Heimdallur - 30.12.1949, Page 5

Heimdallur - 30.12.1949, Page 5
HEIMDALLUR kvæmd, er hjer sögð í fyrsta sinn, og er hún byggð á frásögnum sjónar- votta. „Útrýmingarnefndm“ skipuð. Snemma á árinu 1948 fjekk Mat- hias Rákosi ,,aðal-umboðsmaður“ Moskvu í Ungverjalandi skipun frá Kreml um að „gera upp reikningana" við Mindszenty hið snarasta. Rákosi skipaði nefnd manna, sem leggja skyldi á ráðin um „uppgjörið“ og at- huga hvaða leiðir bæri að fara. í nefnd þessari voru eftirtaldir menn: Ernezt Gerö, samgöngumálaráð- herra (síðar fjármálaráðh.), Michael Farkas hermálaráðherra, Julius Ortu tay menntamálaráðherra, Josef Révai helsti hugmyndafræðingur kommun- istanna ungversku og Ivan Boldiszár fulltrúi í utanríkisráðuneytinu. Nefnd þessi reyndi nú með áróðri að vekja andúð á kardinálanum, en án árangurs, og ungverska leynilög- reglan hindraði með valdi að prest- ar landsins læsu boðskap Minds- zenty’s fyrir sóknarbörnum sínum, en Mindszenty ljet ekki bugast. Þeg- ar þessi ráð brugðust, reyndi „útrým- ingarnefndin" með brögðum að fá kardinálann til að flýja land, en síð- an átti að handtaka hann við landa- mærin og ákæra hann fyrir tilraun til að flýja land. En einnig þetta brást. Kardinálinn var ófáanlegur til að yfirgefa landið. Nýir liðsmenn. A fundi nefndarinnar í nóvember 1948 bættist henni nýr liðsmaður, Pavel Kotlev ofursti. Kotlev þessi var meðlimur í hinni illræmdu rússnesku leynilögreglu MVD. Á þessum fundi ákváðu nefndarmenn að búa til ákær ur á hendur Mindszenty og setja á svið rjettarhöld. Ákveðið var, að kardinálinn skyldi ákærður um fjórtán glæpi, og Révai valdi sjer sem ráðgjafa mann að nafni William Olty, fyrrverandi nasista, sem gerst hafði ákafur kommúnisti. Olty þessi, Fyrir handtcikuna. sem var helsti ráðgjafinn við tilbún- ing ákæranna, var einnig dómsforseti í rjettarhöldunum, svo að menn geta gert sjer í hugarlund, hversu mikið rjettlætið hefur verið. Kotlev brá sjer nú til Moskvu og kom aftúr til Buda-Pest skömmu fyrir jól, og hafði hann þá með pró- fessor nokkurn að nafni Gerson ásamt nokkrum liðsmönnum úr MVD. Nú var allt tilbúið. Handtakan fer fram. Sunnudag'inn 26. desember var erkibiskupinn handtekinn á heimili sínu í Esztergöm. Hann veitti ekki viðnám, og var hdnn þegar í stað fluttur til hinna illræmdu aðalbæki- stöðva ungvérsku leynilögreglunnar í Bnda-Pest „Andrássy ut 60“ og settur í klefa, sem ætlaður var meiri- háttar föngum. Daginn eftir kom læknir til kardin- álans og skoðaði hann vandlega, tók sýnishorn af blóði hans o. s. frv. Mindszenty virtist rólegur. Hann borðaði talsvert, en svaf lítið og eyddi miklum tíma til bænahalds. Á þriðjudagsmorgun komu tveir foringjar úr leynilögreglunni ásamt hraðritara inn í klefa kardinálans. Þeir voru hinir kurteisustu og lögðu eftirfarandi spurningar fyrir kardin- álann: „Þekbið þjer Paul Eszterházy 21 í rjettarhöldunum. greifa?“ „Hefur Eszterházy gefið kirkjunni stórar fjárhæðir? Vitið bjer hvar hin heilaga kóróna Ungverja- lands er niðurkomin? Þekkið þjer belgiska kardinálann Van Roey? Þekkið þjer Spellman kardinála? Dvöldust þjer hjá honum i New York? Þekkið þjer þá Schoenfeld og Chapin í sendiráði Bandaríkjanna? Hefur einkaritari yðar faðir Andi'ew Zakár verið trúnaðarmaður yðar og vitað um allar gjörðir yðar?“ Þessum spurningum svaraði kardinálinn öll- um játandi. „Játning Mindszenty’s“ tilkynnt fyrirfram. Lögregluforingjarnir ljetu nú sækja ritföng og pappír og báðu Mindszenty að skrifa stutt yfirlit yíir helstu atburði í lífi hans, og skyldi hann leggja sjerstaka áherslu á tíma- bilið frá október 1945, er hann varð erkibiskup, til þessa dags. Þeir Ijetu þess að lokum getið, að skýrsla þessi yrði mjög mikilvæg og fóru við svo búið. Klukkutíma síðar gaf Ivan Boldiz- sár, talsmaður ríkisstjórnarinnar út opinbera tilkynningu svohljóðandi: „Mindszenty hefur játað vegna sann- ana, sem færðar hafa verið fram gegn honum. Hann er ákærður fyrir svik- samlegar aðgerðir gagnvart lýðræði

x

Heimdallur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.