Feykir


Feykir - 23.11.2022, Blaðsíða 8

Feykir - 23.11.2022, Blaðsíða 8
Feyki í jólapakkann! Það er frábær hugmynd að gefa áskrift að Feyki í jólagjöf, fullan af vikulegum fréttum, fróðleik og skemmtun af Norðurlandi vestra. Gjöfin sem heldur áfram að gefa Kynntu þér málið og vertu með Feyki – fjörmegin í lífinu! Hafðu samband við Nýprent í síma 455 7171 og kynntu þér málið. BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS Um veturnætur Tveir menn úr Skagafirði gengu fram á Eyvindar- staðaheiði í trippaleit, Jón Jónsson frá Axlar- haga og Björn sonur Gottskálks Þorvalds- sonar ,,frá nýbýli því við Mikley, er Hringey er kallað, er Gottskálk byggði að ráði Ásmundar prests Gunn- laugssonar.“ Þeir félagar villtust, unz þeir fundu aðra trippaleitarmenn vestur á Kúluheiði. Þeir fóru þá aftur norður yfir Blöndu þar uppi á heiðunum. Þeir villtust á nýjaleik á Eyvindarstaðaheiði, fundu eigi trippin og komust að lokum ,,ódauðir aðeins ofan að Fossum fremsta bæ í Svartárdal, voru þá mjög kalnir og Björn á hendur og fætur, en Jón ei nema á fæturna.“ Um svipað leyti var maður ,,sendur frá Höskuld- sstöðum á Skagaströnd eftir lækningameðölum til Stefáns bónda Tómassonar á Egilsá. Spurðist ei síðan til hans, en stafur hans fannst uppistandandi í Krossa- nessporðum. /PF Skagfirskur annáll 1847–1947 Kristmundar Bjarnasonar 1854 Eftir tveggja ára Covid-hlé býður Rótarýklúbbur Sauðárkróks til ókeypis jólahlaðborðs á ný í íþrótta- húsinu á laugardaginn milli klukkan 12 og 14. Viðburðinum var hleypt af stokkunum í upphafi aðventu 2013 og hefur fest sig í sessi sem ómissandi þáttur í jólaundirbúningi Skagfirðinga. Vel hefur verið mætt í öll þau skipti sem hægt hefur verið að efna til veislunnar. Ómar Bragi Stefánsson, Rótarýfélagi, sagðist í samtali við Feyki ánægður að geta boðið upp á jólahlaðborð á ný og Rótarýfélagar hlakki til að taka á móti gestum eftir tveggja ára stopp. Hann segir alla hjartanlega velkomna um leið og hann hvetur sem flesta til að mæta. Boðið verður m.a. upp á forrétti, laufabrauð, hangikjöt, bayonneskinku ásamt meðlæti og jóla- drykk. Frítt er inn en fólk getur lagt fram frjáls framlög á staðnum. / PF Jólahlaðborð um næstu helgi Rótarýklúbbur Sauðárkróks Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 44 TBL 23. nóvember 2022 42. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Frá jólahlaðborði Rótarý 2019. MYND: ÓAB Ragnar Þór Jónsson, húsasmiður Hofsósi, er Liverpoolmaður og spáði sínu liði í toppbaráttuna en er orðinn eitthvað efins eftir slæma byrjun á þessu tímabili. Hann er þó mun bjartsýnni á gengi liðsins í Meistaradeildinni og spáir toppárangri. Hann hefur einu sinni farið á leik og sá þá gullaldarlið Liverpool spila, og þá voru innan borðs helstu goðsagnir félagsins. Ragnar Þór svarar hér spurningum í Liðinu mínu. Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Liverpool, veit ekki af hverju. Ég var mjög ungur þegar ég byrjaði að halda með Liverpool en þá sá maður leikina viku gamla, heillaðist af Kevin Keegan á sínum tíma. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Spáði þeim 2. sæti en efast um að það náist. Hélt að ekkert lið myndi vinna Man. City í vetur en Arsenal trónir á toppnum enn sem komið er og hafa komið á óvart með mjög skemmtilegri spilamennsku. Held að Liverpool verði í topp fjórum þegar deildin klárast og eigum við ekki bara að segja að Liverpool vinni Meistaradeildina. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Nei, alls ekki. Byrjuðum tímabilið mjög illa og allra verst var að tapa fyrir Leeds þar sem mjög margir minna vina eru Leedsarar. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já, mörgum sinnum, gerist oft í hita leiksins þegar margir eru að horfa. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Steven Gerrard. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já, einu sinni sá ég þá spila á White Hart Line 1984, töpuðum fyrir Tottenham 1-0 og það var mikil upplifun þar sem þetta var fyrsta kvöldið mitt í útlöndum á ævinni. Þarna sá ég gullaldarlið Liverpool spila, þar sem þeir unnu marga titla á tíu ára tímabili. Má þar nefna Ian Rush, Sammy Lee, Jan Molby, Alan Kennedy, Bruce Grobbelaar, Kenny Daglish o.fl. Ógleymanlegur leikur, svo er ég alltaf á leið á Anfield, stefni á það í vetur. Langar að sjá þá á Anfield með Klopp við stjórnvöldin. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já treyju og bolla. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðn- ingi við liðið? -Það gekk ekki mjög vel. Elsti sonur minn er harður Liverpool maður, yngri sonurinn heldur með Man. United og skil ekki hvað klikkaði, dóttirin heldur með Chelsea. En öll barnabörnin mín halda með Liverpool! Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Nei, það gerir maður ekki. Uppáhalds málsháttur? -Sá hlær best sem síðast hlær. Einhver góð saga úr boltanum? -Ekki beint saga en verð að minnast á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni 2005 þegar Liverpool mætti AC Milan. Staðan var 3-0 í hálfleik og þetta virtist búið en Liverpool jafnaði í seinni, þá var framlengt og við unnum í vítaspyrnukeppni. Þessum leik gleymi ég aldrei. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Nei, ekki sem ég man. Spurning frá Höllu Stefáns: -Er Liverpool komið í gang eftir glæsilegan sigur á Man. City um helgina [16. október]? -Hélt það en svo hafa komið of margir tapleikir. Held að við komum sterkir til leiks eftir HM, vonandi með alla heila. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Elvar Birgisson, Ríp. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Ertu bjartsýnn á það að Man. United sé komið með stjóra sem mun vera lengur en eitt til tvö tímabil eins og hefur verið síðustu ár? Ragnar Þór telur að hans menn í Liverpool komi sterkir til leiks eftir HM. MYND AÐSEND Steven Gerrard í uppáhaldi LIÐIÐ MITT | palli@feykir.is Ragnar Þór Jónsson | Liverpool

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.