Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 6

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 6
Janúarball Harmonikufélags Þingeyinga Það var vel boðið í hjd formanninum Hagyrðingarnir íþungum þönkum. Sigríður, Fta, Óíína, Jóhannes aðfara með skáldskap, Ingibjörg og Ösk Strákabandið í Breiðumýri Þann 5. janúar 2019 hittumst við félagar í Harmonikufélagi Þingeyinga hress og glöð á hinni árlegu íjáröflunar- og skemmtisamkomu félagsins á Breiðumýri. Samkoman hófst kl. 20:30 með hljóðfæraleik og dansi, síðan var hagyrðingaþáttur, bögglauppboð og loks dansað fram á nóttina. Þátttakendur í hagyrðingaþætti voru Osk Þorkelsdóttir formaður Kveðanda, Ingibjörg Gísladóttir, Davíð Herbertsson, Sigríður Ivarsdóttir og Hólmfríður Bjartmarsdóttir. Bögglauppboðið var fjörugt og bauð formaðurinn okkar Jón Helgi Jóhannsson upp, en til aðstoðar voru Þórhildur Sigurðar- dóttir, Dómhildur Olgeirsdóttir og Tryggvi Óskarsson. Mest var í boði af kökum og kræsingum. Um uppboðið má segja að: ..allt varþar selt á uppsprengdu verSi, endaformanni létt um mál. Fjallháar upphœðir gróðinn víst gerði, svo gjaldkerinn fagnaði af lífi og sál, ... alveg eins og vera ber. Á ballinu léku fyrir dansi Sigurður Tryggvason og Strákabandið. Undirleikarar voru Pálmi Björnsson, Magnús Kristinsson og Eiríkur Bóasson. Mæting var góð og mikið fjör. Texti Hólmfríður Bjartmarsdóttir Myndir Siggi á Sandi Leiðrétting varðandi upphaf Galtalækjar og Þrastarskógarmótanna Okkur undirritaða langar í eins stuttu máli og mögulegt er, að koma leiðréttingum að vegna mistúlkunar í grein í jólablaði Harmonikublaðsins 2018 um sögu harmonikumóta á íslandi, sem enn virðist valda sumum misskilningi um raunverulegt upphaf. Segja má að frásagnir í blaðinu Harmonikan sem hóf útgáfu 1986 geti valdið ruglingi, ef útgefendur blaðsins eru ekki sjálfir spurðir hver raunþráðurinn var. Við það erum við ekki sátt. Frumkvöðlarnir eru allir á lífi! Utilegur með félögum FHUR koma hvorki blaðaútgáfu okkar né upphafi mótanna við, eða að við höfum farið í útilegu með Senja Trekkspillklubb, sem aldrei var en er fullyrt í Harmonikublaðinu. Slíkar fullyrðingar eiga bara alls ekki við, hvað þá á prenti. Þróunin var þessi Rifjum aðeins upp söguna. Við Þorsteinn Þorsteinsson vorum strax 1984 byrjaðir að velta fyrir okkur blaðaútgáfu. I samtali við sænska harmonikusnillinginn Lars Ek 1985, sem var þá hér á vegum SÍHU til tónleikahalds, bar blaðið á góma. Sagði Lars að það að gefa út harmonikublað gæti skipt sköpum við að auka áhuga fólks á hljóðfærinu og öðru því tengdu en af því hefði hann mikla reynslu. Þarna var teningnum kastað og fyrsta blaðið leit dagsins ljós á haustdögum 1986 sem kunnugt er. Það fékk betri móttökur en okkur gat grunað og bókstaflega sannaði sig strax. Mikil vinna og metnaður var lagður í blaðið, ekkert til sparað að afla efnis innanlands sem utan. Svo fór önnur hugmynd að krauma í höfðum okkar, harmonikumót! Báðir vorum við áskrifendur að norrænum harmoniku- blöðum, sem voru uppfull af harmoniku- mótafrásögnum og höfðum við einnig upplifað slík mót sjálfir. Að framan sögðu brunnum við brátt í skinninu að koma á móti er gæti þá kannske styrkt fjármálahlið blaðsins og harmonikuáhuga meðal manna. Mótsbálið tók að loga meir og meir, konur okkar reyndu ekki að slökkva logana, heldur studdu þessa brennandi hugsjónamenn frá upphafi til enda. Ákveðið var að gera tilraun með mót úti í náttúrunni austur í Galtalækjarskógi sumarið 1987 og hringdum við í eins marga félaga okkar í FHUR og náð var til. Milli 25 og 30 manns mættu á þetta fyrsta mót okkar. I Harmonikublaðinu fylgir mynd með umræddri grein sem sögð er tekin á Þingvöllum, en er frá Galtalæk af hópnum 6

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.