Harmonikublaðið - 15.09.2019, Blaðsíða 19
Nú er það rœll
Samspil á Númatorgi
Ljúft er að láta sig dreyma
til ánægju. Fyrstur á svið um kvöldið var góðkunningi harmonikuunnenda
í Reykjavík, einn af stofnendum FHUR, Garðar Olgeirsson bóndi í
Hellisholtum við Flúðir. Þar þurfti litlu við að bæta. Þrátt fyrir að
komið væri þriðja kvöld var góður slæðingur mættur á gólfið og fjölgaði
hratt þegar leið á kvöldið. Vindbelgirnir tóku við af Garðari og fengu
ágætis viðtökur. Hildur Petra og Guðný Kristín luku síðan ballinu
með glæsibrag, eins og þeirra er von og vísa. Eggert Kristinsson sá um
trommurnar nær allan tímann, en Kristján Ölafsson lék með Guðmundi
og Grétari. og Hreinn Vilhjálmsson um bassann, nema hvað Jónas
Pétur Bjarnason lék á hann þegar Hildur Petra og Guðný Kristín léku.
Þá var Fróði Oddsson öruggur með gítarinn föstudags- og
laugardagskvöld, en Númi Adólfsson sunnudagskvöldið. Það verður
ekki skilið við verslunarmannahelgina án þess að minnast á veðrið,
sem segja má að hafi leikið við mótsgesti. Það setur óneitanlega mikinn
svip á allt þegar harmonikuleikararnir geta hópast saman á flötum og
leikið af hjartans lyst, í stað þess að kúldrast hver í sínum vagni, þó
fortjöldin geti bjargað nokkru.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi Harðar
Alli ísjjörð, Erlingur Helga, Hilmar Hjartar og Hreinn Vilhjálmsson stilla saman í
surnarhlíihi
Er ekki í lagi að tjútta aðeins
Munið myndasíðuna á netinu: www.harmoniku-unnendur.com
19