Feykir


Feykir - 08.06.2022, Side 11

Feykir - 08.06.2022, Side 11
Sá sem vill leiða hljómsveitina áfram verður að snúa baki í fjöldann. - James Crook KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Lauf-ey Sudoku Krossgáta Finna skal út eitt kven- mannsnafn í hverri gátu. Ótrúlegt - en kannski satt... Matador og Monopoly eru svipuð borðspil sem ganga út á að spilarar kaupa eignir og setja á spilareiti og rukka síðan aðra spilara sem lenda á þeim reitum um leigu. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er meira prentað af peningum fyrir þau spil en alvöru peningum um allan heim ár hvert. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Já vinur minn ég er hýena. FEYKIFÍN AFÞREYING F Tilvitnun vikunnar ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is FISKRÉTTUR1 Mexikóskur fiskréttur 1 kíló þorskur, ýsa eða annar góður fiskur 1 stór rauð paprika, skorin í strimla 250 g sveppir, skornir í sneiðar 1 rauðlaukur, skorinn í strimla 1 bréf Fajitas kryddmix u.þ.b. 2/3 dl hveiti u.þ.b. 150 g rjómaostur u.þ.b. 300 g salsa sósa rifinn ostur t.d Mozarella Aðferð: Ofninn hitaður í 200°C. Hér um bil öllu fajitas kryddinu er blandað saman við hveitið, u.þ.b. 1 tsk af kryddinu er geymt þar til síðar. Fiskurinn er skorinn í hæfilega stóra bita og þeim velt mjög vel upp úr fajitas- hveitiblöndunni. Þá er fiskurinn steiktur á pönnu upp úr smjöri og/ eða olíu á öllum hliðum þar til fiskurinn hefur náð fallegri steikingarhúð. Þá er fiskurinn lagður í eldfast mót. Því næst er smjöri bætt við á pönnuna og sveppir, paprika og laukur sett á pönnuna, kryddað með restinni af fajitas kryddinu. Grænmetið er steikt í smá stund og því næst dreift yfir fiskinn. Þá er rjómaostinum dreift yfir grænmetið. Því næst er salsa sósunni dreift yfir. Að lokum er rifna ostinum dreift yfir. Sett inn í ofn í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til osturinn hefur náð góðum lit og fiskurinn er eldaður í gegn. (Ef þú ert t.d með mjög þykka þorskhnakka þá þurfa þeir lengri tíma en þynnri fisksneiðar. Það þarf að miða bökunartímann út frá þykkt fisksins hverju sinni). Gott að bera fram með hrísgrjónum og baunaspírum frá Ecospiru. Mynd og uppskrift tekin af eldhussogur.com FISKRÉTTUR2 Fiskrétturinn sem fékk fimm ***** 600 g ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur skorinn í bita 2 dl rækjur (má sleppa) 2 gulrætur 1 púrrulaukur 1 rauð og 1 græn paprika 1 grænt epli 2 msk. smjör 2 tsk. gott karríduft 200 g hreinn rjómaostur 1 dós 18% sýrður rjómi 1 dl mangó chutney rifinn bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur paprikuduft, salt og pipar Aðferð: Skerið fiskinn í passlega bita og kryddið með salti og pipar, leggið til hliðar. Saxið grænmetið og eplið í frekar smáa bita. Hitið pönnu á meðalhita og bræðið smjörið. Steikið grænmetið í smjörinu þar til það mýkist aðeins (geymið eplabitana). Bætið karríduftinu saman við og steikið það með í 1-2 mínútur. Bætið rjómaostinum, sýrða rjómanum og mangó chutney út á pönnuna og bræðið þetta saman. (Þynnið með örlitlu vatni ef ykkur finnst þetta of þykkt, en athugið að það kemur líka vökvi úr fiskinum þegar hann eldast.) Dreifið eplunum og rækjunum yfir og hrærið saman. Smakkið til með salti og pipar. Leggið svo fiskinn ofan á sósuna og grænmetið og leyfið þessu að malla þar til fiskurinn er nánast eldaður í í gegn. Stráið þá osti yfir ásamt smá paprikudufti og stingið inn í ofn undr grill í 5 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Stráið yfir saxaðri steinselju og berið fram með góðu salati og brauði eða hrísgrjónum. Mynd og uppskrift tekin af eldhusperlur.com Verði ykkur að góðu! Ljúffengir fiskréttir Þar sem sjómannadagurinn er handan við hornið þá er tilvalið að leita uppi ljúffenga fiskrétti sem vonandi einhverjir geta nýtt sér við eldamennsku vikunnar. FISK Seafood óskar starfsfólki sínu, sjómönnum öllum og aðstandendum þeirra til hamingju með sjómannadaginn. www.fisk.is Til hamingju sjómenn Háeyri 1 550 Sauðárkrókur Sími: 455 4400 Feykir spyr... Ætlar þú á Greifana á Sauðárkróki eða Stjórnarball á Skagaströnd um sjómanna- dagshelgina? Spurt á Facebook UMSJÓN : klara@nyprent.is ,,Ég ætla að sjálfsögðu að fara á Hornafjörð." Gunnar Tjörvi Ingimarsson ,,Ég hafði hugsað mér að fara á Greifana hérna á Sauðárkróki." Berglind Ósk Skaptadóttir ,,Ég ætla að skella mér á Stjórnarball á Skagaströnd og njóta helgarinnar þar á Hetjur hafsins. Fara út að borða á Harbour á laugardagskvöldið." Sigþrúður Jóna Harðardóttir ,,Væri rosalega gaman, fór síðast á Greifaball fyrir 23 árum síðan, ef ég verð ekki á vaktinni þá skelli ég mér." Björgvin Jónsson 22/2022 11 Vísnagátur Sveins Víkings Á sígrænni björkinni í sumarskrúði þú sérð best nafn upphafið þar. Líka er þörf að þú leitir og finnir það land sem er umflotið mar.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.