Jólasveinninn - 01.12.1940, Síða 5

Jólasveinninn - 01.12.1940, Síða 5
náungi, — já, það var hann sannarlega. >Herðið þér bara róðurinnc, sagði Lange kaupmaður, þegar lyfsal- inn fór. »Spyrjið þér hana bara undir eins á morgunc. En nú hafði þetta allt saman farið út um þúfur. Já því- h'kt og annað eins. Við því var ekkert að gera. Er lyfsalinn kom inn í stofuna og bað um að fá að tala við ungfrú Margréti undir fjögur augu, deplaði Lange til hans augunum og fór síðan út í skrifstofu sína. En eftir tæpar tíu mínútur kom dóttir hans þjót- andi inn til hans og sagði honum, að hún hefði sagt »nei þakkc við lyfsalann — — Komdu með mér inn í dagstoíu, svo við getum gert út um þetta undir eins«, sagði hún. — Og svo var skrattinn laus! — — — Truls Lange, eigandi stærstu nýlenduvöruverzlunar bæjarins, sat lengi hugsi í hægindastólnum og velti þessu fyrir sér, Hann varð að athuga þetta í næði. Síðan hann missti konuna stna fyrir 5 árum, hafði móðurarf- ur Margrétar staðið óskertur í bankanum og ávaxtast jafnt og þétt. Og þetta voru engir smáskildingar. Um síðustu áramót var upphæðin orðin liðugar 30 þús. kr. Og þar að auki myndi Margrét,f|einkabarnið hans, fá dálaglega fúlgu í föðurarf, á sínum tíma, Og í viðbót við allt þetta var hún allra laglegasta stúlka, já, meira að segja falleg stúlka, Og það sáu h'ka fleiri en hann. Og hún hafði bæði lokið menntaskólaprófi og gengið í matreiðsluskóla. Og þótt hún væri ung, var hún þegar allra duglegasta liúsmóðir. — Skyldi það geta verið einhver annar, sein — —? Nei, ekki svo hann vissi til, en væri svo, ætlaði hann sér að"leggja þar orð í belg. Hann varð að líta vel í kringum sig og vera á verði. — — — Undir miðdegisborðum var Margrét blíð og glaðvær að vanda. Hún hló og lét móðan mása. En Lange komst ekki í gott skap aftur, og á skrifstofunni varð honum ekkert að verki. Daginn eftir kom hann af bæjarstjórnarfundi seint um kvöldið. Hann gekk heim Stóru-götu og beygði um

x

Jólasveinninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólasveinninn
https://timarit.is/publication/1800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.