Feykir


Feykir - 26.10.2022, Blaðsíða 5

Feykir - 26.10.2022, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Það mátti búast við hörkuleik í Ljónagryfju Njarðvíkinga í lokaleik 3. umferðar Subway- deildarinnar á föstudag þegar heimamenn tóku á móti liði Tindastóls. Fyrir leik kom hins vegar í ljós að báðir leikstjórn- endur Stólanna, Pétur og Arnar, voru meiddir og gátu ekki spilað. Það var deginum ljósara að aðrir yrðu að axla ábyrgð og stíga upp en því miður, án leikstjórnendanna frábæru, þá var liðið líkast höfuðlausum her. Njarðvíkingar gengu á lagið og lönduðu öruggum 91-68 sigri. Njarðvíkingar tóku strax til óspilltra málanna og komust í 5-0 og 11-3 en Stólarnir náðu að svara fyrir sig, enda vantar ekki gæðaleikmennina í liðið. Staðan var 24-20 að loknum fyrsta leikhluta. Taiwo negldi niður þristi í upphafi annars leikhluta og Zoran bætti tveim- ur stigum við og skyndilega voru Stólarnir komnir yfir og útlit fyrir spennuleik. Næstu mínútur voru skemmtilegar, Njarðvíkingar náðu aftur forystunni en Orri Svavars jafnaði 31-31 þegar fjórar Subwaydeildin | Njarðvík – Tindastóll Höfuðið vantaði á herlið Stólanna Tindastólsmenn söknuðu Péturs og Arnars og náðu sér ekki á strik í Njarðvík. MYND. HJALTI ÁRNA mínútur voru liðnar. Síðustu þrjár mínútur fyrri hálfleiks snérist leikurinn og það mest fyrir tilstilli Deon Basile sem var frábær bæði í vörn og sókn. Meistaraverkið hans var að kynda svo duglega undir Keyshawn að okkar maður kastaði boltanum í hann og fékk dæmda á sig tæknivillu og fékk þar með fjórðu villuna sína. Á þessum kafla breyttist staðan úr 34-33 þegar fimm mínútur voru til hálfleiks í 52- 37 í hálfleik (18-4 sveifla). Tindastólsmenn áttu engin svör í þriðja leikhluta sem heimamenn unnu með 15 stigum og staðan 81-51 að honum loknum. Fjórði leikhluti var því bara formsatriði að þessu sinni en hann unnu þó Stólarnir 10-17 og náðu að láta lokatölur líta aðeins betur út – eða þannig. Að þessu sinni var Drungilas stigahæstur Stólanna með 17 stig og tók átta fráköst. Þá mæddi talsvert á Ragnari sem gerði ellefu stig og tók níu fráköst. Keyshawn gerði 15 stig. Aðrir voru undir tíu stigunum og vonbrigði að sjá Zoran og Taiwo ekki gera betur þegar á þurfti að halda. En áfram gakk! /ÓAB Stólastúlkur fengu sameinað lið Aþenu/Leiknis/ UMFK í heimsókn í Síkið sl. föstudagskvöld í 1. deild kvenna. Eftir ágæta byrjun Tindastóls náðu gestirnir tökum á leiknum og um miðjan þriðja leikhluta höfðu þeir búið sér til dágott forskot sem heimastúlkur náðu aldrei að brúa þrátt fyrir nokkrar ágætar tilraunir. Lokatölur 70-77. Chloe og Emese gáfu tóninn í byrjun leiks og Tindastólsliðið komst í 10-2. Þristur frá Ingigerði kom muninum í tíu stig, 17-7, þegar tæpar sex mínútur voru liðnar af leiknum en þá brettu gestirnir upp ermarnar og gerðu næstu ellefu stig og komust yfir. Körfur frá Chloe og Emese sáu til þess að Stólastúlkur leiddu, 21-18, að loknum fyrsta leikhluta. Jafnt var á flestum tölum fyrstu mínútur annars leikhluta en gestirnir áttu smá sprett um miðjan leikhlutann og komust sex stigum yfir, 25-31. Staðan 34-38 í hálfleik. Eftir tæplega fjögurra mínútna leik í síðari hálfleik var munurinn orðinn tíu stig, 38-48, og hélst sá munur næstu mínútur en lið Tindastóls kláraði leikhlutann ágætlega og var enn í góðum séns að honum loknum eftir að hafa minnkað muninn í þrjú stig, 51-54. Fjórði leikhluti þróaðist líkt og sá þriðji, gestirnir áttu góðan kafla fyrir miðan leikhluta og náðu mest 14 stiga forystu, 53-67. Chloe var drjúg á lokakaflanum en gestirnir áttu jafnan ás í erminni, létu boltann ganga vel í sókninni og fundu oftar en ekki opin færi. Munurinn reyndist of mikill til að heima- stúlkur næðu að vinna hann upp og lokatölur sem fyrr segir 70-77. Líkt og í síðustu leikjum þá dró Chloe Wanink vagninn fyrir Stólastúlkur. Hún gerði 40 stig í leiknum! Emese Vida var með 13 stig að þessu sinni og tíu fráköst. Eva Rún gerði níu stig og tók sjö fráköst, Fanney María og Ingigerður voru með þrjú stig hvor og Emma Katrín tvö. Tölur liðanna voru í raun mjög svipaðar, gestirnir settu niður sjö 3ja stiga skot en heimastúlkur fimm og má nánast segja að þar hafi munurinn legið. Það verður þó að segjast eins og er að gestirnir spiluðu betri vörn en Stólastúlkur í síðari hálfleiknum og boltinn gekk betur hjá þeim þannig að úr- slitin verða að teljast sanngjörn. /ÓAB 1. deild kvenna | Tindastóll – Aþena/Leiknir/UMFK 70-77 Enn eitt tapið hjá Stólastúlkum Chloe Wanink gerði 40 stig en það dugði ekki. MYND: DAVÍÐ MÁR FYRIRTÆKI Á NORÐURLANDI VESTRA Í FREMSTU RÖÐ! Við erum stolt af því að vera í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Norðurlandi vestra samkvæmt útnefningu Creditinfo. 2022 Blönduósi www.isgel.is S: 451-2727 Kæli - hita gelpokar 40/2022 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.