35. mínútu og staðan
0-1 í hálfleik. Lið Kormáks/
Hvatar jafnaði metin á 60.
mínútu með marki Ingva
Rafns Ingvarssonar en
stundarfjórðungi fyrir
leikslok gerði Magnús
Sigurnýjas Magnússon sigur-
mark gestanna.
Húnvetningar hafa nú
mátt þola tvö svekkjandi 2-1
töp í röð í 3. deildinni en það
er þó sannarlega hvetjandi að
leikir liðsins eru jafnir og
spennandi. Sem stendur er
lið Kormáks/Hvatar með sex
stig í 7.-9. sæti deildarinnar
en með hagstæðara marka-
hlutfall en lið KFS og Vængja
Júpíters sem eru með jafn
mörg stig. Efst eru lið
Dalvíkur/Reynis og KFG sem
bæði eru með 12 stig. Næst
mæta Húnvetningar liði Víðis
í Garði nk. laugardag.. /ÓABFramtíðin björt hjá karla- og kvennaflokki
þann 2. júní síðastliðinn, í
húsakynnum 1238, skrifaði
körfuknattleiksdeild Tindastóls
undir samninga við nokkra
leikmenn. Allt eru þetta
kunnugleg andlit og sagði Dagur
Þór Baldvinsson, formaður
körfuknattleiksdeildar
Tindastóls, að stefnan væri að
vera með sama lið og var, eða
svona því sem næst.
Pétur Rúnar Birgisson
skrifaði undir þriggja ára
samning, Sigurður Þorsteins-
son skrifaði undir tveggja ára
Anna Karen, Eva Rún, Hildur Heba, Klara Sólveig og Kristín Halla undirrita samningana. MYND: AÐSEND
samning og Sigtryggur Arnar
Björnsson skrifaði undir eins
árs samning. Baldur Þór
Ragnarson kemur einnig aftur
að þjálfa en hann hafði þegar
skrifað undir eins árs samning.
Einnig var skrifað undir
samninga í kvennaflokki og
sagði Dagur að stefnan væri að
halda áfram að styrkja liðið og
halda áfram þeirri uppbyggingu
sem hefur verið í kvennaflokki
undanfarin ár. Þær sem
skrifuðu undir fyrir næsta
tímabil voru Anna Karen
Hjartardóttir, Eva Rún
Dagsdóttir, Hildur Heba
Einarsdóttir, Klara Sólveig
Björgvinsdóttir og Kristín
Halla Eiríksdóttir. Ingigerður
Hjartardóttir hafði áður skrifað
undir samning fyrir næsta
tímabil.
Dagur sagði að það væri enn
verið að skoða leikmenn fyrir
bæði lið og þjálfara fyrir
kvennaflokk en að þetta væri
allt saman enn á frumstig og of
snemmt að gefa eitthvað frekara
upp. /IÖF
Lið Tindastóls lék fjórða leik
sinni í B-riðli 4. deildar í gær
en þá mættu strákarnir liði KÁ
á Ásvöllum í Hafnarfirði en
þeir KÁ-menn eru b-lið
Hauka. Stólarnir náðu
yfirhöndinni um miðjan fyrri
hálfleik og unnu að lokum
öruggan 0-5 sigur og komu
sér betur fyrir í toppbaráttu
riðilsins sem er býsna sterkur.
Það var Spánverjinn
Basilio Jordan Meca sem
gerði fyrsta markið á 20.
mínútu og sex mínútum
síðar hélt hinn taktfasti
Jóhann Daði áfram að skora
fyrir Stólana. Basi bætti við
öðru marki sínu á 30. mínútu
og staðan 0-3 í hálfleik.
Basi fullkomnaði þrennuna á
59. mínútu og það var síðan
fyrirliðinn, Konráð Freyr,
sem kórónaði sigurinn með
marki úr vítaspyrnu á 82.
mínútu en skömmu áður
hafði lið KÁ misst Egil Örn
Atlason af velli með rautt
spjald.
