Þjóðólfur - 01.04.1954, Qupperneq 19
- 19 -
HANN
FÆDDIST
BLINDUR .
Hinn blindi píanoleikari George Shearing
á miklum vinsaeldum aö fagna hérlendis
jafnt og annars staðar.
Shearing er fæddur í London 13. águst
1919, er hann því 34 ára núna.-
Hann lærði ungur á píano og fékk auð-
vitað aðeins að leika klassík, en stalst þo
snemma í jazzinn. Fyrst kom hann opin-
berlega fram í hljómsveit blindra manna
16 ára gamal.1, og varð snemma íyrir á-
hrifum ýmissa bandarískra jazzista.
1940 var Shearing kosinn bezti píanóleik-
ari Bretlands
Á næstu árum var Shearing frægastur
fyrir nboogie woogie" leik sinn, en hætti
brátt við þá tónlist, þar sem hann var
hræddur um, að fólk kynni að halda, að
hann gæti ekki leikið annað.
1947 sigldi Shearing til Bandaríkjanna.
Áður en hann fór, hafði hann kynnzt be-
bop stíl nokkuð, og er til Bandaríkjanna
kom, tók hann be-bopið í sína þjónustu.
Hefur honum siðan tekizt, með sínu óvið-
jafnanlega hugmyndaflugi, að gera mörg
lög ógleymanleg fyrir þá, sem einu sinni
hafa heyrt þau.
Þegar til New-York kom, byrjaði
Shearing að spila í frægum næturklúbbum
í 52. stræti, meðal annars í hinum vel
þekkta "Three Deuces" klúbbi, þar sem
hann á stuttum tíma vann hugi fjölda jazz-
leikara og unnenda. Þeir, sem einna mest
léku með honum um þetta leyti, voru
Kenny Clark (trommur) og Oscar Petti-
fond (bassi).
í janúar 1949 stofnar hann svo eigin
kvintet var hann skipaður ° Georg Shear-
ing (píanó), Marjorie Hyams (vibraf.),
Chuck Wayne (guitar), John Levy (bassi)
og Denzil Best (trommur). Mánuði seinna
lék kvintetinn inn á nokkrar plötur fyrir
"Discovery". Nokkru seinna gerði Shearing
samning við MGM. fyrirtækið. Fyrsta lag-
ið, er hann lék inn á plötu fyrir það, var
"September in the rain". Lagið náði geysi-
vinsældum, og gerði nafn Shearings víð-
frægt.. Kvintetinn var nú orðinn mjög eft-
irsóttur. 1950 söng Billy Eskstine með
Shearing, og var það til að auka vinsældír
hans enn meir, var kvintetinn kosinn bezt-
ur af litlu hljómsveitunum og Shearing
bezti píanó leikarinn.
Töluverðar breytingar hafa orðið á
kvintetnum frá því fyrst, og er hann nú
skipaður auk. Shearing ° Cal Tjader (vib.
og bongo-trm. ), A1 McKibbon (bassi),
Bill Clark (tromm. ) og síðast en ekki
sízt munnhörpu og guitarleikaranum John
"Toots" Thielemans, sem leikur mjög