Harmonikublaðið - 15.09.2019, Page 10
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að fjalla
um hátíð okkar Eyfirðinga og Þingeyinga
þegar Friðjón hefur þegar gert henni góð skil
hér annars staðar í blaðinu. En þetta var í 29.
sinn sem félögin halda hátíð sem þessa
sameiginlega. Þótti hún takast með ágætum
en slíkt væri ekki mögulegt nema fyrir tilstilli
þeirra manna og kvenna sem af ljúfmennsku
leggja fram ómælda vinnu við undirbúning
og framkvæmd slíkrar hátíðar. Eru þeim færðar
bestu þakkir fyrir sitt framlag, hvort sem var
við hljóðfæraleik, miðasölu eða vinnu „á bak
við tjöldin“. Sú nýjung að bjóða upp á
dansnámskeið á föstudeginum tókst ljómandi
vel en félagið hefur síðastliðið starfsár verið í
samstarfi við Dansfélagið Vefarann, en það er
þjóðdansafélag sem er starfandi á vkkureyri.
Þau eru liðtæk í fleiri dönsum en þjóðdönsum
eins og sannaðist á dansnámskeiðinu þegar
farið var yfir hina ýmsu hóp- og skiptidansa
eins og Partýpolka, Napóleon polka og
fjölskylduvals. Voru dansarnir nýir fyrir suma
en upprifjun fyrir aðra og gafst síðan dönsurum
færi á að dansa það sem kennt var á
námskeiðinu á dansleiknum um kvöldið.
Eins er með harmonikudaginn sem haldinn
var hátíðlegur í Lóni einn laugardag í byrjun
maí, tókst hann með ágætum en nokkrir
félagsmenn tóku forskot á sæluna og spiluðu
á hinum ýmsu stöðum um bæinn á
föstudeginum. Var spilað á tveimur stöðum á
Glerártorgi og svo voru dvalarheimili bæjarins
heimsótt og fékk heimilisfólk að njóta Ijúfra
tóna með seinniparts kaffinu sínu. A
harmonikudeginum sjálfum voru hinir árlegu
kaffitónleikar að deginum þar sem hlaðborðið
svignaði undan kræsingum sem runnu ljúflega
niður undir harmonikuleik frá nemendum úr
Tónskóla Roars, Bryngeiri Kristinssyni,
hljómsveit Einars Guðmunds og stór-
sveitarinnar. Ovæntur gestur Pétur Bjarnason
úr höfuðborginni tók svo nokkur lög við mikla
ánægju gesta. Um kvöldið var síðan dansleikur
þar sem G-strengurinn, Steinar Ingi, Einar
Guðmunds og Númi héldu uppi fjörinu fram
eftir nóttu og þótti það góður endapunktur
á dansleikjum vetrarins hjá félaginu.
Stórsveitin hélt sína vortónleika seinni partinn
í maí í sal Brekkuskóla á Akureyri. Var lagaval
fjölbreytt og mátti finna á efnisskránni hin
fjölbreyttustu verk, voru flutt lög úr sarpi
Einars Guðmundssonar sem er liðtækur
lagahöfundur, íslensk og sænsk þjóðlög
hljómuðu, kvikmyndatónlist, Bítlalög og
syrpa af Abbalögum hljómaði yfir salinn
ásamt öðrum þekktum verkum. Þóttu
tónleikarnir heppnast prýðilega og voru þeir
vel sóttir þrátt fyrir blíðskaparveður og
fjölmarga aðra viðburði bæjarins sem hittu á
sama tíma.
Nú þegar þegar rökkva fer og síga á seinni
hluta sumars fara félög landsins að huga að
vetrarstarfinu og er FHUE engin undantekning
í þeim efnum. Fyrirhugaðir eru tveir dansleikir
fyrir áramót og verða dagsetningarnar 5.
október og 28. desember líklegar fyrir þá
viðburði. Stórsveitin mun halda ótrauð áfram
æfingum í vetur undir dyggri stjórn Roars
Kvam. Arið 2020 verður síðan í stærri
~J...ik.;"' • ■ ! •
Andri Snœr gladdi gesti oggangandi á Glerártorgi
10
Elsa, HörSur, Agnes ogMaria tóku lagiS á Glerártorgifyrir harmonikudaginn