Heimdallur - 30.12.1949, Blaðsíða 4
20
HEIMDALLUR
Áreiðanleg skýrsla sjónarvotta um: Hvernig
Mindszenty kardináli var yfirbugaður.
SAGA KARDINÁLANS
Eftir Stephen K. Swift
GREIN þessi er útdráttur úr „The Gardinal’s Story“
eftir Stephen K. Swift.
Stephen K. 'Swift var fæddur í Ungverjalandi og
hefur 25 ára blaðamennskuferil að baki sjer. í hópi
blaðamanna er hann álitinn sjerfræðingur í málum Mið-
Evrópu. í júnímánuði 1947, þegar hann var frjettaritari
hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir ýmis blöð, gerðist hann
persónulegur ráðgjafi Ferene Nagy, fyrrverandi försætis-
ráðherra Ungverjalands. Hann þýddi' og bók Nagys:
„Baráttan bak við járntjaldið“, sem út kom í Bandaríkj-
unum í fyrra. Nýlega gerði Stephen K. Swift sjer sjer-
staka ferð um Evrópu til að safna gögnum í „Sögu
Kardinálans“.
ávallt bent á það, að atvinnuvegirn-
ir væru undirstaða alls og ekki mætti
spenna bogann meir en svo, að þeir
þyldu. Sjálfstæðisflokkurinn mun
því nú með þeirri aðstöðu og þeirri
ábyrgð sem flokkur sá hefur, er stend
ur að rikisstjórn, leggja fram tillög-
ur, sem miða að því, að atvinnu-
vegL'nir þurfi ekki opinbera styrki
og að felld verði niður sem fyrst
þau höft og hömlur, sem sífellt hafa
aukist á undanförnum árum og ára-
tugum og staðið hafa i vegi heil-
brigðum framföium.
Ungir Sjálfstæðismenn munu hafa
gott tækifæri til að móta þessar til-
lögur til úrlausnar vandamálunum.
Enginn stjórnmálaflokkur hefur eins
og Sjálfstæðisflokkurinn treyst unga
fólkinu og skipað unga menn í
ábyrgðarstöður fyrir flokkinn. Auk
þessa og sem afleiðing þessa eru ýms
ir mætustu forustumenn flokksins
gamlir baráttumenn í samtökum
ungra Sjálfstæðismanna.
En ungir Sjálfstæðismenn hafa
ekki aðeins og munu ekki eingöngu
móta stefnu Sjálfstæðisflokksins held
ur og bera hana fram til sigurs. Ríkis
stjórn Sjálfstæðisflokksins nú er
minnihlutastjórn og getur ekki kom-
ið málum sínum fram með stuðn-
ingi Sjálfstæðisflokksins eins, eins og
sakir standa. Sjálfstæðismönnum er
því nauðsyn að tryggja sjer meiri-
hluta á Alþingi við næstu kosningar,
hvenær sem þær verða. Mikil og
hörð barátta er framundan.
Heimdallur blæs því í lúður sinn
og heitir á liðsmenn að duga nú bet-
ur en nokkru sinni áður og er þá
sigurinn vís og skammt un lan.
Takið öflugan þátt í starfsemi
Heimdallar. — Tryggið Sjálfstæð-
isflokknum glæsilegan sigur í bæj-
arstjórnarkosningunum.
HINN 3. febrúar síðastliðinn hófust
í Buda-Pest rjettarhöld, sem vöktu
alheims athygli. Erkibiskup kaþólsku
kirkjunnar í Ungverjalandi, Josef
Mindszenty kardináli, var ákærður
fyrir föðurlandssvik, njósnir og sam-
særi um að steypa stjórn landsins af
stóli.
Nýtt og hræðilegt afl.
Rjettarhöld þessi stóðu yfir aðeins
þrjá daga, og niðurstaða þeirra kom
engum á óvart, sem kunnugur er hinu
kommúnistiska rjettarfari, því að
kardinálinn var sekur fundinn og
dæmdur til ævilangrar fangelsisvist-
ar. En menn, sem viðstaddir voru
rjettarhöldin og þekkt höfðu kardin-
álanri, voru skelfingu lostnir vegna
útlits hans og hegðunar í rjettarsaln-
um.
Þessi maður, sem verið hafði skip-
andi í framkomu, frægur fyrir hug-
rekki s-itt og bersögli og verið
einn ósveigjanlegasti andstæðingur
ríkisstjórnarinnar, virtist nú aumk-
unarverður og vesæll. — Hann var
stuttstígur þg dróst áfram með erf-
iðismunum.-Hann leit varla upp og
rödd hans, sem einu sinni hafði verið
áköf og full eldmóðs, var nú hikandi
og ógreinileg. Menn gátu varla þekkt
hann fyrir sama mann.
Mismunurinn á persónuleika kard-
inálans fyrir handtökuna og fram-
komu hans í rjettarhöldunum er
skýrt dæmi um nýtt og hræðilegt afl
í heiminum, afl miskunnarlausra
manna, sem með aðstoð nútíma vís-
inda tekst að brjóta sálarþrek manna
gjörsamlega á bak aftur.
Sagan um það, hvernig hin leynd-
ardómsfulla umbreyting Mindszenty
kardinála var skipulögð og fram-