Harmonikublaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 21

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 21
Að vestan Þann 13. apríl sl. hélt Harmonikufélag Vestfjarða aðalfund sinn fyrir nýliðið starfsár, í Nausti, sal eldriborgara á Hlíf 2. Þar kom fram að starfið hefur verið með rólegra móti, árið eftir vel heppnað Landsmót S.I.H.U. sem haldið var hér á Isaflrði 2017 af Harmonikufélagi Vestfjarða. I skýrslu stjórnar er sagt frá aðalfundi Sambands íslenskra harmonikuunnenda sem haldinn var á Akureyri 5. til 7. október 2018, fulltrúar félagsins voru Karitas Pálsdóttir og Jassararnir í Edinborg stíft. Það er af aðalfundinum að segja að skýrsla stjórnar og reikningar voru samþykktir. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Hafsteinn Vilhjálmsson formaður, Magnús Reynir varaformaður, Hólmgeir Pálmason gjaldkeri, Sigríður Gunnarsdóttir ritari og Messiana Marsellíusdóttir meðstjórnandi. Undir liðnum önnur mál var rætt um að stefna á ferðalag að hausti og eru allar hugmyndir um áfangastað vel þegnar. Næsta Landsmót S.I.H.U. verður haldið í Stykkishólmi 2020 af Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík. A skírdag þann 18. apríl sl. var Menningarmiðstöðin Edinborg og veitingastaðurinn Edinborg Bistro með menningar/tónlistar veislu fyrir bæjarbúa. Þar léku af sinni allkunnu snild og smekkvísi þeir Baldur Geirmundsson og Villi Valli á nikkurnar sínar og með þeim Magnús Reynir á bassa, Samúel Einarsson á hljómborð ásamt Rúnari syni Villa Valla á trommur. Magnús Reynir var jafnframt kynnir og spjallari, eins og honum er lagið. Tónleikarnir hófust stundvíslega kl 21:00 fyrir troðfullum sal og áttu að standa til kl 22:30, en það teygðist á tímanum og þeir enduðu rétt fyrir miðnætti. Fyrr sluppu menn ekki af sviði. Viðtökur áhorfenda voru feikilega góðar og þetta sýnir að harmonikan er dúndur hljóðfæri bæði fyrir djass og dansmúsik. Þess má að lokum geta að meðalaldur tónlistarmannanna er 77 ár, geri aðrir betur. Dagur harmonikunnar er fyrsti laugardagur í maí sem núna ber upp á fjórða. Harmonikukarlarnir og Lóa bjóða að vanda til samkomu í Félagsheimilinu á Þingeyri og kvenfélagið sér um kaffiveitingar. Sjáumst sem flest. Heiðursborgarari tsajjarðar alltafmeð d nótunum Magnús Reynir Guðmundsson. Sagt er frá samstarfi Harmonikufélagsins við Tónlistarskóla Isafjarðar sem fór af stað sl. haust þegar Rúna Esradóttir tókvið kennslu á harmoniku. Stjórnin heimsótti skólann og kynnti sér hljóðfærakostinn, sem þeir Baldur Geirmundsson og Villi Valli töldu viðunandi, Baldur hafði áður yfirfarið hljóðfæri fyrir skólann. Stjórn Harmonikufélagsins tók þá ákvörðun að styrkja Tónlistarskóla ísafjarðar um kr. 200.000,- ætlað til greiðslu skólagjalda fyrir nema í harmonikunámi og vonumst við til að það hjálpi og hvetji einhverja til námsins. Ingunn Osk skólastýra ogþær Dagný Arnalds og Rúna Esradóttir veittu viðtöku gjafabréfl þessu til staðfestingar. Harmonikusnillingarnir Baldur Geirmundsson og Villi Valli ásamt Magnúsi Reyni bassaleikara láta bæjarbúa njóta tónlistarinnar við ýmis tækifæri, sem þeir og gerðu á aðalfundinum. Einnig eru Harmonikukarlarnir og Lóa á Þingeyri í fullu fjöri og æfa Hafsteinn Vilhjálmsson Ljósmyndir: Kristinn H. Gunnarsson Hinn árlegi harmonikudansleikur Harmonikufélags Héraðsbúa verður haldinn í Valaskjálf laugardagskvöldið 31. ágúst og hefst kl. 21:00. Margar harmonikuhljómsveitir skiptast á að spila. Mætum öll þá verður fjör! Nefndin h“ð“a 21

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.