Harmonikublaðið - 15.09.2019, Qupperneq 11
kantinum hjá félaginu þar sem hæst ber
Landsmót í Stykkishólmi, þrítugasta
sumarhátíð FHUE og HFÞ verður haldin að
Ydölum í lok júlí og síðast en ekki síst mun
félagið fagna 40 ára afmæli félagsins um
haustið. Svo það er nóg framundan hjá okkar
félagi og höldum við ótrauð áfram, Iárum
engan bilbug á okkur finna og höldum áfram
að efla og þróa okkar félag með nýjum og
hefðbundnum leiðum. Að lokum hvetjum við
lesendur til að fylgjast með frekari fréttum,
viðburðum og öðru starfi félagsins á
andlitsskinnunni víðfrægu Facebook og má
finna hópinn undir heitinu Harmoniku-
unnendur við Eyjafjörð.
Agnes Harpa Jósavinsdóttir
Myndir: Félagsmenn
Bryngeir mundar nikkuna einbeittur á harmonikudaginn Pétur gladdi margan gestinn á harmonikudaginn
-
Flemming Viðar Valmundsson blés til tónleika í Grafarvogsldrkju
miðvikudaginn 10. júlí sl. Þetta voru fyrstu tónleikar Flemmings á
landinu, eftir að hann fór til framhaldsnáms í Danmörku sumarið
2017. Hann byrjaði á Prelúdíu og Fúgu í Es dúr eftir J.S. Bach. Vel
þekkt verk sem harmonikuleikarar hafa Iöngum spreytt sig á. Ekki var
annað að heyra en oklcar maður gæti túlkað þetta verk á þann hátt að
skildist. Þessu var fylgt eftir með verkinu Tears eftir danska tónskáldið
Bent Lorentzen. Geysilega tilfinningaþrungið verk þar sem reynir mjög
á hæfni flytjandans. Að þessu loknu létti meistarinn aðeins á og lék
Skafrenning eftir Braga Hlíðberg. Fékk það ljómandi undirtektir. Því
var svo fylgt eftir með Libertango eftir Astor Piazzolla. Ekki alveg
hefðbundin útsetning, en geysilega skemmtilegt tillbrigði við
ástartangóinn og vandmeðfarið. Heppnaðist ágætlega. Þá var komið
að rússnesku verki, Et exspecto, eftir eitt af mestu nútímatónskáldum
Rússa, Sofiu Gubaidulinu. Afar sérstakt verk þar sem reynir mjög á
hæfni flytjandans. Ýmsum brögðum er beitt, svo sem að banka í belginn
og annað í þeim dúr. Þá spilar loftbassinn stórt hlutverk í verkinu, en
þess háttar er ekki óvenjulegt í nútímaverkum. Flutningurinn tekur
tæpar 20 mínútur og er mjög viðburðaríkt, svo ekki sé meira sagt. Má
jafnvel flokka sem gjörning. Mörgum fannst það full hart undir tönn
og var undirritaður í þeim hópi. Flytjandinn sannaði aftur á móti að
honum eru allir vegir færir þegar harmonika á í hlut. Síðasta stykki
tónleikanna var svo Bohemian Rhapsody eftir Queen, í útsetningu
Flemmings Viðars. Þar var komið eitthvað sem áheyrendur þekktu og
viðbrögðin eftir því. Þetta fræga verk þeirra Queen manna hljómaði
stórkostlega í Grafarvogskirkjunni, enda húsið vel fallið til tónleikahalds.
Tónleikagestir þökkuðu fyrir sig með langvinnu lófataki, sem lauk
ekki fyrr en meistarinn lék sem aukalag, Hríseyjarvalsinn eftir Pálma
Snorrason. Þennan glæsilega vals hefur Flemming Viðar leikið fyrir
harmonikuunnendur frá því hann lærði hann 2011. Kvöldið var hið
skemmtilegasta fyrir hina hundrað áheyrendur sem nutu
harmonikutónlistar í Grafarvogskirkju.
Friðjón Hallgrímsson
Mynd: Asdís Hinriksdóttir
11