Harmonikublaðið - 15.09.2019, Blaðsíða 9
Óvenjulegir tónleikar fóru fram á Borg um
verslunarmannahelgina. Óvenjulegir fyrir þá
sök að hljóðfæraleikararnir, sem léku þarna í
dúett, voru af sitt hvoru þjóðerninu. Þetta
voru þær harmonikustöllur Asta Soffía
Þorgeirsdóttir og Kristina Farstad Bjordal frá
Noregi. Talsverð eftirvænting var meðal
áheyrenda, enda slíkt ekki á borðum hversdags
á Borg. Tónleikarnir hófust á laginu
Svenneprova eftir Norðmanninn Jo Asgeir Lie.
Akaflega heillandi nútímaverk sem hæfði vel
sem opnunarstykki. Þessu fylgdu þær eftir
með þremur þáttum úr Holberg svítunni eftir
Edvard Grieg. Þetta verk er ákaflega vinsælt
meðal harmonikuleikara víða í heiminum,
enda sérstaklega skemmtilegt. Þá var komið
að Snjóstorminum, rússnesku nútímaverki,
sem notið hefur mikilla vinsælda hjá
harmonikuleikurum. Eg held að fyrst hafi ég
heyrt lagið með rússnesku tvíburunum sem
léku á landsmótinu á Siglufirði forðum. Næst
var komið að dæmigerðum norskum
brúðarmarsi frá Suður Mæri, Syljer og stas,
eftir Jens Synne. Fallegt verk sem snerti
áheyrendur. Nú sat Asta Soffía hjá í næstu
tveimur lögum meðan Kristina renndi í gegn
um Jolly Caballero eftir Pietro Frosini af
miklum glæsileik og lauk síðan sínum einleik
á Föstudeginum þrettánda eftir Norðmanninn
Arnstein Johansen. Stórkostlega skemmtilegt
verk sem Kristina flutti af sama öryggi. Þá var
komið að verki eftir franska
harmonikuleikarann Franck Angelis,
Hommage a paco. Þar reynir heldur betur á
hæfni og samleik hljóðfæraleikaranna, en
verkið er býsna skemmtilegt. Þá fékk Kristina
að sitja hjá smá stund meðan Asta Soffía
heillaði áheyrendur með sinni útgáfu af Land
míns föður, eftir Þórarinn Guðmundsson.
Einstaklega fallega leikið og ekki laust við að
tár læddust fram í augnkrókunum hjá sumum
áheyrenda. Ásta lauk sínum hluta með
prelódíu í cis moll eftir Johan Sebastian Bach.
Nú var farið að síga á seinni hluta þessara
mögnuðu tónleika og tvö síðustu verkin voru
höfðu algjörlega heillað þessa 120 áheyrendur
sem í salnum voru. Að sjálfsögðu léku þær
aukalag og þar varð fyrir valinu Elvira eftir
Pietro Deiro, sem hljómaði betur en nokkru
sinni og það varð til þess að þær bættu við
einum ekta norskum valsi, eftir einn af bestu
tveggjaraða spilurum Noregs, Tom Kjetil
Törstad. Og nú linnti loks lófatakinu sem
Þœr Asta Soffia og Kristina Farstad á sviíinu á Borg
hvort öðru fallegra. Scherzo eftir rússneska
Bandaríkjamanninn John Gart, fullt af gríni
og glensi og Halling eftir Jo Asgeir Lie.
Aheyrendur sátu sem dolfallnir, slík var
hrifning þeirra. Ungu konurnar á sviðinu
dunað hafði um húsið síðustu 70 mínúturnar.
Friðjón Hallgrímsson
Mynd Siggi Harðar
9