Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 27
Mánudagur
22. október 2012
Ég sef órólega í þessari hæð,
rumska nokkuð oft, hjartað
slær hraðar en í rúminu heima.
Með sínum hætti á þetta rætur
í huggróinni íhaldssemi sem
einkennir menn á góðum
aldri og sofa best í eigin rúmi:
„Drýpur af hússins upsum
erlent regn, / ókunnir vindar
kveina þar við dyr.“ Þannig
orti Jón Helgason prófessor
um söknuð fremur en heimþrá
en hér er engin rigning, hvað
þá söknuður eða heimþrá og
alls konar vindar blása annars
staðar því utan við rúðurnar er
alveg blankalogn. Fjórðungi
bregður til fósturs, segir
máltæki, og ég vil bæta öðru
við: villist hugur á framandi
velli.
Við vöknuðum í myrkri og
götuljós eru engin í Ghorepani
en útiljósker á einstaka húsi.
Við sáum út um gluggann
göngumenn með ennisluktir í
einfaldri röð paufast í myrkrinu
eins og námamenn í brekku.
Ég dett þá allt í einu inn í Kvöld
í ljósturninum eftir Gyrði Elías-
son: kápan á þeirri bók er eftir
Sigurlaug bróður hans, þar er
maður með ennislukt að lesa
bók í myrkrinu. Spurningin er
þá hvort bækur upplýsi menn?
Gengju þeir bókarlausir í
svartnætti?
Allir hótelgestir hér í þorpinu
Nú fyrir jólin kemur út smákver Sölva Sveinssonar þar sem hann
segir frá ævintýraferð til Nepals fyrir tíu árum síðan. Bókin er
146 bls., glæsilega hönnuð og prýdd fjölda litmynda. Feykir fékk
góðfúslegt leyfi til að birta einn kafla úr bókinni þar sem hægt er að
finna alldjúpa tengingu við Skagafjörð því fararstjóri ferðafélaganna
hélt búddíska minningarathöfn um Sigríði frá Djúpadal, mömmu
Eiríks, Nönnu, Siggu og Guðrúnar Rögnvalds, en Guðrún var einmitt
með í ferðinni.
Eilífð í sjónmáli
Sölvi Sveins gefur út smákver um ævintýraferð um Nepal
Háfjöll heims í morgunmósku. LJÓSM.: JÓHANNES K. SÓLMUNDSSON
eru á sömu næturgöngu: upp á
Poonhill fyrir sólarupprás. Allt
þetta fólk með skriðljós í hendi
eða á enni rifjar síðan upp með
mér eina ljóðið sem ég hef ort
og birt á prenti. Ég var sex ára
skáld. Tildrögin voru þau að
ég fékk vasaljós í jólagjöf sem
var með þrjár rafhlöður í röð
og býsna langt. Ég var stoltur
af þessu ljósfæri og orti af því
tilefni:
Það dimmir á Sauðárkróki
og hvergi eru ljós
því að allir eru úti með vasaljós.
Ég er ekki frá því að gagn-
rýnendur hefðu sagt að höf-
undur væri mjög efnilegur
og „mikils væri af honum að
vænta“; þetta ljóð væri „skrifað“
af mikilli einlægni; nú er lenska
að segja að ljóð séu skrifuð
en ekki ort. Kannski eru mörg
þeirra bara „skrifuð“ eins og
ljóðið mitt en ekki „ort“ eins og
mér þótti á vori ævinnar. Ég
segi stundum ég hafi hætt á
toppnum.
Eitthvað örlítið fengum við
að borða fyrir gönguna en við
vorum stirðleg í anddyrinu
því allir voru kappklæddir, í
ullarbrók undir vatnsheldum
buxum og með lukt á enni;
við minntum á geimfara að
undirbúa geimsvif í loftleysu.
En okkur hitnaði fljótt á
göngunni og við örkuðum
í einum rykk alla leiðina;
stönsuðum þó við miðasölu,
því að ferðalangar þurfa að
reiða fram fé til þess að ganga
á Poonhill. (Mér varð hugsað til
Gullfoss, Geysis, Dimmuborga,
Látrabjargs, Ásbyrgis, Detti-
foss, Skaftafells…). Uppi á
Poonhill voru nokkur hundruð
manns. Hæðin ber réttnefni:
Trjátopparnir eru allt í kring,
greniskógurinn teygir sig
mót skýjum og þó skemur en
fjöllin. Einungis bláber hæðin
og kragi kringum toppinn er
skógarvana.
Þarna uppi er nokkurra
hæða turn barinn saman úr
bjálkum með pöllum á öllum
hæðum, og þar stóð maður við
mann um það leyti sem blánaði
við sjónarrönd en við dreifðum
okkur um hæðina sem er vel
gróin; búddísk bænaflögg
strengd milli trjáa, mörg upp-
lituð og trosnuð í endann af
gnauði vinda. Kaffi og önnur
hressing er til sölu í skúrgarmi
og náðhús í enn lélegri skúr litlu
neðar og einungis alhraustustu
menn skyldu hætta sér þar
inn. Risafjöll bar við himin
hálfan sjóndeildarhringinn og
á sínum tíma reis sól í austri
og ljómaði um veröld alla og
víst eru þessi augnablik með
öllu ógleymanleg. Enginn
fjallahringur í víðri veröld er
eins stórfenglegur. Dhaulagiri,
meira en 8 km hár, rís hvítur
upp úr fjallaklasa sem er
litlu lægri, Nilgiri North er
næstur (7.061 m), þá Tilicho
(7.134 m), Annapurna I er
nær og Annapurna South,
Gangapurna blasir við og
síðan Annapurna III (7.555 m),
Machapuchare, Annapurna IV
(7.525 m) og lengst til hægri
í fjarska er Annapurna II
(7.937 m). Smám saman lýsir
sólin upp þetta feiknalega
svið, sést fyrst á efstu eggjum
Dhaulagiri en skríður svo niður
kaldhömruð jökul- og hamraþil
um leið og hlýnar á vanga
hér neðra. Þetta er vissulega
hátign ljóss, lita og skugga!
Kliður fer um mannskapinn og
myndavélar starfa án afláts;
Sendum íbúum Skagafjarðar og viðskiptavinum
okkar bestu jóla- og nýárskveðjur
SKAGAFJARÐARVEITUR | BORGARTEIG 15 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 6200 | SKV@SKV.IS www.skv.is
n
ýp
re
n
t
e
h
f.
|
1
2
2
0
2
2
272022