Feykir - 26.10.2022, Síða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Það mátti búast við hörkuleik í
Ljónagryfju Njarðvíkinga í
lokaleik 3. umferðar Subway-
deildarinnar á föstudag þegar
heimamenn tóku á móti liði
Tindastóls. Fyrir leik kom hins
vegar í ljós að báðir leikstjórn-
endur Stólanna, Pétur og Arnar,
voru meiddir og gátu ekki
spilað. Það var deginum ljósara
að aðrir yrðu að axla ábyrgð og
stíga upp en því miður, án
leikstjórnendanna frábæru, þá
var liðið líkast höfuðlausum her.
Njarðvíkingar gengu á lagið og
lönduðu öruggum 91-68 sigri.
Njarðvíkingar tóku strax til
óspilltra málanna og komust í
5-0 og 11-3 en Stólarnir náðu
að svara fyrir sig, enda vantar
ekki gæðaleikmennina í liðið.
Staðan var 24-20 að loknum
fyrsta leikhluta. Taiwo negldi
niður þristi í upphafi annars
leikhluta og Zoran bætti tveim-
ur stigum við og skyndilega
voru Stólarnir komnir yfir og
útlit fyrir spennuleik. Næstu
mínútur voru skemmtilegar,
Njarðvíkingar náðu aftur
forystunni en Orri Svavars
jafnaði 31-31 þegar fjórar
Subwaydeildin | Njarðvík – Tindastóll
Höfuðið vantaði á herlið Stólanna
Tindastólsmenn söknuðu Péturs og Arnars og náðu sér ekki á strik í Njarðvík.
MYND. HJALTI ÁRNA
mínútur voru liðnar. Síðustu
þrjár mínútur fyrri hálfleiks
snérist leikurinn og það mest
fyrir tilstilli Deon Basile sem
var frábær bæði í vörn og sókn.
Meistaraverkið hans var að
kynda svo duglega undir
Keyshawn að okkar maður
kastaði boltanum í hann og
fékk dæmda á sig tæknivillu og
fékk þar með fjórðu villuna
sína. Á þessum kafla breyttist
staðan úr 34-33 þegar fimm
mínútur voru til hálfleiks í 52-
37 í hálfleik (18-4 sveifla).
Tindastólsmenn áttu engin
svör í þriðja leikhluta sem
heimamenn unnu með 15
stigum og staðan 81-51 að
honum loknum. Fjórði leikhluti
var því bara formsatriði að
þessu sinni en hann unnu þó
Stólarnir 10-17 og náðu að láta
lokatölur líta aðeins betur út –
eða þannig.
Að þessu sinni var Drungilas
stigahæstur Stólanna með 17
stig og tók átta fráköst. Þá
mæddi talsvert á Ragnari sem
gerði ellefu stig og tók níu
fráköst. Keyshawn gerði 15 stig.
Aðrir voru undir tíu stigunum
og vonbrigði að sjá Zoran og
Taiwo ekki gera betur þegar á
þurfti að halda. En áfram gakk!
/ÓAB
Stólastúlkur fengu sameinað lið Aþenu/Leiknis/
UMFK í heimsókn í Síkið sl. föstudagskvöld í 1.
deild kvenna. Eftir ágæta byrjun Tindastóls náðu
gestirnir tökum á leiknum og um miðjan þriðja
leikhluta höfðu þeir búið sér til dágott forskot
sem heimastúlkur náðu aldrei að brúa þrátt fyrir
nokkrar ágætar tilraunir. Lokatölur 70-77.
Chloe og Emese gáfu tóninn í byrjun leiks og
Tindastólsliðið komst í 10-2. Þristur frá Ingigerði
kom muninum í tíu stig, 17-7, þegar tæpar sex
mínútur voru liðnar af leiknum en þá brettu
gestirnir upp ermarnar og gerðu næstu ellefu stig
og komust yfir. Körfur frá Chloe og Emese sáu til
þess að Stólastúlkur leiddu, 21-18, að loknum
fyrsta leikhluta. Jafnt var á flestum tölum fyrstu
mínútur annars leikhluta en gestirnir áttu smá
sprett um miðjan leikhlutann og komust sex
stigum yfir, 25-31. Staðan 34-38 í hálfleik.
Eftir tæplega fjögurra mínútna leik í síðari
hálfleik var munurinn orðinn tíu stig, 38-48, og
hélst sá munur næstu mínútur en lið Tindastóls
kláraði leikhlutann ágætlega og var enn í góðum
séns að honum loknum eftir að hafa minnkað
muninn í þrjú stig, 51-54. Fjórði leikhluti þróaðist
líkt og sá þriðji, gestirnir áttu góðan kafla fyrir
miðan leikhluta og náðu mest 14 stiga forystu,
53-67. Chloe var drjúg á lokakaflanum en
gestirnir áttu jafnan ás í erminni, létu boltann
ganga vel í sókninni og fundu oftar en ekki opin
færi. Munurinn reyndist of mikill til að heima-
stúlkur næðu að vinna hann upp og lokatölur
sem fyrr segir 70-77.
Líkt og í síðustu leikjum þá dró Chloe Wanink
vagninn fyrir Stólastúlkur. Hún gerði 40 stig í
leiknum! Emese Vida var með 13 stig að þessu
sinni og tíu fráköst. Eva Rún gerði níu stig og tók
sjö fráköst, Fanney María og Ingigerður voru
með þrjú stig hvor og Emma Katrín tvö. Tölur
liðanna voru í raun mjög svipaðar, gestirnir settu
niður sjö 3ja stiga skot en heimastúlkur fimm og
má nánast segja að þar hafi munurinn legið. Það
verður þó að segjast eins og er að gestirnir spiluðu
betri vörn en Stólastúlkur í síðari hálfleiknum
og boltinn gekk betur hjá þeim þannig að úr-
slitin verða að teljast sanngjörn. /ÓAB
1. deild kvenna | Tindastóll – Aþena/Leiknir/UMFK 70-77
Enn eitt tapið hjá Stólastúlkum
Chloe Wanink gerði 40 stig en það dugði ekki. MYND: DAVÍÐ MÁR
FYRIRTÆKI Á
NORÐURLANDI VESTRA
Í FREMSTU RÖÐ!
Við erum stolt af því að vera í hópi
framúrskarandi fyrirtækja á Norðurlandi vestra
samkvæmt útnefningu Creditinfo.
2022
Blönduósi
www.isgel.is
S: 451-2727
Kæli - hita gelpokar
40/2022 5