Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 7
Það var árið 1980 sem Þú
og ég komu allri íslensku
þjóðinni í hátíðarskap með
því að syngja um að komast
í hátíðarskap – „...ryksugan
á gólfinu en brátt skal húsið
skreytt!“ Dúettinn Þú og ég
var feikivinsæll á þessum
árum, skipaður Jóhanni
Helgasyni og auðvitað
Helgu Möller. Helga var
síðan í Icy-flokknum með
Eiríki Hauks og Pálma Gunn
sem flutti fyrsta Eurovision-
framlag Íslands, sjálfan
Gleðibankann, í Bergen 1986.
Þá má geta þess að Helga
hefur sungið ófá lögin með
Geirmundi Valtýs, lög á borð
við Ort í sandinn, Þúsund
kossar, Hvort ég vaki eða
sef og Ég hef bara áhuga á
þér. JólaFeykir náði að plata
Helgu í að svara Jóla-Tón-
lystinni sem hún gerði á
methraða að sjálfsögðu.
„Ég heiti fullu nafni Helga
Möller og bý í Vefarastræti í
Mosfellsbæ þar sem ég hef
nú búið í fjögur ár,“ segir
Helga þegar hún er beðin
um að gera grein fyrir sér.
„Ég er ættuð frá Stykkishólmi
en afi minn, William Thomas
Möller, var þar pósthústjóri.
Pabbi minn hét Jóhann
Georg Möller, skrifstofustjóri
hjá Johnson og Kaaber, og
mamma mín hét Elísabet Á.
Möller, skrifstofustjóri hjá
Geðvernd, fædd og uppalin í
Vestmannaeyjum.“
Aðalhljóðfæri Helgu eru
að sjálfsögðu raddböndin en
þar fyrir utan segist hún spila
smá á píanó og eins á gítar en
hún byrjaði tónlistarferilinn 14
ára sem trubador í Tónabæ,
Klúbbnum og í skólanum
sínum. „Ég hugsa að mitt
stærsta tónlistarafrek sé nú
að hafa verið fyrsti flytjandi
Íslendinga í Eurovision ásam
Eiríki og Pálma og eins ferill
minn með dúettinum Þú og Ég
á diskótímabilinu,“ segir Helga
aðspurð um helstu afrekin á
tónlistarsviðinu.
Það er nóg framundan hjá
Helgu. „Jólatímabilið hefur alltaf
verið mitt uppgrip í tónlistinni,
nema á tímum covid, og ég
hlakka mikið til að upplifa
það aftur. Ég er með Magnúsi
„Hátíðarskap er það
sem mér þykir vænst um“
Helga Möller | söngkona og Eurovisionfrumkvöðull jólalag en Hátiðarskap er það
sem mér þykir vænst um.“
Hvert er fyrsta jólalagið sem
þú manst eftir að hafa heyrt?
„Jingle Bells.“
Hvernig eru jólalögin best?
„Ég er meira fyrir róleg jólalög.“
Þú vaknar í rólegheitum á
jóladagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? „Á jóladagsmorgni
vil ég ekki heyra neitt. Þá er ég
á náttfötunum með góða bók,
afganga og jólaöl – ein heima
og nýt þess í ræmur.“
Þú átt þess kost að fara
hvert sem er í heiminum og
skella þér á tónleika. Hvert
færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? „Ég
myndi vilja fara til London
með Elísabetu Ormslev, dóttur
minni, að sjá Adele.“
Hvaða tónlistarmaður hefur
þig dreymt um að vera? „Mig
hefur dreymt um að vera eins
og Joni Mitchell.“
Þú hefur sungið mikið af
lögum með og fyrir Geirmund
og þar er lagið Ort í sandinn
sennilega þekktast, enda
gullfallegt. Hvaða annað lag
Geirmundar sem þú hefur
sungið er í uppáhaldi hjá
þér? „Ég elska að syngja
Geirmundar lögin og hef
sungið þau mörg. Eftir Ort í
sandinn er það Komdu til mín
aftur en ég elska rólegu lögin
hans Geirmundar.“
Margir virðast tengja við það
að einhver plata hafi gripið þá
heljartökum á yngri árum og
það sé platan þeirra. Hvaða
plata væri það fyrir þig og
hvers vegna? „Það er fyrsta
platan sem ég eignaðist með
Elton John en hún einfaldlega
heillaði mig.“
Ef þú gætir valið þér að syngja
dúett með hvaða söngvara
sem er, lífs eða liðnum, hver
væri það og hvaða lag yrði
tekið? „Ég myndi vilja syngja
Unforgettable með Nat King
Cole, það er dásamlegt lag og
flutningur.“
Hvenær eru jólin komin?
