Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 30
Bjarni Gaukur er 47 ára gamall, þriggja
barna faðir; Bríet (f. 2003), Þór Óli (f. 2006)
og Olga Elísa (f. 2012), og maður Elísabetar
Jónsdóttur, Betu. Hún er hönnuður og
menningarstjóri sem starfar í dag sem
upplifunar- og viðburðarstjóri í Elliðaárdal
þar sem hún vinnur ötullega að því að gera
þá náttúruperlu að aðgengilegum fólk-
vangi fyrir íbúa Reykjavíkur og aðra gesti.
Bjarni er fæddur í Reykjavík en að
mestu ættaður af Austfjörðum og úr
Austur-Skaftafellssýslu en þriggja ára
gamall flutti hann til Blönduóss og eyddi
þar mótunarárunum með stuttri millilend-
ingu í Dallas, Texas og á Egilsstöðum þar
til hann fór í Menntaskólann á Akureyri.
Að menntaskóla loknum nam hann
tölvunarfræði við Háskóla Íslands en
frá aldarmótum starfaði hann að mestu
erlendis, bjó í Hollandi í átta ár þar sem
hann var einn stofnenda og stjórnenda
hugbúnaðarfyrirtækis þar í landi.
„Við fjölskyldan, þá með tvö börn,
fluttum heim til Íslands árið 2009 en ég
hef engu að síður starfað erlendis að stóru
leyti og stundum verið með annan fótinn
utan landsteinanna.
Ég hef því komið víða við en hef
alltaf skilgreint mig fyrst og síðast sem
Blönduósing,“ segir hann en þar lagði hann
stund á flestallar íþróttir sem þar voru í boði
á þeim tíma. „Mín verður þó kannski helst
minnst á æskuslóðunum fyrir fótbolta og
frjálsar íþróttir. Á Blönduósi var ég einnig
nemandi í tónlistarskólanum og þó ég telj-
ist nú varla til duglegustu eða hæfileika-
ríkustu tónlistarmanna sem Blönduós
hefur alið þá hefur tónlistaráhuginn og
almennur áhugi á menningu alltaf fylgt
mér og ég á mér nokkuð stórt hliðarsjálf
sem tengist því áhugasviði. Það er lista- og
menningarrýmið Mengi sem við Elísabet
stofnuðum ásamt góðum vinum í miðborg
Reykjavíkur. Mengi hefur öðlast sess sem
Uppbygging gamla bæjarins á Blönduósi
| Bjarni Gaukur Sigurðsson í viðtali
Það er fagnaðarefni að gamli bærinn á Blönduósi fær nú endurnýjun lífdaga ef áform þeirra félaga
Bjarna Gauks og Reynis ná fram að ganga en óhætt er að fullyrða að mikið stendur til. Á minni
myndunum er Bjarni með fjölskyldu sinni, Betu og börnunum Bríeti og Þór Óla og svo sýnir sú neðri
frá íbúafundi sem haldinn var á Blönduósi í síðustu viku. MYND AF BLÖNDUÓSI: ÓAB. / MYNDIR AÐSENDAR
Það stendur mikið til á Blönduósi en félagarnir og
heimamennirnir Reynir Grétarsson og Bjarni Gaukur
Sigurðsson hafa, undir merkjum InfoCapital, fest
VIÐTAL
Páll Friðriksson
kaup á húsum í gamla bænum. Verkefnið er metnaðarfullt og til þess ætlast
að blása lífi í Blönduósbæ og hrífa heimamenn með í uppbygginguna.
Feykir hafði samband við Bjarna Gauk og forvitnaðist um málið.
Skagfirskar æviskrár
1 91 0 – 1 9 5 0 | 9. b i n d i
Þetta er tuttugasta bókin sem Sögufélag
Skagfirðinga gefur út af Skagfirskum
æviskrám. Hún hefur að geyma 90
æviskrárþætti fólks sem hélt heimli í
Skagafirði á fyrri hluta 20. aldar, fólk sem
lifði í sumum tilfellum fram um síðustu
aldamót.
Bókin er 328 bls. með fjölda ljósmynda
af fólki og kostar kr. 6.500 hjá forlaginu.
Sögufélag Skagfirðinga
Safnahúsinu 550 Sauðárkróki.
Kt. 640269 4649 Banki: 0310-26-017302.
Sími: 453 6261 eða 897 8646
Netfang: saga@skagafjordur.is
mikilvægur vettvangur fyrir nýsköpun og
tilraunir í listum, þá sérstaklega tónlist,“
segir Bjarni en svo skemmtilega vill til að
Mengi hlaut heiðursverðlaun Norræna
tónskáldaráðsins fyrir starf sitt í gegnum
tíðina nú á haustmánuðum.
Svo gott sem
ósnortinn bæjarkjarni
Bjarni segir árið hafa verið viðburðarríkt að
mörgu leyti en rúsínan í pylsuendanum sé
uppbyggingin á Blönduósi sem InfoCapital
tekur nú þátt í. „Það er auðvitað mjög
spennandi verkefni fyrir Blönduósinga
eins og mig og Reyni Finndal Grétarsson.
Við Reynir höfum þekkst í langan tíma en
með hléum þó. Þó að þrjú ár skilji okkur
að þá urðum við snemma góðir vinir og
nörduðumst saman í tölvuleikjum og
tefldum mikið. Við stunduðum báðir nám
við Menntaskólann á Akureyri og þar var
einnig Dalvíkingurinn Hákon Stefánsson
sem er framkvæmdastjóri InfoCapital í
dag en þeir Reynir hafa starfað saman
um árabil. Að menntaskóla loknum skildu
leiðir okkar í alllangan tíma, eiginlega allt
þar til við hittumst fyrir tilviljun í fyrrahaust,
þá báðir á ákveðnum tímamótum í lífi
okkar. Það voru fagnaðarfundir og þegar
við fórum að ræða saman komu merkilega
mikil líkindi ferla okkar í atvinnulífinu,
báðir höfðum við stofnað fyrirtæki, verið
í viðskiptum út um allan heim og að
endingu selt fyrirtækin. Úr varð að við
ákváðum að rugla saman reitum og starfa
Blundar í mörgum
Blönduósingum að
upphefja gamla bæinn
til fyrri dýrðar
30 2022