Feykir - 05.12.2022, Blaðsíða 21
HJÖRDÍS
Döðlukaka
Hráefni:
1 dl döðlumauk (6 ferskar döðlur
& u.þ.b. ½ dl vatn)
4 eggjahvítur
100 g döðlur, saxaðar
50 g suðusúkkulaði (hægt að skipta út
fyrir sykurlaust súkkulaði)
1 dl kókosmjöl
Aðferð: Setjið saman döðlur og vatn í pott á
miðlungs stillingu og leyfið að malla þangað til
það er orðið að mauki.
Stillið ofn á 170°C blástur. Stífþeytið eggjahvít-
urnar, hægt er að kaupa saxaðar döðlur en
ef þið notið heilar skerið þær niður í litla bita
ásamt súkkulaðinu. Setjið döðlumaukið, döðl-
urnar, súkkulaðið og kókosmjölið saman við
eggjahvíturnar og hrærið varlega saman með
sleikju.
Spreyið 20 cm form að innan með PAM spreyi
en einnig er hægt að setja bökunarpappír í botn-
inn. Skellið deiginu í formið og bakið í 15-20
mínútur. Leyfið kökunni að kólna.
Krem:
100 g dökkt súkkulaði
2 msk kókosolía
½ dl kókosmjólk
Aðferð: Setjið hráefnin saman í skál og bræðið
saman yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni, leyfið
því að kólna og taka sig í smá tíma, dreifið
kreminu síðan yfir kökuna.
Ef kakan er borðuð samdægurs er ótrúlega gott
að setja banana yfir kökuna í sneiðum og síðan
kremið yfir. Svo er eiginlega mikilvægt fyrir þá
sem finnst rjómi góður að bera hana fram með
rjóma. Njótið!
SONJA
Danskar æbleskiver
Hráefni:
1 grænt epli, skorið í litla bita
Kanilsykur
250 g hveiti
fínrifinn börkur af einni sítrónu (passið
að börkurinn sé fínrifinn)
1 msk. sykur
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
3 egg
400 ml súrmjólk
50 g bráðið smjör til steikingar
Aðferð: Látið eplabitana í skál með kanilsykri.
Blandið vel saman og leggið til hliðar. Hrærið
öllum hinum hráefnunum, nema smjörinu,
saman í skál. Hér er gott að leyfa deiginu að
standa aðeins þannig að sítrónan nái að skila
sínu ferska bragði.
Hitið eplaskífupönnuna á meðalhita og penslið
smjöri í holurnar. Hellið deigi í um það bil ¾
hluta af holunni. Stingið eplabita í miðjuna.
Þegar það er komin skorpa að neðan er þeim
snúið við með grillpinna eða gaffli. Gert nokkrum
sinnum þar til skorpan er stökk og gullin og
eplaskífan örugglega elduð í gegn. Látið feiti
reglulega í holurnar á milli umganga þannig að
eplaskífurnar festist ekki við pönnuna.
Setjið eplaskífurnar á fat eða í skál og stráið
flórsykri yfir þær með sigti og dáist að því hversu
fallegar og girnilega þær verða.
Berið fram með góðri sultu og jafnvel jólaglöggi...
já, svei mér þá, væri það ekki hyggeligt?
EYDÍS ÓSK
Engiferkökur
fyrir önnum kafið fólk
Hráefni:
500 g hveiti
500 g púðursykur
250 g smjör/eða smjörlíki (við stofuhita)
2 egg
6 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 tsk. engifer krydd
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
Aðferð:
1. Allt sett í skál og hnoðað
saman.
2. Rúllið svo deiginu í pylsu, skerið í sneiðar
sem eru um ½ sentimetri að þykkt og setjið
á smjörpappír.
3. Bakið við 175 gráður í um 8-10 mínútur eða
þar til þær eru fallega gylltar.
Auðveldara verður það varla og bragðgóðar eru
þær!
