Feykir - 05.12.2022, Page 32
Einar Kárason er einn ástsælasti
rithöfundur landsins enda fáir
flinkari að segja skemmtilegar
og forvitnilegar sögur. Hann
skrifaði sig inn í hjörtu þjóðar-
innar með Eyja-þríleiknum; Þar
sem djöflaeyjan rís, Gulleyjan
og Fyrirheitna landið þar sem
segir af Badda og fjölskyldu í
braggahverfinu í Reykjavík.
Bækurnar komu út á níunda
áratug síðustu aldar og Friðrik
Þór Friðriksson gerði eftir
bókunum bíómyndina Djöfla-
eyjan. Einar skrifaði síðar
Sturlungabálk sem taldi fjórar
bækur og slógu rækilega í gegn.
Nú síðustu árin hefur hann gefið
út þrjár stuttar skáldsögur, þar
sem hann prjónar hliðarsögur
við sannar slysasögur.
Þegar Einar svarar Bók-
haldinu um mánaðamótin
október-nóvember er hann
nýbúinn að að lesa nýútkomna
ævisögu, Dostojevskí og ástin,
eftir Alex Christofi í þýðingu
Áslaugar Agnarsdóttur. Þar á
undan Borges and me – an
encounter eftir Jay Parini og
síðast nýja bók Þórarins Eldjárn,
Tættir þættir.
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið gegn-
um tíðina? „Sturlunga, Egils
saga, Djöflarnir eftir Dosto-
jevskí, Huckleberry Finn eftir
Mark Twain.“
Hvers konar bækur lestu helst?
„Skáldsögur, ævisögur, ljóða-
bækur, sagnfræði.“
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
„Eftir á að hyggja las ég mest
kvennabókmenntir. Það er að
segja; uppáhaldshöfundarnir
voru allt konur, þótt ég pældi
ekki í því þá. Enid Blyton, Astrid
Lindgren, Anne Cath Vestly og
Richmal Crompton (höf. Gríms
grallara). Af íslenskum höf-
undum var Hendrik Ottósson
kannski efstur á blaði, með
Gvendar Jóns bókunum.“
Er einhver ein bók sem hefur
sérstakt gildi fyrir þig? „Fyrsta
bókin sem ég man eftir að hafa
eignast hét Gulli gullfiskur. Hún
var um sjómann sem bjó einn í
litlu húsi og reri til fiskjar á
árabát, og veiddi Gulla sem hann
setti í fallega glerskál. Gulla
leiddist að vera einn og sjó-
maðurinn reyndi að finna honum
félagskap, kom með krabba og
krossfisk, en það vakti enga
lukku. Svo datt sjómaðurinn í
sjóinn og það skaust annar
gullfiskur inn í húfuna hans, sem
fyrir vikið skoppaði frá honum
er hann komst í land. Hann
hrópaði: „Halló húfa, hvert
ætlarðu góða!“ Og ég, þá þriggja
ára, grét af hlátri í hvert sinn
sem ég heyrði þetta. Þessi bók
kom mér á bragðið með
litteratúr.“
Bíðurðu spenntur eftir bókum
frá einhverjum höfundi? „Ég bíð
spenntur eftir bókum margra
kollega minna heima og erlend-
is, þá yrði of langt mál að telja
upp.“
Sagan af Gulla gullfisk kom
Einari á bragðið með litteratúr
Nú bankar Bók-haldið upp á hjá sagnameistaranum Einari
Kárasyni í Barmahlíðinni í Reykjavík. Einar er fæddur árið
1955, kvæntur og faðir fjögurra dætra. Þegar Feyki ber að
stafrænum garði og spyr hvað sé í deiglunni þá segist hann
vera að skrifa eitthvað. Nýjasta bók hans, Opið haf, byggir
á sögu Guðlaugs Friðþórssonar sem synti sex kílómetra úr
sökkvandi skipi til Vestmannaeyja um miðjan vetur. Saga
af bráðum lífsháska og sterkum lífsvilja, segir í kynningu.
óskar öllum viðskiptavinum og
velunnurum félagsins gleðilegra jóla
og friðar á komandi ári.
Í Galleríinu fæst úrval af fallegu handverki
til jóla- og tækifærisgjafa.
Bók-haldið oli@feykir.is
Einar Kárason | rithöfundur í Reykjavík
Áttu þér uppáhalds bókabúð?
„Nei, ekki get ég sagt það. En
flottasta búðin sem ég hef komið
inn í var í Buenos Aires, í gömlu
stóru bíói. Því miður les ég ekki
bækur á spænsku en settist í
kaffi á sviðinu.“
Hversu margar bækur heldurðu
að þú eignist árlega? „Ætli það
séu ekki svona 25 til 40. Og les
þær næstum allar.“
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni? „Nei, tæpast er hægt
að segja það. En konan mín
vinnur á Borgarbókasafninu og
ein dóttirin á Þjóðarbókhlöð-
unni, svo að ég hef samband við
þær ef mig vantar eitthvað.“
Hvaða bækur lastu fyrir börnin
þín? „Ég las mest mínar eigin
gömlu uppáhaldsbækur. En
einnig þær sem komu síðar, t.d.
Lúllabækurnar þegar þær voru
litlar en bækur Guðrúnar Helga-
dóttur þegar þær stækkuðu.“
Hefur þú heimsótt staði sér-
staklega vegna þess að þeir
tengjast bókum sem þú hefur
lesið? „Já, það hefur komið fyrir,
þar má nefna Sturlunguslóðir í
Skagafirði og víðar. Ég leitaði
uppi staði í Argentínu sem voru
Borges kærir, slóðir Hamsun í
Noregi og Herman Melville í
Nýja Englandi. Næsta sumar
stefni ég á að heimsækja
beykiskóga Smálanda; slóðir
Astrid Lindgren.
Hvað er best með bóklestri?
„Kaffi eða bjórglas spilla ekki.“
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
„Ég gef mjög oft fólki sem mér
þykir vænt um bækur, til dæmis
fjölskyldu og vinum það sem ég
sjálfur hef skrifað.“
Einar Kárason flytur smá erindi við opnun 1238: Baráttan um Ísland á
Sauðárkróki. MYND: ÓAB
32 2022