Stúdentablað Siglufjarðar - 01.12.1939, Blaðsíða 9
STÚDENTABLAÐ
7
Fullveidisguðs-
þjónusta
aerdur ficilclin í Siglu-
-fjarðarfz irfjti fösiud. 1.
desemfer fzt. 2 e. fi. a3
tilfituiun ótúdeniafélags
icjtufjarðar.
þá um leið í Svíþjóð, er að mörgu
leyti frábrugðið því, sem það er
annarsstaðar. Stúdentarnir skiptast
niður í -nationer* eða þjóðabrot,
eftir því frá hvaða landshluta þeir
eru. Hver »nation« hefir sitt eigið
hús, þar sem haldnar eru skemmti-
samkomur fyrir nationina, eins-
konar héraðsmót. Þar geta menn
einnig lesið dagblöðin, telft eða
spilað í frístundum. Þessi skipting
stúdentanna í flokka skapar heil-
brigða keppni, og varðveitir að
nokkru sérkenni hvers héraðs, þó
hinsvegar langt nám setji sitt sam-
eiginlega mót á alla stúdenta.
Móttaka nýrra stúdenta í háskól-
ann, er af hálfu eldri skölabræðra,
nokkuð óvenjuleg. Þegar háskólinn
er settur um miðjan september á
haustin, mæta nýir stúdentar með
stúdentshúfur, en aðrir eigi, því
sænskir stúdentar leggja niður
húfurnar þegar skólinn byrjar og
nota þær ekki allan veturinn.
Þegar rektor hefir boðið hina
nýju stúdenta velkomna, safnast
allir stúdentar háskólans, eldri og
yngri, saman fyrir framan skólann.
Skiptast þeir þá í flokka eftir
nationum, og ganga undir fána
nationarinnar. hver til síns húss.
Er þar veizla búin, til að fagna
hinum nýju stúdentum, sem bætzt
hafa í hópinn. Þykir þeim mikið
til um rausn eldri skólabræðra og
búast við öllu hinu bezta, en
•böggull fylgir skamnniíi*. Þegar
hófið stendur sem hæst, rís einhver
hinna eldri stúdenta úr sæti og
heldur feikna skammarræðu yfir
hinum nýkomnu stúdentum. Bregð-
ur hann þeim um heimsku og fá-
fræði, og telur að bjálfar þeir hefðu
betur heima setið, en að verða til
athlægis í hinni merku og forn-
frægu stofnun, háskólanum. Verður
oft lítið um svör af hálfu nýliða,
því þeir eru orðhákar minni og
hafa eigi tamið sér kappræður.
Enginn hinna nýju stúdenta erfir
þó þessar sérkennilegu móttökur,
því þeir vita að þessa eldvígslu
þurfa þeir að ganga í gegnum til
að teljast menn með mönnum í
háskólaborginni. Skemmtanalíf
stúdenta í Uppsölum er líkt og
annarsstaðar. Þeir sækja mikið
kvikmyndahús. Dansleiki skiptast
nationirnar um að halda á hverju
laugardagskvöldi og einu sinni á
vetri er haldinn sameiginlegur
dansleikur fyrir allan háskólann.
10. hvert ár er sá dansleikur hald-
inn í hátíðase.l háskólans, og er
þá sérstaklega til hans vandað.
Þykir mjög eftirsóknarvert að kom-
ast á þá hátíð. Sérstaklega bíða
ungmeyjar borgarinnar, sem eigi
eiga því láni að fagna að hafa
öðlazt stúdentshúfu, eftir því með
kvíðafullri eftirvæntingu hvort
þeim muni verða boðið eður eigi.
Veturinn 1937 sat eg slika hátið
hjá síúdeníum í Uppsölum. Hófið
hófst með borðhaldi kl. 7. Mættu
þar allir á kjól og allir með hvít-
ar stúdentshúfur. Báru menn þær
allan timann meðan á borðhaldinu
og dansleiknum stóð. Myndi slíkt
ekki allstaðar talin mikil kurteisi,
en þetta er siður hjá Svíum og
þykir gott og vissulega setti það
sinn svip á veizluna, að sjá þenna
mikla sæg með hvítar húfur. Það
sást á ýmsu að mjög hafði verið
vandað til þessa samkvæmis. Ágæt
hljómsveit lék meðan á borðhaldi
stóð, og Orphei Drángar, einhver
bezti karlakór Svía, söng við og
við. En það sem mig furðaði
mest á, var að enginn maður sást
þarna drukkinn, og þó var veitt
vín maðan á borðhaldi stóð, en
ekkert er því var lokið. Mér varð
ósjálfrátt á að bera þetta saman
við stúdentasamkvæmin heima, og
þótti leitt að þurfa að viðurkenna,
að þar þreyttu menn drykkjuna
mjög suo úr hófi fram. Það hefur
stundum verið fundið stúdentum í
Uppsölum til foráttu, að þeir hirtu
lítt um nám, en legðu meira kapp
á að njóta lífsins. Veturínn 1938
kom þetta fram hjá blaði einu í
Stokkhólmi. Allir danssalir og
kaffihús í Svíþjóð voru þá um tíma
lokuð. Þá birti blaðið samtal
milli tveggja stúdenta íUppsölum,
sem var á þessa leið:
»Nú er ekki gott í efni, allir
danssalir eru lokaðir«, sagði annar
stúdentinn. Þá svarar hinn: »Já,
það lítur illa út. Það er vístekki
um annað gera en byrja að lesa«.
Það er vitanlegt, að í jafn fjöl-
mennum hóp, sem stúdentar eru
í Uppsölum, eru alltaf einhverjir
sem slá slöku við námið, en hitt
er einnig jafnvíst, að almennt
stunda menn námið þar af meiri
alúð og keppni, en víða annars-
staðar. Stúdentar skemmta sér
rösklega cg á heilbrigðan hátt, en
þeir vinna einnig kappsamlega.
Og þannig líður veturinn. Fyrr en
varir rennur upp 30. apríl, en þá
er vorhátíð stúdenta og mikið um
dýrðir. Laust fyrir kl. 3 þann dag,
I
Karðakórinn »Vísir«
efnir til samkomu í Bíó í
dag kl. 8.30 e. h.
Kórsöngur, ræðuhöld, gam-
anvísur, skemmtileg bíó-
rnynd.
DANS að skemmtuninni lok-
inni á Hótel Siglunes.