Heimdallur - 30.12.1949, Page 3

Heimdallur - 30.12.1949, Page 3
HEIMDALLUR 19 vegsmanna rjett komnar fram, en frystihúsaeigendur höfðu þá enn ekki lýst sínum hag. Eftir að hvorir tveggja þessara aðila höfðu látið í ljós óskir sínar, þá hafði það tekið 7 vikna samriingaumleitanir í fyrra, þcgar Framsókn átti sæti í stjórn, til þess aðeins að hægt væri að leggja frarn tillögur á Alþingi. En eftir það þurfti svo enn að semja við þessa aðila í þrjár vikur og milljónaút- gjöld úr ríkissjóði umfrani það, sem Alþingi samþykkti, til þess að ut- gerð hæfist. — Nú hins vegar þótt- ist Framsókn undrandi að stjórnin hafði ekki tilbúnar tillögur eftir 10 daga. Og þó er ástandið jafnvel mun verra en var í fyrra. Sjálfs hans sök Ef svo Framsóknarflokknum finnst komið ískyggilega seiiit fram á árið, þá er við sjálfan hann að sakast, en einmitt Framsókn átti frumkvæðið að kosningum á þessum títna með þeirn töfum, sem þær hafa í för með sjer. Sjálfstæðisflokkurinn mun nú reyna að bæta úr glappaskotum Fram sóknar og gera sitt til þess að úr vandamálunum rætist. Er þess þá að vænta, að Framsóknarflokkurinn hafi rnanndóm til að fylgja góðum málum. Nauðsynlcgt að brúa 100 millj. kr. bil Þótt ckki sjc liðinn langur tíini síð- an ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins tók við, þá licfur stefna stjórnarinn- ar skýrst mjög vel. Fjármálaráðherra lýsti 6 höfuð- stefnuatriðum í sambandi við af- greiðslu fjárlaga og fjánnála al- mennt. Aðalatriðið cr, að Sjálfstaðis flokkurinn gerir það að ófrávíkjan- legri kröfu sinni, að fjárlögin verði afgreidd tekjuhallalaus. Það cr rjett, að mönnum sje ljóst, að til þess að svo megi vei'ða cg naoð- synlegt er, þá þarf margvíslegar ráð- stafanir. Fjárlagafrumvarp það, scm nú liggur fyrir Alþingi, gerir að vísu ekki ráð fyrir greiðsluhalla, en held- ur ekki tekjuafgangi. Og í því frum- varpi er ckki gert ráð fyrir neinum uppbætum á útfluttar afuiðir. En þær uppbætur nema i ár 30—40 milljónum króna, og forsætisráðherr- ann hefur upplýst. að á næsta ári þurfi skv. framkomnum kröfum út- vegsmanna og frystihúseigenda allt að 100 milljónir króna. Flestum mun ljóst, að erfitt muni reynast að brúa þetta bil, þegar búið er að nota alla mögulega skattastofna. Því iýsti for- sætisráðherra því yfir, að Sjálf- stæðisflokkurinn mund’i ekki hika við að vel athuguðu máli að koma með róttækar tillögur til grundvall- arbreytingar, svo að efnahagsstarf- semin í landinu kæmist á öruggan grundvöll, og atvinnuvegirnir bæru sig styrkjalaust. Gervimálefni F'ramsóknar Andstöðuflokkar Sjálfstæðisflokks ins hafa oft talað digurbarklega, að þeir hver um sig viti hin einu sönnu bjargráð. En hver eru þessi bjargráð þeirra? Framsóknarflokkurinn er með sína skömmtunarseðla sem gjald- eyris- og innflutningsleyfi. En auk þess sem það gefur auga leið að það er ekkert bjargráð, sem byggist á áframhaldandi skömmtun nauðsynja, þá mundi svartamarkaðsbrask og ó- rjettlæti vaxa í skjóli slíks fyrir- komulags. Ekki brúar þetta „bjarg- ráð“ Framsóknar heldur 100 millj. kr. bilið og ýtir fiskiflotanuni úr vör, og þá, ekki frekar, stóríbúðarskatt- urinn, sem getur konuð niður á braggaíbúum, og íbúum verkamanna bústaða, ekkjum og munaðarleysingj um. Verðlagsdómstóll er þriðja úr- ræði Framsóknar, en frv. þeirra um það efni breytir í engu sem máli skiptir fyrirkomulagi þessara mála frá því sein nú er. Slík eru gervi- mál Framsóknar. Raunhæf bjargráð hefur Framsókn engin. Prentum bara meira af peningaseðlum Kommúnistar hafa og sína tegund af . ,bjargráðum“. Þeim blöskrar ekki, þótt 100 millj. kr. vanti til þess að útvegsmenn telji, að útvegurinn beri sig. Þeirra ráð er: Prentum bara meira af seðium. Hvaða máli skiptir það kommúnista, að sífellt er minna hægt að kaupa fyrir hvern seðil og að það er staðreynd, sem allur almenningur hefur rekið sig á, að kaupgjaldið hækkar aldrei jafn- mikið og kaupmátturinn þverr. Til þess svo sem að bæta ofan á ókjör fólksins leggja kommúnistar aðal- áhersluna á, að íslendingar versli eingöngu við þær þjóðir, sem bak við járntjaldið búa, ef takast mætti að draga íslendinga þar inn fyrir. Þessar þjóðir greiða nú að vísu hátt verð í krónutölu fyrir afurðir okkar, en krefjast bara hlutfallslega mun hærra verðs fyrir sínar afurðir á móti. , • Vilja halda styrkja- pólitíkinni áfram Við síðustu kosningar lýsti Al- þýðuflokkurinn því yfir. að hann vildi halda styrkjapólitíkinni áfram. Peningana í styrkina átti- að fá með auknum skattaálögum á þegna þjóð- fjelagsins. Alþýðuflokkurinn taldi það ekki neina kjaraskerðingu fyrir almenning í landinu, þótt hann yrði að borga hærri skatta. „Ekki bcr hest urinn það, sem jeg bcr“, sagði mað- urinn. Atinnuvegirnir sjeu reknir hallalaust og styrkjalaust Það hefur ávallt verið stefna Sjálfstæðisflokksins, að atvinnu- vegirnir sjcu rcknir halla- og stvrkja laust. Sjálfstæðisflokkurinn hefur

x

Heimdallur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.