Það er lið RB af
Reykjanesinu sem leiðir
B-riðil, er með níu stig eftir
þrjá leiki, en Stólarnir eru
sem stendur í öðru sæti með
átta stig að loknum fjórum
leikjum. Eins og staðan er nú
virðast fimm lið í riðlinum
hafa á að skipa sterkum hópi
leikmanna og munu
væntanlega berjast um
toppsætin. Auk RB og
Tindastóls má nefna lið KFK,
Úlfana og jafnvel KÁ.
Næstkomandi laugardag fá
Stólarnir einmitt lið RB í
heimsókn á Krókinn. Liðið
hefur hingað til gert tvö
jafntefli hér heima og það er
því kominn tími á sigur á
heimavelli. /ÓAB
3. deild | Kormákur/Hvöt - KFS 1–2
Fjallmyndarlegur sigur
Tindastóls á Ásvöllum
Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við leikmenn
Lið Tindastóls í Lengjudeild kvenna hélt suður í
höfuðborgina en þar beið þeirra sterkt lið
Víkingsstúlkna sem spáð var einu af tveimur efstu
sætum deildarinnar fyrir tímabilið. Úr varð
hörkuleikur þar sem bæði lið sóttu til sigurs og það
reyndust Stólastúlkur sem kláruðu dæmið, sýndu
góðan karakter eftir að hafa lent undir snemma
leiks og fögnuðu öflugum 1-2 sigri.
Bæði liðin voru með níu stig eftir fjórar
umferðir. Amber hóf leikinn með góðri vörslu í
marki Tindastóls en á 12. mínútu komust
heimastúlkur yfir. Amber hafði þá varið frá
Christabel en boltinn datt fyrir Huldu Ösp sem
kláraði málið. Stólastúlkur vildu fá víti á 39.
mínútu eftir góða rispu frá Aldísi en ekkert
dæmt. Hannah Cade vann síðan aukaspyrnu á
41. mínútu og sendi fastan bolta inn að marki
Víkings og þar fór boltinn af Dagbjörtu fyrirliða
Víkings og í markið.
Það tók lið Tindastóls ekki mínútu að ná
forystunni í síðari hálfleik. Enn var það Hannah
Cade sem lagði grunninn, sendi boltann inn
fyrir vörn Víkinga á Murr sem var í dauðafæri,
Andrea varði skot hennar en boltinn barst á
Hugrúnu sem fylgdi vel á eftir og skoraði.
Næstu mínútur voru Stólastúlkur nálægt því að
bæta við marki en þegar á leið opnaðist
leikurinn frekar þegar heimastúlkur reyndu að
sækja jöfnunarmarkið. Vörn Tindastóls og
Amber voru ekkert á þeim buxunum að hleypa
inn öðru marki og það voru því Stólastúlkur
sem fóru með sæt þrjú stig með sér norður.
Feykir spurði Donna þjálfara hvað honum
fannst um frammistöðu sinna stúlkna og hvort
þetta hafi verið besta frammistaða liðsins í
sumar. „Frammistaðan var heilt yfir mjög góð,“
sagði Donni. „Víkingar eru virkilega sterkt lið
og hafa gert mjög vel svo það var klárlega mjög
stórt fyrir okkur að vinna þær á þeirra velli.
Þetta var mjög sterk frammistaða en mér finnst
við eiga ennþá meira inni og viljum verða
ennþá betri i því sem við erum að vinna í.“ /ÓAB
Lengjudeildin | Víkingur – Tindastóll 1–2
Hugrún var með sigurmarkið gegn Víking. MYND: ÓAB
Sterkur sigur Stólastúlkna á Víkingum
Ingvi Rafn gerði mark Kormáks/Hvatar. Þessi mynd er frá því fyrr í sumar.
MYND: ÓAB
4. deild | KÁ - Tindastóll 0–5
Eyjapiltar höfðu
betur á Blönduósi
22/2022 5