TÓTA
Dumle kornflexnammi
með piparfylltum lakkrís
Hráefni:
300 g Dumle karamellur
130 g smjör
200 g piparfylltur lakkrís
(má að sjálfsögðu
nota eftir smekk)
90 g kornlex mulið gróflega
Aðferð: Bræðið karamellur og smjör
saman í örbylgjukönnu eða potti. Bætið lakkrís
og kornflexi út í og blandið vel saman. Setjið í
form sirka 24×34cm og þrýstið vel saman.
Sett í kæli meðan kremið er græjað
Krem:
400 g rjómasúkkulaði
60 g smjör
Aðferð: Brætt saman og hellt yfir. Sett í kæli
þangað til þú ætlar að bera það fram.
Tekið út og skorið í litla bita
JÓHANNA
Fullkomin Lava kaka
Hráefni:
115 g smjör
115 g súkkulaði
3 dl flórsykur
2 egg
3 eggjarauður
1 tsk. vanilla
1 dl og 1 msk hveiti
vanillu ís
Skraut:
70 g dökkt súkkulaði
70 g hvítt súkkulaði
Matarglimmer (má sleppa)
Aðferð:
1. Byrjið á því að útbúa skrautið með því að
bræða dökka súkkulaðið annað hvort í
vatnsbaði eða í örbylgju.
2. Setjið súkkulaðið í sprautupoka með litlum
hringlaga stút eða einfaldlega setjið það í
sterkan poka og klippið lítið gat á hornið á
pokanum.
3. Leggið smjörpappír á ofnplötu og sprautið
fyrst dökka súkkulaðinu, mynstrið skiptir
ekki máli en reynið að hafa stærðina í um
það bil 10 cm. Setjið súkkulaðið í frysti og
bræðið hvíta súkkulaðið á meðan. Setjið
það líka í sprautupoka eða venjulegan poka
(mikilvægt að þrífa pokann á milli og þurrka
hann vel) og sprautið yfir dökka súkkulaðið.
Ef þið viljið þá getið þið dreift matarglimmeri
yfir súkkulaðið. Látið súkkulaðið harðna í
ísskáp á meðan þið útbúið kökurnar.
4. Kveikið á ofninum og stillið á 220ºC.
5. Bræðið saman súkkulaði og smjör í potti á
vægum hita.
6. Hrærið flórsykri saman við súkkulaðið
og svo eggjunum þegar súkkulaðið hefur
aðeins kólnað.
7. Blandið vanilludropunum og hvetinu saman
við.
8. Smyrjið fjögur lítil kökumót (10 cm í þver-
mál) með smjöri og dustið svo hveiti yfir
smjörið. Skiptið deiginu á milli mótanna.
9. Bakið í um það bil 13 mín. eða þangað til
hliðarnar á kökunni eru orðnar stífar en
miðjan er ennþá mjúk. Látið standa í eina
mínútu áður en kökurnar eru bornar fram.
10. Til að ná kökunum á disk, leggið kökudisk
öfugan ofan á kökuformin og hvolfið svo
diskurinn snúi rétt og kökuformið öfugt,
kakan mun detta sjálf á diskinn. Setjið flór-
sykur í sigti og sigtið yfir kökurnar. Leggið
kökuskrautið ofan á kökunar og leyfið því að
bráðna ofan á þær. Berið fram með vanillu ís.
ÞÓREY
Eplakaka
Hráefni:
200 g smjör mjúkt
250 g sykur
3 egg
150 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2-3 epli
3 msk. sykur
1 tsk. kanill
Aðferð:
1. Hrærið smjör og sykur saman þar til það er
létt og ljóst.
2. Hrærið einu eggi í einu saman við.
3. Hrærið því næst hveiti og lyftidufti saman
við. Setjið smjörpappír í 22 cm hringform og
hellið deiginu þar í.
4. Afhýðið eplin og kjarnhreinsið og skerið í
þunna báta. Stingið þeim í deigið. Það er allt
í góðu þótt deigið hylji ekki öll eplin.
5. Blandið sykri og kanil saman við og stráið
yfir eplin, magn eftir smekk. Bakið við
190°C í 30-40 mínútur. Stingið prjóni í miðju
kökunnar til að ganga úr skugga um að hún
sé tilbúin. Berið fram með þeyttum rjóma og/
eða ís.
212022