Feykir - 05.12.2022, Side 34
Hve lengi hafið þið stundað hannyrðir?
„Ég var um 6-7 ára þegar ég byrjaði að
prófa að prjóna, man eftir að pabbi var að
hjálpa mér við það. Mamma kenndi mér
svo að hekla og sauma út og svo lærði ég
af handavinnukennurunum í skólanum. Ég
var 16 ára þegar ég fór á Löngumýrarskóla
og þar lærði ég mikið af góðum kennurum,
þeim Ásbjörgu Jóhannsdóttur og Margréti
Jónsdóttur. Um 14-15 ára aldurinn saumaði
ég mér stutt pils og bolerovesti úr rauð-
um náttslopp sem ég átti, með kínversku
munstri. Ég bað mömmu um að hjálpa mér
ekkert nema ég bæði um aðstoð, vildi vita
hvað ég væri sjálfbjarga með þetta, ég var
mjög ánægð með útkomuna. Kjartan er
hagur í höndum. Hann tók sig til árið 2020,
eftir mikið veikindabasl, og fór að prófa
að tálga fugla. Síðan hafa þeir flogið út úr
höndunum á honum. Hann hefur tálgað
og málað yfir 40 tegundir. Eru þeir ekki
eðlilegir hjá honum?“
Hvaða handavinna þykir þér skemmti-
legust? Ég er í svo mörgu, skipti yfir til
að breyta til. Ég prjóna mikið peysur
og vettlinga, geri það aðallega þegar
ég sit við sjónvarpið. Svo er ég að
bródera í handklæði og fleira, er einnig í
bútasaum. Ég er með nokkrum konum í
bútasaumsklúbbi og við hittumst hálfs-
mánaðarlega. Ég var hér áður mikið í
fatasaum en er alveg hætt því.“
Hvað ertu að gera um þessar mundir?
„Nú er ég að prjóna peysu á einn ömmu-
strákinn minn og sauma púða sem ég
ætla að gefa litlum tvíburasystrum sem
eru langömmustelpurnar mínar. Ég er svo
alltaf með letiverkefni, sem ég kalla, núna
er ég að prjóna tuskur.“
Hvar færðu hugmyndir? „Héðan og þaðan
hér áður fyrr en nú mest af netinu, t.d.
Pinterest, þar er allt sem þarf.“
Hvaða handverk sem þú hefur unnið ertu
ánægðust með? „Ég veit ekki hvað skal
segja. Það er margt en ef ég á að nefna
eitt þá eru það peysufötin sem ég saumaði
árið 2019, það var þónokkuð verk en ég
er mjög ánægð með að hafa gert það, fyrir
utan ótal margt fleira. “
Hafið þið hjónin handgert margar jóla-
gjafir í gegnum árin? „Já, ég hef gert mikið
handverk til gjafa í gegnum árin og Kjartan
hefur verið að gefa fuglana sína tvö síð-
ustu ár.“
Hvað kemur ykkur í sannkallað jólaskap?
„Ja, hvað skal segja, það er búið að teygja
jólin yfir þrjá mánuði á ári. Fann meira
fyrir jólaspenningi þegar ég var barn því
þá voru jólin styttri og eplalyktin svo góð.
Breyttir tímar,“ segir Stefanía að lokum.
- - - - -
Stefanía skorar á frænku sína, Þyrey
Hlífarsdóttur, að segja lesendum Feykis
hvað hún er með á prjónunum.
Mikið af handverki
ratað í jólapakka
HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM? | klara@nyprent.is
Hjónin Stefanía Ósk Stefánsdóttir og Kjartan Erlendsson á Sauðárkróki
Að þessu sinni eru það hjónin Stefanía Ósk Stefánsdóttir og Kjartan Erlends-
son á Sauðárkróki sem segja lesendum Feykis frá því hvað þau eru að fást við.
Stefanía er fædd og uppalin austur í Breiðdal en maðurinn hennar, Kjartan
Erlendsson, er Austur-Húnvetningur. Þau fluttu á Krókinn árið 1971 og ætluðu
sér að vera hér í eitt ár en hvað eru 50 ár umfram það? Það er Stefanía sem
hefur orðið en hún vill byrja á að þakka Unni Sævars fyrir áskorunina.
Stefanía og Kjartan með tvo gullmola.
Örfá sýnishorn af handverki hjónanna. Fleiri myndir má sjá með greininni á Feykir.is.
34 2022