Harmonikublaðið - 15.05.2019, Side 7

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Side 7
sem mætti á fyrsta mótið okkar þar, er tókst með eindæmum vel. Þetta mót gerði gæfumuninn. Við getum alveg kallað þetta fyrsta mót okkar tilraunamót en formlega frá árinu 1988. Tvær fjölskyldur voru komnar út í straumiðu, sem enginn vissi hvar endaði, en nánast allur frítími okkar fór í þessa þróun. Mótin urðu 6 í Galtalæk og 5 í Þrastarskógi, alls 11. Stóðum við í endalausri þróunarvinnu, gáfum út vandaðan bækling fyrir hvert mót með dagskrá, varnaðarorðum og hvatningu á ýmsa lund, svo sem að ganga vel um og hafa gleðina að leiðarljósi. Varðeldurinn m.a. og fjöldasöngurinn í Þrastarskógi gerði lukku og myndaði stemningu. Ymsar viðurkenningar og verðlaun voru veitt og gerðum við allt er gat orðið fólki til gleði og sameiningar. Konurnar okkar skemmtu börnunum og þannig mætti lengi telja. I Harmonikublaðinu koma fram ýmsir spádómar um hvernig við höfðum komið upplýsingum um mótin til fólks, t.d. gegnum FHUR eða á landsmóti SIHU sem á sér enga stoð. Blaðið sem og mótin eru óumdeilanlega okkar hugmynd og framtak frá upphafi til enda. Við ætlum að vona að enginn reyni að breyta því oftar. Þetta er merkissaga sem mætti einhvern tíma gefa út á bók. Nú eru liðin 22 ár frá því mótunum okkar lauk. Hægt er líka að spyrja þeirrar spurningar hvort einhverjir aðrir hefðu lagt út í slík mót eða jafnvel ekki, hvar værum við þá stödd? Mótin sem tóku við í kjölfar okkar, skapa allavega eftirvæntingu og ómælda gleði meðal harmonikuunnenda um allt land, verurn stolt af því. Okkur finnst saga harmonikumóta okkar merkilegri saga en svo að megi gera lítið úr henni. Þegar skrifa á um svo langt um liðinn viðburð verður sagnfræðin að vera ofar öllu, sönn og rituð af heilindum, er einhver ástæða til annars? Hilmar Hjartarson, Þorsteinn Þorsteinsson, Sigríður Sigurðardóttir ogAgústa Bárðardóttir Frá ritstjóra. I tilefni af greininni „Leiðrétting varðandi upphaf Galtalækjar og Þrastarskógarmótanna", vill ritstjórinn koma eftirfarandi á framfæri. Gamall málsháttur segir, vinur er sá er til vamms segir og af þeirri ástæðu hefur grein fjórmenninganna verið rituð. Það var vegna misskilnings ritstjórans að Senja harmonikufélagið var tengt við upphaf Galtalækjarmótanna og er beðist velvirðingar á þeim aulaskap. „Þingvallamyndin" birtist fyrir mistök í stað annarrar myndar sem tekin var á Þingvöllum. Varðandi smölunina fór hún fram í gegnum síma samkvæmt grein fjórmenninganna, en ekki með bréfaskriftum. Það skýtur reyndar skökku við í greininni, að þar er sagt að undirritaður fari með fleipur varðandi samband við félaga í FHUR. Síðar í greininni er hins vegar talað um að hringt hafi verið í félaga í FHUR. Þá hafa þeir félagarnir ekki minnst á Galtalæk á landsmótinu í Eyjafirði mánuði áður. Það er skiljanlegt þar sem harmonikumót þekktust ekki á þessum tíma. Þar má segja að ímyndunaraflið hafi hlaupið með ritstjórann í gönur. Hins vegar getur undirritaður ekki með nokkru móti séð, að hann hafi í greininni í Jólablaðinu, reynt að draga úr þætti fjórmenninganna varðandi upphaf harmonikumótanna á Islandi og jafnvel gera lítið úr þeirra þætti. Þvert á móti er lögð áhersla á hve vel var staðið að mótunum, þó þeir gefi í skyn að greinin sé rituð af óheilindum. Sömu sögu má segja um þátt blaðsins, sem bréfritarar telja að gert sé lítið úr. Það getur undirritaður með engu móti séð enda kemur hið gagnstæða fram í Jólablaðsgreininni. Síðari hluti greinar fjórmenninganna er nær eingöngu um óheilindi undirritaðs, sem kýs að líta fram hjá því, sem hverri annarri prentvillu. Finnist fjórmenningunum þeir hins vegar ekki njóta sannmælis varðandi harmonikumótin og blaðið Harmonikuna, er tæplega við undirritaðan að sakast, sem þó lagði sitt til, að halda þessu á lofti við samningu greinarinnar, sem einhverjir hefðu jafnvel kallað lofgrein. Að lokum má það koma fram að undirritaður stundaði umrædd mót og var jafnvel titlaður aðstoðarmaður mótsstjóra einhvern tímann. Hann á því auðvelt með að rifja mótin upp, sem hann sótti með vinum sínum ma. fjórmenningunum og á frá þeim ógleymanlegar minningar, sem fjölgar árlega á öðrum harmonikumótum. Þá auðveldar það vinnuna að geta flett upp í blaðinu „Harmonikunni“, sem hýsir ómissandi heimildir um harmonikulífið í landinu á árunum 1986 til 2001. Ritstjórinn Verið velkomin á Harmonikuhátíð ijölskyldunnar Harmonikufélagið Nikkólína og Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum í félagsheimilinu Ásbyrgi, Laugarbakka Miðfirði ... .. sem haldin verður 14.- 16. júní2019 :eN W Wl VMI I VrftMMMWJJ ög laugardagskvöld kl. 21:00 - 01:00. Skemmtidagskrá, happdrætti og kaffihlaðborð á laugardeginum frá kl. 14:00. Aðgangseyrir yfir helgina kr. 7.000.- Nánari upplýsingar gefa Melkorka s. 434-1223 / 869-9265 og Sólveig s. 452-7107 / 856-1187. 7

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.