Feykir - 05.12.2022, Síða 18
að taka með mér spegil í myndatöku í sumar og fannst
það koma skemmtilega út.“
Hvað er það helst sem getur gert brúðarmyndatöku
erfiða? „Það er þá helst að fólk er búið að gera sér í
hugarlund einhvern draumadag þar sem ekkert má út
af bregða. Ég skil að væntingarnar eru miklar, enda
ætlar maður sér bara að gera þetta einu sinni yfir
ævina. Ég lenti einu sinni í því að brúðurinn fór alveg í
kleinu með tárin í augunum út af hlut sem ég man ekki
einu sinni nákvæmlega hver var en það var eitthvað
álíka eins og bindi brúgumans var ekki komið í hús –
en samt alveg þrír klukkutímar í athöfn. Fólk á að reyna
að minna sig á að njóta dagsins og taka því sem koma
skal og reyna að gera gott úr því sem miður fer. Svona
bara eins og í lífinu.“
Nú er sennilega allur gangur á því hvernig ljós-
myndarar skila af sér brúðarmyndum. Hvaða leið ferð
þú eða hverju mælir þú með? „Eftir að Facebook og
Instagram tröllriðu yfir heiminn er fólk mjög spennt að
pósta myndum á samfélagsmiðlum fljótlega eftir
brúðkaup. Ég veit það og ég skil það. Venjan er að ég
vel út 6-10 myndir ca. sem ná mér strax og vinn þær
fyrst og sendi í þannig upplausn að fólk geti hent þeim
út í alheiminn. Svo koma hinar í kjölfarið. Eftirvinnslan
er reyndar mjög mismunandi, sumir vilja fá einhverja
ákveðna stemmingu, mood í litatónum og svo eru svart
hvítar myndir alltaf tímalausar og fallegar.“
Er einhver brúðarmyndataka sem er eftirminnilegust?
„Það er alltaf eitthvað sérstakt við hverja einustu
myndatöku sem gerir hana sérstaka, en það var
hrikalega fyndið þegar brúður sendi mér einu sinni
staðsetningu á Google maps því þau eiga sérstakan
stað sem þau vildu mynda á fyrir brúðkaupið sjálft. Ég
hugsaði á leiðinni að það hefði kannski verið ágætt að
láta mig vita að ég þyrfti sérútbúinn jeppa til að komast
á áfangastað en Toyotan mín fékk heldur betur að finna
fyrir því, því þangað skyldi ég komast og vel áður en
brúðhjónin mættu á svæðið til að vera búin að kynna
mér staðhætti. Ég var komin eitthvert lengst inni í dal,
keyrandi torfæruslóða án símasambands og skildi
ekkert hvað væri svona heillandi við þetta umhverfi.
Þegar ég tók svo ákvörðun um að fara til baka og fá
bara far með brúðhjónunum, komst ég í símasamband
og þá kom í ljós að ég var á kolröngum stað. Allir gátu
hlegið að þessu og myndatakan gekk ljómandi vel,“
segir Íris Ösp að lokum.
Hverju þurfa brúðhjónin að muna eftir – eða gleyma – í
myndatökunni? „Kannski helst að taka sig ekki of
alvarlega því þetta er jú gleðidagur og fólk á fyrst og
fremst að njóta hans og ástarinnar í botn – það er svo
mitt að fanga augnablikið.“
Ertu með fastmótaðar hugmyndir um myndatökuna
eða gerist alltaf eitthvað spontant, einhver galdur sem
gerir myndatökuna? „Það er alltaf undirbúningur, ég hef
aldrei farið í myndatöku óundirbúin en jafnframt er alltaf
eitthvað sem kemur upp á, einhver hugmynd sem
kviknar, stundum áður og oft á staðnum. Ég prófaði t.d.
Íris Ösp setti upp
ljósmyndasýningu í
Kaupmannahöfn í apríl á
þessu ári. Feykir spurði
hana út í verkefnið og
hvernig hafi gengið.
„Hringir er verkefni sem
ég er búin að vera að
vinna að síðan 2016. Ég
var að vinna í ljósmynda-
verkefni á Snæfellsnesi
og sit í mosanum í smá
pásu og fer að velta fyrir
mér hversu falleg
munstrin voru í hrauninu
og mosanum. Þarna
kviknaði hugmyndin. Það
eru svo margir færir
landslagsljósmyndarar að
gera geggjaða hluti og
mér finnst ég ekki þurfa
að taka pláss þar. Fór
meira að hugsa um þessa
liti og mynstur í náttúr-
unni sem hverfa svo oft
bara undir skósólann hjá
okkur og endaði á að
kaupa mér macro linsu
sem er þeim hæfileika
gædd að geta súmmað
nær viðfangsefninu í
góðum gæðum.
Fyrsta serían, Hraun og
mosi, var sett að hluta til
upp í Norræna húsinu
vorið 2020 og stóð yfir í
meira en ár. Næsta sería,
Fjaran, var svo sett upp í
Gallerý Gróttu haustið
2021. Við myndirnar
fæddust svo ljóð sem
allar tengdust móður jörð
og tengingunni milli
hennar og mæðra. Þessi
pæling að við eigum öll
sameiginlegu móðurina.
Móðirina sem getur verið
svo mjúk og hlý en líka
hrjúf og hörð. Pælingin
með hringformið er þessi
tenging við hið óendan-
lega og mjúkar línur
náttúrunnar, móður
náttúru. Þegar ég var búin
að vinna fjórar seríur gaf
ég út ljósmynda- og
ljóðabók og var með
útgáfuhóf í Kaupmanna-
höfn ásamt myndum úr
fyrstu fjórum seríunum
– Það gekk vonum framar
og ég er ennþá í skýj-
unum með sýninguna.
Það er svo magnað hvað
fólk er að tengja við
myndirnar. Sumir tengja
mest við fjöruna, aðrir við
skóginn o.s.frv.
Ég er ekki góð í að mark-
aðsetja sjálfa mig og er að
leita mér að umboðs-
manni til að koma verk-
unum mínum á framfæri
og í sölu – blikk, blikk.“
Hægt er að skoða síðu Írisar:
https://www.reykjavik-underground.com/hringir og á Instagram: @hringir.circles
GAF ÚT LJÓSMYNDA- OG LJÓÐABÓK
Hringir
Íris ásamt dótturinni, Söru Lind.
18 2022