Feykir - 05.12.2022, Page 22
SVEINBJÖRG RUT
Ofnbakaður Camenbert
með Mangó Chutney og
pekan hnetum
Hráefni:
1 Camenbert er penslaðar með olíu
Mangó Chutney
pekan hnetur
Aðferð: Mangó Chutney hellt yfir
ostinn og pekan hnetum stráð þar
yfir. Hann er svo bakaður í ofni þar til
hann er bráðinn og borinn fram með
góðu heimabökuðu hrökkkexi.
RÓSA
Fullkomið
föstudagskvöld
Uppskrift:
Bjór
snakk
skál
glas
rándýr bangsi sem börnin
leika sér aldrei með
eldgamalt jólatré af Gærumarkaðnum
Aðferð:
1. Fyrst þarf að verða sér út um bjórinn, gott
að vera komin snemma eða alveg á síðustu
mínútunum í ríkið, þegar það er enginn þar
svo þið þurfið ekki að standa í röð. Kaupið
bjór að eigin vali, persónulega finnst mér
ísköld Stella góð.
2. Kaupið snakk að eigin vali.
3. Setið snakkið í skál.
4. Opnið bjórinn og hellið honum í glas.
Góð tips:
> Það er ekki verra að vinna soldið með skál og
glas í stíl, lúkkar flott en annars er öllum bara
drull.
> Mæli með að hafa annan óopnaðan við
höndina, þar sem glasið á það til að tæmast
leiðinlega hratt.
> Til að gleðja augað er um að gera að finna
eitthvað rándýrt dót eða bangsa sem börnin
hafa mögulega suðað mjög lengi um en
notuðu svo aldrei til þess að lífga upp á
bjórinn sem stendur og bíður.
> Notað gamalt jólatré af Gærumarkaðnum
á Hvammstanga er svo notað til að toppa
annars frábæra uppstillingu (ekki nauðsyn
en lúkkar sjúklega vel).
INGVELDUR
Súkkulaðikúlur
Hráefni:
150 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1½ msk. kakó
100 g sykur
100 g smjör (mjúkt)
½ egg
Aðferð:
1. Allt sett í skál og hnoðað saman.
2. Velt í lengjur sem skornar eru í jafna bita.
3. Hver biti er hnoðaður milli handanna í kúlur
(6 g kúlan) sem dýft er í grófan sykur.
4. Bakaðar við jafnan yfir- og undirhita 200-
225°C í 8–10 mín.
SÍMANÚMER
FYRIRTÆKJA
Í KJARNANUM
FJÖLNET
S: 455 7900
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
S: 455 4570 I Fax 455 4571
VÉLAVERKSTÆÐI
S: 455 4560 I Fax 455 4561
Jón Geimundsson
pípulagningameistari
S: 825 4565
TENGILL ehf.
S: 455 9200 I Fax 455 9299
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
SÍMA ER
FYRIRT JA
Í KJARNA UM
& 455 9200
& 455 4570
& 455 4560
Jón Geirmundsson
pípulagning meistari
& 825 4565
SÍMANÚMER
FYRIRTÆKJA
Í KJARNANUM
FJÖLNET
S: 79
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
S: 455 4570 I Fax 455 4571
VÉLAVERKSTÆÐI
S: 455 4560 I Fax 455 4561
Jón Geimundsson
pípulagningameistari
S: 825 4565
TENGILL ehf.
S: 455 9200 I Fax 455 9299
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Maður einn á Króknum fór í verslunina Gránu
í hverri viku og keypti yfirleitt það sama í
hvert skipti af helstu nauðsynjum. Í Gránu
voru vörurnar keyptar ,,yfir borðið“ og fólk
lagði inn lista eða sagði afgreiðslufólkinu hvað
það vanhagaði um. Sagan segir að hér hafi Jón
Björnsson verið á ferð, kallaður Jón kippur, en
það hefur ekki fengist staðfest. Einn daginn
tók afgreiðslukona hjá kaupfélaginu eftir
því að maðurinn bað um tvær klósettrúllur,
en yfirleitt hafði hann bara beðið um eina.
,,Stendur eitthvað til?“ spurði konan og
maðurinn svaraði: „Ég ákvað að gera vel við
mig í þetta skiptið!“
- - o - -
Árni frá Brúnastöðum í Fljótum var staddur í
heimsókn hjá konu einni, þar sem boðið var
upp á kaffi og kleinur. Konan fór að afsaka að
kleinurnar væru ekki góðar í þetta skiptið.
Árni reyndi að gera gott úr málum og sagði
með sínum hætti, en orðin áttu það til að
koma öfugt út úr honum: „Það mega vera
góðar kleinur svo mér þyki þær ekki vondar!“
Úr Skagfirskum skemmtisögum 6
Að gera vel við sig...
22 2022