„Jólin koma til mín þegar
ég hef klárað að syngja
jólalög fyrir utan hjá Gilberti
úrsmið á Laugaveginum á
Þorláksmessu. Þangað kemur
alltaf sama fólkið aftur og aftur
og ég hef verið þarna í mörg
ár – nema í covid. Nú er bara
að vona að Gilbert taki það upp
aftur.“
Kjartanssyni á jólahlaðborði
Bryggjunnar í Grindavík þar
sem við syngjum og spilum
jólalög og einnig spilum við
fyrir dansi. Við komum fram 25.
og 26. nóvember og 2. og 3. des
og 9. og 10. desember.“ Fyrir
viku var Helga á tónleikum
Jóns Ólafssonar, Af fingum
fram, í Salnum en þar var farið
yfir feril hennar og lífshlaup í
tali og tónum. En vindum okkur
í spurningarnar...
Hvaða lag varstu að hlusta
á? „Ég var að hlusta á lagið
Both Sides Now með Joni
Mitchell sem var fyrirmynd
mín í tónlistinni þegar ég var
að stíga mín fyrstu skref sem
söngkona, 14 ára.“
Uppáhalds tónlistartímabil?
„Uppáhalds tímabilið í tón-
listinni er þegar ég var að
upplifa frábæra tónlist á ungl-
ingsárunum. Ég hef aldrei
keypt eins mikið af plötum; Led
Zeppelin, Eagles, Joni Mitchell,
Janis Ian, Barbara Streisand,
Elton John, Carol King, James
Taylor og svona gæti ég lengi
talið upp. Á þessum tímum var
mikið um raddir í lögunum og
ég elskaði að stúdera ólíkar
raddanir. Allar söngkonurnar
voru mínar fyrirmyndir og
ég söng og stúderaði þær í
drasl og prógrammið mitt var
m.a. með lögum þeirra. Ég
klæddist eins og þær og vildi
vera eins og þær. Ég fór að
sjá James Taylor þegar hann
kom til landsins og það var
ein af mínum stærstu stundum
og stund sem ég mun aldrei
gleyma. Ég var svo hrifin að ég
kallaði upp yfir mig: „I love you
James!” sem kom börnunum
mínum mikið á óvart en þau
voru með mér á tónleikunum.“
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
„Ég er mikil alæta á tónlist og
finnst alltaf jafn gaman að
heyra nýja íslenska tónlist.“
Hvers konar tónlist var hlustað
á á þínu heimili? „Pabbi hlust-
aði eingöngu á klassíska tón-
list en við systkinin á okkar
tónlist.“
Hver var fyrsta platan/diskur-
inn/kasettan/niðurhalið sem
þú keyptir þér? „Fyrsta platan
sem ég keypti mér var fyrsta
platan með Elton John. Man
ekki alveg hvað hún heitir
[platan heitir Elton John og
inniheldur m.a. lögin Your
Song, Border Song og Take
Me To The Pilot].“
Hvaða græjur varstu þá með?
„Ég byrjaði að taka upp tónlist
á forláta kassettutæki sem
pabbi átti og ég man að ég bað
til Guðs að þáttastjórnendurnir
myndu nú ekki tala inn á lagið
sem þeir gerðu allt of oft. Maður
vildi ná laginu í heilu lagi. Svo
eignaðist ég sambyggðar
græjur, útvarp og kassettutæki
og plötuspilara sem var algjör
bylting.“
Hvað tónlist hlustar þú helst á
í jólaundirbúningnum? „Bara
alls konar jólalög bæði íslensk
og erlend. Nat king Cole og
Sigurður Guðmundsson eru í
miklu uppáhaldi.“
Hvaða músík var helst blastað
í bílnum þegar þú varst ný-
komin með bílpróf? „Ég man
bara ekki hvaða tónlist var
blastað í bílnum því það er svo
langt síðan að ég fékk bílpróf
eða bara hvort það var yfir
höfðuð komið útvarp í bíla þá.“
Hvert var uppáhalds jólalag
unglingsáranna? „Öll jólalög
Ellýar Vilhjálms og Villa Vill.“
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir
þér daginn? „Öll tónlist sem er
eins og lupa, sífellt endurtekið
stef, það þoli ég mjög illa.“
Hvenær má byrja að spila
jólalögin? „Það má bara
byrja strax á að spila jólalög
fyrir mér. Ég hef komið fram í
jólaboði í júní hjá henni Kötlu
í Systur og Makar og það var
ótrúlega skemmtilegt.“
Uppáhalds jólalagið? „Ég bara
get ekki valið eitt uppáhalds
Helga Möller í stuði.
AÐSEND MYND
TÓN-LYSTIN
Óli Arnar Brynjarsson
72022