Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 39
130 ár frá vígslu
Sauðárkrókskirkju
Það er sunnudagur 27. nóvember 2022, fyrsti sunnudagur í jólaföstu, er gengið er til
Sauðárkrókskirkju í norðan nepju, fimm gráðu hita og rigningu. Það er hátíðisdagur að
minnast 130 ára vígslu kirkjunnar 18. desember1892. Þann dag var stórhríð og einn helsti
frumkvöðull kirkjubyggingarinnar, Lúðvík Popp kaupmaður, komst ekki til kirkjunnar
vegna veðurs þó búið væri að sérsmíða burðargrind fyrir hann, en hann átti skammt ólifað
og var með þeim fyrstu sem hlaut legstað í kirkjugarðinum á Móunum vestan Nafabrúnar
Um hundrað gestir sóttu
kirkjuna á þessum merku
tímamótum og það var
hlýlegt andrúmsloft í
messunni. Séra Sigríður
Gunnarsdóttir þjónaði
fyrir altari, séra Halla
Rut Stefánsdóttir flutti
ritningarorðin.
Ræða séra Gísla
Séra Gísli Gunnarsson
vígslubiskup predikaði,
rakti söguna og upphaf
byggðar á Króknum (árið
1892, 186 íbúar vígsluár
kirkjunnar) og kryddaði
með frásögn af Birni á
Sveinsstöðum sem kom
hagalögðum sínum í
verð í sinni fyrstu kaup-
staðarferð í Krókinn en
andvirði ullarlagðanna
dugði fyrir vasahníf og
vínarbrauði. Séra Gísla
mæltist vel, enda með
bestu ræðumönnum.
Úr nýju sálmabókinni
Svo öllu sé til haga haldið
voru sálmarnir númer
11, 466, 3, 5, 4 úr ný-
útkomnu sálmabókinni.
Þessi orð og númer verða
því samtímaheimild að
hundrað árum liðnum ef
á þarf að halda. Söngur
kirkjukórsins var með
ágætum undir stjórn
Rögnvaldar Valbergs-
sonar sem á 35 ára starfs-
afmæli sem organisti og
kórstjóri. Kirkjukórinn
var stofnaður fyrir 80
árum að frumkvæði
Eyþórs Stefánssonar og
Sigurðar Birkis.
Örtónleikar um
fyrrum organista
Að lokinni messu var
boðið upp á svokallaða
örtónleika undir stjórn
Helgu Rósar Indriðadóttur
við undirleik Rögnvaldar
Valbergssonar. Formað-
ur kórsins, Davíð Jóhanns-
son, kynnti dagskrána
með innskotum kórfélaga
þar sem sagt var stuttlega
frá höfundum laganna
sem allir höfðu verið
organistar við kirkjuna
og allir tónskáld. Fyrstan
má telja Pétur Sigurðsson
frá Geirmundarstöðum,
þá Eyþór Stefánsson
sem lengst allra gegndi
undirleiknum og kórstjórn
og loks Jón Björnsson frá
Hafsteinsstöðum um ára-
tugs skeið. Söngur kórs-
ins var með ágætum,
topp prógramm. Lög og
textar tónskáldanna eru
sem helgidómur í huga og
hjarta allra Skagfirðinga.
Erla Péturs, Lindin eftir
Eyþór með einsöng Jó-
hanns í Keflavík, frábær
túlkun. Þá Á vegamótum
sem orðið er sígilt.
Sumarlag eftir Jón, síðan
Hallarfrúin með texta
Davíðs Stefánssonar,
sem fer til hæstu hæða
í söng og túlkun. Helga
Rós Indriðadóttir söng
AÐSENT | Hörður Ingimarsson skrifar
Séra Sigríður Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari.
kveðjur frá séra Þóri
Stephensen sem gat ekki
verið viðstaddur vegna
veikinda. Þá flutti hún
kveðju frá séra Guðbjörgu
Jóhannesdóttur og Brynj-
ari Pálssyni f.v. sóknar-
nefndarmanni. Ingimar
Jóhannsson, formaður
safnaðarnefndar, flutti
yfirlit um kirkjulegt starf
og athafnasemi í Safnað-
arheimili með aðstoð
Jóhönnu Björnsdóttur,
ritara nefndarinnar. Davíð
Jóhannsson, formaður
kórsins, flutti snjalla
ræðu sem endaði með
afhendingu veglegs blóm-
vandar til kórstjórans,
Rögnvaldar. Séra Hjálmar
Jónsson tók til máls og fór
með snjallar vísur og flutti
prýðilega og stutta ræðu
en margs var að minnast.
Séra Sigríður sleit sam-
komunni og allir vel mettir
andlegrar næringar að
viðbættum glæsilegum
viðurgjörningi þar sem
borð svignuðu.
Hörður Ingimarsson
Um 100 manns mættu í kirkjuna í tilefni tímamótanna.
Kirkjukór Sauðárkróks ásamt Helgu Rós Indriðadóttur sópransöngkonu og stjórnanda kórsins á
örtónleikunum sem fram fóru að messu lokinni. MYNDIR: HÖRÐUR INGIMARS
Verslunin Curvy | Fellsmúli 26 v/Grensásveg | 108 Reykjavík | sími 581-1552 | www.curvy.is
Stacy lace túnika
11.990 kr
Laurina pallíettukjóll
19.990 kr
Khoda Midi Kjóll
11.990 kr
Danni Skyrtukjóll
15.990 kr
NÝJAR VÖRUR
Í HVERRI VIKU
FRAMM AÐ JÓLUM
Fallegar og vandaðar vörur í stærðum 42-60
Sjáðu úrvalið í netverslun Curvy.is
Eða komdu í verslun Curvy við Grensásveg
Kourtney kjóll
12.990 kr
einsöng með þeim glæsi-
brag sem einkennir fremstu
söngkonur. Ó Jesúbarn var
lokalag þessara frábæru
örtónleika og við hæfi að
loka dagskránni með þessu
undurfagra jólalagi Eyþórs
Stefánssonar.
Svignandi veisluborð
Viðhafnarveisla var í Ljós-
heimum, séra Sigríður
bauð gesti velkomna og
flutti meðal annars hlýjar
392022