Harmonikublaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 20

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Blaðsíða 20
Strákabandið landskunni harmonikusnillingur, Aðalsteinn Isfjörð sem lék af þvílíkri snilld að ég get ekki lýst því með orðum og vil ég þakka Alla mínum innilega fyrir allar ánægju- og gleði- stundirnar sem hann gaf mér. Um þetta leyri flutti hingað til Húsavíkur fjölskylda úr Reykjavík. Þarna var kominn harmoniku- snillingurinn Olafur Þ. Kristjánsson, sem að fór að spila með líka og stuttu seinna breytti hann nafninu og kallaði þetta Strákabandið sem hefur haldist óbreytt síðan. Hverjir voru í Strákabandinu? Fljótlega eftir að Strákabandið var stofnað bættust fleiri í það eins og Hákon Jónsson, Kjartan Jóhannesson, Kristján Kárason, Kári V. Arnason og Rúnar Hannesson. En eins og gengur í gegnum árin þá hafa menn horfið og nú erum við fjórir orðnir eftir í þessu Strákabandi og þrír sem spilum, það eru Kjartan Jóhannesson fæddur 1925, Jóel Friðbjörnsson fæddur 1931, Kristján Kárason fæddur 1944, Rúnar Hannesson fæddur 1940. Svo það er nú kannske eðlilegt miðað við aldur að Strákabandið fari að hægja á sér eftir öll þessi ár. Var einhver ferð eftirminnilegri en önnur með Strákabandinu? Það er erfitt að segja til um það hvort ein ferð hafi verið betri en önnur, þetta voru alltaf vel heppnaðar ferðir og yndislegar í alla staði sem gleymast seint og eru gott innlegg í sjóð minninganna. Gaf Strákabandið út marga diska? Strákabandið gaf út tvo diska, þann fyrri 1999 og seinni diskurinn kom út 2010. Þessir diskar fengu mjög góðar viðtökur og ég veit til þess að þeir hafa verið notaðir við danskennslu og við margs konar uppákomur. Og þá þótti konum ekki verra að setja Strákabandsdisk á spilarann þegar þær voru að ryksuga hjá sér, þetta létti þeim störfin að syngja og tralla með. Attu margar góðar minningar tengdar harmonikunni? Já, þær eru orðnar margar og góðar minn- ingarnar, sem tengdar eru þessu hljóðfæri, harmonikunni og það eru minningar sem ég hefði ekki viljað missa af. Og allar þær samverustundir sem við hjónin höfum átt með fólki vítt og breitt um allt land sem við hefðum alls ekki kynnst annars. Þessar gleði- og ánægjustundir gleymast ekki. Hvernig sérðu framtíð harmonikunnar og dansins á Islandi? Mér sýnist að sem betur fer hafi sum félög náð til sín ungu fólki sem spilar á harmoniku og eru þau félög vel sett. En hjá hinum félögunum þar sem nær engin endurnýjun hefur orðið eru horfurnar ekki góðar og ef harmonikumúsikin Ieggst af á þeim stöðum þá sýnist mér að gömlu dansarnir fari á eftir og væri það ómetanlegt tjón fyrir menninguna í landinu, því þetta er ævagömul list sem þarna myndi hverfa líka. Viltu segja eitthvað að lokum Jóel? Þegar ég horfi til baka eftir öll þessi ár og læt hugann reika til liðinna ára þá er margt sem kemur upp í hugann, minningar sem mér þykir vænt um að minnast. En það er fólkið sem lagði oft á sig langt ferðalag til að koma á þessa dansleiki hjá Strákabandinu, til að dansa, syngja og hlusta. Öllu þessu fólki vil ég færa mínar bestu kveðjur og þakkir fyrir ógleymanlegar samverustundir, því ef að þið hefðuð ekki komið þá hefði nú verið lítið gaman að spila. Þá ekki síður þakkir til allra þeirra fjölmörgu spilafélaga í gegnum um tíðina, en með þeim hefi ég átt margar góðar ánægjustundir. Að lokum er það von mín og ósk að harmonikan, þessi gleðigjafi, eigi eftir að seiða til sín unga krafta og halda áfram að gleðja alla sem henni unna um ár og aldir. Það er orðið áliðið dags þegar ég kveð hjónin á Isólfsstöðum eftir kaffi, pönnukökur og annað bakkelsi. Það er vor í lofti og ég held heimleiðis úr þessari Mekka harmonikunnar, Þingeyjarsýslu, um margt fróðari en áður en ég kom. Mér var þökkuð heimsóknin og ánægjuleg upprifjun á liðnum dögum. Friðjón Hallgrímsson Bandaríkjamenn í heimsókn Bandaríkjamennirnir Kevin Solecki f. 1978 og Cory Pesaturo f. 1986, eru væntanlegir til landsins í júlí. Cory, sem byrjaði að leika á harmoniku 9 ára gamall, hefúr unnið til fjölmargra verðlauna í harmonikuleik og ma. hafði enginn svo ungur unnið heimsmeistaratidl, þegar hann vann dtilinn 16 ára gamall árið 2002. Hann vann sér það til frægðar í Austurríki árið 2017 að setja heimsmet í harmonikuleik, þegar hann lék samfellt í 32 klukkustundir. Kevin hefur einnig unnið til fjölda viðurkenninga og er spilagleði hans rómuð. Þeir félagar koma hingað á vegum Inga Karlssonar til að leika á Harmonikuhátíð Reykjavíkur í Árbæjarsafni 14. júlí. Þeir munu ennfremur halda tónleika í Hannesarholti í Reykjavík, föstudaginn 12. júlí og í Skyrgerðinni í Hveragerði laugardaginn 13. júlí. Ekki er að efa að margir munu bíða spenntir eftir að hlýða á þá félaga, sem eru jafnvígir á alla tónlist. 20

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.