Feykir - 05.12.2022, Page 10
„Silli kokkur var ótvíræður
sigurvegari hinnar árlegu
Götubitahátíðar sem haldin
var í Hljómskálagarðinum. Er
það þriðja árið í röð frá því
hátíðin hóf göngu sína sem Silli
kokkur vinnur keppnina um
besta götubitann,“ segir í frétt
Fréttablaðsins þann 23. júlí
síðastliðinn. Í október var svo
gert strandhögg í Þýskalandi
þar sem keppni um besta
götubita Evrópu fór fram og
var borgarinn hans Silla valinn
sá besti en matarvagn Silla
í öðru sæti í kosningu gesta
hátíðarinnar.
„Besti götubiti Íslands er
titill sem við höfum unnið
síðan við keyptum vagninn
eða þrju ár í röð. Við erum
með hreindýraborgara, gæsa-
borgara, gæsapylsur og hrein-
dýrapylsur en í ár var það
gæsaborgarinn sem vann og það
eru hann og hreindýrapylsan
sem við fórum með út að
keppa í Þýskalandi um besta
götubita Evrópu. Þar vann
gæsaborgarinn Besti borgari
Evrópu en við enduðum
síðan í öðru sæti í dómaravali
um besta götubita í heild sinni
í Evrópu og einnig urðum við í
öðru sæti í kosningu um Besta
götubita fólksins en það var
kosning sem fór fram á staðnum
hjá gestum hátíðarinnar. Þetta
var rosaleg upplifun að fara
svona ferðalag með vagninn og
gekk rosalega vel og voru ansi
margir sem fóru þetta ferðalag
með okkur, fjölskylda og vinir,
og meðal vina eru t.d vinir sem
við höfum eignast á ferðlagi
okkar um landið með vagninn,“
segir Silli hróðugur.
Þau hjónin Elsa Blöndal Sig-
fúsdóttir og Sigvaldi Jóhann-
esson, eða Silli kokkur, reka
Silli kokkur og Elsa Blöndal
eiga heitasta matarvagn landsins
Óhætt er að fullyrða að Silli kokkur
bjóði upp á bestu borgara álfunnar en
þeir hafa slegið í gegn í keppnum um
besta götubitann bæði hérlendis sem erlendis. Skagfirðingar
hafa reglulega fengið tækifæri til að nálgast hnossgætið
þegar Silli mætir með matarvagninn á planið fyrir utan
verkstæði Gylfa Ingimars og dásama undantekningarlaust
það sem ratar í belginn. Feykir forvitnaðist um Silla kokk,
besta borgarann og tengingu hans við Skagafjörð.
v e i s l u þ j ó n -
ustu og hafa gert í ansi mörg ár
en Silli segir að það hafi verið
í covid að engar veislur voru
haldnar sem þau fóru að íhuga
hvað annað væri mögulega
hægt að gera. „Ég hafði fyrir
jólin og svona verið að framleiða
borgara og pylsur, aðallega fyrir
fjölskyldu og vini,
en úr varð hugmyndin að útbúa
grillpakka sem fólk gæti tekið
með heim og grillað eitthvað
annað en þetta hefðbundna.
Þetta varð ofsalega vinsælt
og ég alltaf að prufa eitthvað
nýtt sem varð til þess að okkur
langaði til að fólkið fengi að
Bjóða upp á
besta borgarann
í Evrópu
smakka þetta eins og ég hafði
hannað og hugsað þetta og úr
varð að við byrjuðum með take
away fyrir utan eldhúsið okkar á
Kársnesbrautinni. Fólk kom þar
keyrandi og sat í bílum sínum og
börnin okkar, Grétar Jóhannes
og Petrós María, hlupu á milli bíla
með grímur og hanska og tóku
VIÐTAL
Páll Friðriksson
10 2022