Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 37
Aðalgata 4 - 550 Sauðárkrókur - Sími: 571-4070 - www.eftirlaeti.com
Full búð af fallegum gjafa-
hugmyndum í jólapakkann.
Skoðaðu úrvalið á
eftirlaeti.com
- Snyrting - Gjafabréf
- Gjafavörur - Skart
Vantar þig tíma í
snyrtingu fyrir jólin?
Það er einfalt að panta tíma hjá
okkur í gegnum noona appið.
Sjáumst,
Ólína, Þorgerður og Ingibjörg
Elsku þið!
Njótum aðventunnar og hátíðleik jólanna.
Njótum þess að borða góðan skagfirskan mat.
Njótum samverunnar með
fjölskyldu okkar og vinum.
Þökkum góðar móttökur á árinu
Hlökkum til að taka á móti ykkur á árinu 2023.
Starfsfólk og eigendur
og Brjálaða
gimbrin
Fær að smakka jólarjúpuna
Í Fellstúninu á Króknum býr voðalega snoppufríður hundur sem heitir Spori.
Eigandinn er fótboltastjarnan Árdís Líf Eiðsdóttir en hún spilar með 4. flokki
Tindastóls sem átti frábæru gengi að fagna síðasta sumar. Árdís Líf er í 9. bekk
í Árskóla og er dóttir Eiðs Baldurssonar og Þóreyjar Gunnarsdóttur. Hundurinn
hennar, Spori, er af tegundinni Cavalier King Charles og er einstaklega hentugur
fjölskylduhundur. Þessi tegund þarf enga klippingu en það þarf að bursta hann
daglega og baða að minnsta kosti mánaðarlega. Hann er í mjög þægilegri stærð,
harðger, mjög félagslyndur og barnelskur. Hann er glaðvær, skynsamur, einkar
geðgóður og geltir yfirleitt minna en flestar aðrar smáhundategundir. Hann þarf
meðalhreyfingu en sættir sig við það sem eigandinn býður honum upp á. Hann
elskar þó útivist, daglega göngutúra og sérstaklega að fá að hlaupa laus.
Hvernig eignaðist þú
Spora? „Við vorum
lengi búin að láta okkur
dreyma um að eignast
Cavalier King Charles
og sendum fyrirspurn á
HRFÍ Cavalierdeildina og
fengum upplýsingar um
nokkra ræktendur sem
við sendum síðan póst
á. Örfáum dögum síðar
þá fengum við símtal frá
einum þeirra og þrem
vikum síðar vorum við
mætt í Mosfellsbæ hjá
Eldlukkuræktun að sækja
Spora okkar. Þetta gekk
óvenju hratt fyrir sig og
áttum við ekki alveg von
á þessu. Hann var orðinn
sex mánaða hvolpur
þegar hann kom til okkar
þann 3. nóvember 2018.
Hvað er skemmtilegast
og erfiðast við Spora?
Það skemmtilegasta
við hann er hvað hann
er húsbóndahollur og
auðveldur í umgengni
á heimilinu. Það sem er
kannski erfiðast við Spora
er hvað hann getur verið
óskaplega stríðinn með
ákveðin atriði.
Ertu með einhverja snið-
uga eða merkilega sögu
af Spora? Þar sem hann
er óskaplega stríðinn og
getur verið athyglisfrekur
þá lætur hann okkur svo
sannar-lega vita ef honum
finnst hann vera afskiptur.
Þá sækir hann eitthvað
eins og t.d. sokk og kemur
með hann í kjaftinum og
sest niður og stillir sér
upp beint fyrir framan
okkur svo við sjáum
hann örugglega. Síðan
hefst eltingaleikurinn, við
að reyna ná sokknum af
honum og hann fær þá
athygli sem hann vildi.
Eins þegar hann vill
athygli frá okkur þegar
við erum í símanum eða
tölvunni í sófanum þá er
hann fljótur að reyna troða
trýninu undir hendina á
okkur eða klórar í okkur
til að gefa okkur merki um
að hann sé þarna og við
Gæludýrið mitt siggag@nyprent.is
Árdís Líf Eiðsdóttir | Hundurinn Spori
Spori og Árdís Líf jólafín. AÐSENDAR MYNDIR
eigum að klappa honum.
Hafa skapast einhverjar
sérstakar jólahefðir í
kringum gæludýrið?
Það hafa svo sem engar
stórkostlegar jólahefðir
skapast í kringum hann,
en hann fer alltaf í góða
baðferð á Þorláksmessu
og fær að sjálfsögðu
jólagjöf.
Hvernig mynduð þið
lýsa aðfangadegi hjá
gæludýrinu? Á aðfanga-
dag fær Spori góðan
göngutúr. Síðan fer hann
í „sparifötin“ fær rautt
jólabindi um hálsinn og
fer í jólamyndatöku. Hann
eyðir drjúgum tíma á
eldhúsgólfinu því ilmurinn
úr eldhúsinu er svo
lokkandi. Þar sýnir hann
mikla stillingu og mænir
svo vel á kokkinn með
von um að fá smakk, það
endar að sjálfsögðu á því
að hann fær smá smakk af
jólarjúpu.
Hvað finnst fjölskyldu-
meðlimum um jólahefðir
dýrsins? Það eru allir á
heimilinu sammála um að
hann eigi að njóta jólanna
jafnvel og við hin enda er
hann einn af fjölskyldunni.
Spori í sveitinni.
372022