Feykir - 05.12.2022, Side 16
Vill ná náttúrulegum myndum
þar sem fólki líður vel í sínu elementi
Brúðkaupsdagurinn getur verið misjafn hjá fólki. Sumir
skjótast til sýslumanns og svo kannski út að borða,
birta jafnvel eina sjálfu á Facebook í tilefni af tíma-
mótunum. Önnur pör leggja heldur meira í daginn.
Undirbúningur tekur kannski fleiri mánuði, fjöldanum
öllum af fólki er boðið með tilheyrandi umstangi og allt
gert og ekkert til sparað til að búa til ógleymanlegan
hamingjudag. Eitt af því sem flestir vilja er að eiga
fallegar og skemmtilegar myndir frá deginum stóra. Og
þá er eins gott fyrir myndasmiðinn að klúðra ekki
tökunni. Feykir hafði samband við Írisi Ösp Svein-
björnsdóttur, hönnuð og ljósmyndara, og spurði aðeins
út í brúðarmyndatökur og eitt og annað tengt.
Íris Ösp er Króksari að uppruna, fædd sumarið 1981 og
dóttir Maríu Lóu Friðjónsdóttur og Sveinbjörns
Ragnarssonar. Hún býr nú á höfuðborgarsvæðinu, er í
sambúð með Rögnvaldi Óla Jónssyni, á þrjú börn +
bónusbörn, eins og hún segir sjálf. Hún kláraði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík og Accademia Italiana í
Flórens á Ítalíu. Nú starfar hún hjá ENNEMM
auglýsingastofu við auglýsingagerð og ljósmyndun en
er til hliðar með Reykjavík Underground Design Studio
fyrir sína persónulegu vinnu.
„Ég hef alltaf leitað í sköpun og uni mér best í skapandi
umhverfi,“ segir Íris þegar hún er spurð hvað hafi leitt
hana á braut hönnunar og ljósmyndunar. „Ég byrjaði
mjög ung að munda myndavélina og hef alltaf verið að
búa eitthvað til í höndunum. Ég var búin að vinna við
auglýsingagerð og alltaf að taka myndir við alls kyns
tilefni í nokkur ár þegar ég ákvað loksins að ná mér í BA
gráðuna. Þá fór ég alla leið og nam grafíska hönnun og
ljósmyndun í fjögur ár í Flórens á Ítalíu.“
Ég geri ráð fyrir að það fari vel á því að geta blandað
þessu tvennu saman í starfi? „Fyrir mig er þetta algjör
draumur, ég elska að gera hvort tveggja og það eru svo
mikil forréttindi að starfa við það sem maður elskar. Svo
brýtur þetta líka oft upp vikuna á stofunni þegar ég fæ
verkefni utanhúss og get þar af leiðandi staðið upp frá
tölvunni við og við.“
Hvað er skemmtilegast við að vinna við hönnun?
„Oooh, þetta er nú yfirleitt allt svo skemmtilegt! Það hefur
líka svo mikið að segja að vinna á skemmtilegum
vinnustað með yndislegu fólki sem bæði fær þig til að
hlæja og gefur þér innblástur og hvatningu. Ég hef verið
að vinna mikið undanfarið fyrir Smáralindina og er stolt
af því teymi. Ég er einnig mjög stolt af merki Skógarbaða
sem ég hannaði, BBQ bókin hans Alfreðs Fannars var
líka skemmtilegt verkefni og svo eiga „Hringir“ sérstakan
stað í hjartanu,“ segir Íris. „Það er auðvitað skemmtilegast
þegar kúnninn treystir manni og gefur manni nokkuð
frjálsar hendur til að skapa. Svo eru það báðar hliðar á
ólíkum verkefnum. Til dæmis bókin BBQ kóngurinn var
unnin í samstarfi með Fannari Scheving, þar fékk ég
útlitspælingar og hugmyndir um teikningar sem ég
fylgdi eftir og setti upp og teiknaði eins og mér fannst
henta verkefninu sem gekk mjög vel eftir. Svo er hin
hliðin eins og nýjasta Smáralindar-auglýsingin sem er
unnin í risastóru teymi en allir hlekkir þurfa að haldast í
hendur til að allt gangi vel.“
Er þetta erfið vinna eða mætir þú hverjum degi með
bros á vör og full af áhuga á þeim verkefnum sem þú
ert að fást við? „Ég hef alltaf verið léttlynd og jákvæð í
eðli mínu þannig að langflesta daga er ég spennt fyrir
því sem koma skal. Auðvitað þarf maður samt að fá
skapandi örvun í starfi og að finna eða sækja sér
MYNDASMIÐURINN | Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir | UMSJÓN oli@feykir.is
Íris Ösp.
16 2022