Harmonikublaðið - 15.05.2019, Side 21
Að vestan
Þann 13. apríl sl. hélt Harmonikufélag Vestfjarða aðalfund sinn fyrir
nýliðið starfsár, í Nausti, sal eldriborgara á Hlíf 2. Þar kom fram að
starfið hefur verið með rólegra móti, árið eftir vel heppnað
Landsmót S.I.H.U. sem haldið var hér á Isaflrði 2017 af
Harmonikufélagi Vestfjarða. I skýrslu stjórnar er sagt frá aðalfundi
Sambands íslenskra harmonikuunnenda sem haldinn var á Akureyri
5. til 7. október 2018, fulltrúar félagsins voru Karitas Pálsdóttir og
Jassararnir í Edinborg
stíft. Það er af aðalfundinum að segja að skýrsla stjórnar og reikningar
voru samþykktir. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa
Hafsteinn Vilhjálmsson formaður, Magnús Reynir varaformaður,
Hólmgeir Pálmason gjaldkeri, Sigríður Gunnarsdóttir ritari og
Messiana Marsellíusdóttir meðstjórnandi. Undir liðnum önnur mál
var rætt um að stefna á ferðalag að hausti og eru allar hugmyndir um
áfangastað vel þegnar. Næsta Landsmót S.I.H.U. verður haldið í
Stykkishólmi 2020 af Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík. A skírdag
þann 18. apríl sl. var Menningarmiðstöðin Edinborg og
veitingastaðurinn Edinborg Bistro með menningar/tónlistar veislu
fyrir bæjarbúa. Þar léku af sinni allkunnu snild og smekkvísi þeir
Baldur Geirmundsson og Villi Valli á nikkurnar sínar og með þeim
Magnús Reynir á bassa, Samúel Einarsson á hljómborð ásamt Rúnari
syni Villa Valla á trommur. Magnús Reynir var jafnframt kynnir og
spjallari, eins og honum er lagið. Tónleikarnir hófust stundvíslega kl
21:00 fyrir troðfullum sal og áttu að standa til kl 22:30, en það
teygðist á tímanum og þeir enduðu rétt fyrir miðnætti. Fyrr sluppu
menn ekki af sviði. Viðtökur áhorfenda voru feikilega góðar og þetta
sýnir að harmonikan er dúndur hljóðfæri bæði fyrir djass og
dansmúsik. Þess má að lokum geta að meðalaldur tónlistarmannanna
er 77 ár, geri aðrir betur. Dagur harmonikunnar er fyrsti laugardagur
í maí sem núna ber upp á fjórða. Harmonikukarlarnir og Lóa bjóða
að vanda til samkomu í Félagsheimilinu á Þingeyri og kvenfélagið sér
um kaffiveitingar. Sjáumst sem flest.
Heiðursborgarari tsajjarðar alltafmeð d nótunum
Magnús Reynir Guðmundsson. Sagt er frá samstarfi Harmonikufélagsins
við Tónlistarskóla Isafjarðar sem fór af stað sl. haust þegar Rúna
Esradóttir tókvið kennslu á harmoniku. Stjórnin heimsótti skólann
og kynnti sér hljóðfærakostinn, sem þeir Baldur Geirmundsson og
Villi Valli töldu viðunandi, Baldur hafði áður yfirfarið hljóðfæri fyrir
skólann. Stjórn Harmonikufélagsins tók þá ákvörðun að styrkja
Tónlistarskóla ísafjarðar um kr. 200.000,- ætlað til greiðslu skólagjalda
fyrir nema í harmonikunámi og vonumst við til að það hjálpi og
hvetji einhverja til námsins. Ingunn Osk skólastýra ogþær Dagný
Arnalds og Rúna Esradóttir veittu viðtöku gjafabréfl þessu til
staðfestingar. Harmonikusnillingarnir Baldur Geirmundsson og Villi
Valli ásamt Magnúsi Reyni bassaleikara láta bæjarbúa njóta
tónlistarinnar við ýmis tækifæri, sem þeir og gerðu á aðalfundinum.
Einnig eru Harmonikukarlarnir og Lóa á Þingeyri í fullu fjöri og æfa
Hafsteinn Vilhjálmsson
Ljósmyndir: Kristinn H. Gunnarsson
Hinn árlegi harmonikudansleikur
Harmonikufélags Héraðsbúa verður
haldinn í Valaskjálf laugardagskvöldið
31. ágúst og hefst kl. 21:00.
Margar harmonikuhljómsveitir
skiptast á að spila.
Mætum öll þá verður fjör!
Nefndin
h“ð“a
21